HINIR ALMENNU VINSTRI MENN HAFA SENT FORYSTU VINSTRI FLOKKANNA SKÝR SKILABOÐ

En forystumenn "Vinstri Flokkanna" á Íslandi, eru í smákóngaleik og þar af leiðandi hlusta þeir ekkert á hinn almenna kjósanda.  Skoðanakannanir undanfarna mánuði hafa sýnt það, svo ekki verður um villst, að þeir vilja sameinast undir merkjum Pírata en þá halda þeir að með því að skipta um mannskap í brúnni nái þeir eitthvað betri árangri.  Þeir gera bara allt annað en að hlusta á almenna kjósendur.


mbl.is Býður sig fram til varaformanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það hlýtur að teljast merkilegt að yfirlýsing frambjóðandans skuli vera rituð í þriðju persónu.

Guðmundur Ásgeirsson, 15.3.2016 kl. 18:26

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það sem mér finnst merkilegast er að forysta vinstri flokkanna skuli algjörlega hafa virt að vettugi skilaboðin frá hinum almenna kjósanda, þess efnis að vinstri hjörðin sameinist í Pírötum.

Jóhann Elíasson, 15.3.2016 kl. 19:40

3 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Nafni það er ágætis málsháttur sem á við vinstri flokkana sem sjá fram á að þau verða atvinnulaus eftir kosningar 2017, "neyðin kennir naktri konu að spinna."

Ég hef heyrt í Semu Erlu í útvarpi um innfluttning á útlendingum og komst að þeirri niðurstöðu að henni er illa við Íslendinga sem eru fæddir og uppaldir á Íslandi, sérstaklega eldri borgara og öryrkja.

Lágt þarf samfó að leggjast ef að Sema Erla verður næsti varaformaður Samfó.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 15.3.2016 kl. 19:55

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Nei það er nákvæmlega ekkert merkilegt við það, því Píratar eru alls ekki vinstriflokkur, heldur flokkur sem stefnir fram á veginn í stað þess að beygja út af honum til vinstri eða hægri.

Standi vilji vinstrimanna til þess að sameina vinstriflokkana, þ.e. Samfylkingu og VG, þá er ekkert sem hindrar þá í að gera það. Nema kannski bara þeir sjálfir?

Guðmundur Ásgeirsson, 15.3.2016 kl. 19:57

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Guðmundur, þið verðið bara að fara að viðurkenna það, hvort sem ykkur líkar betur eða verr að Píratar ERU vinstri flokkur og allt tal um annað er bara bull.

Jóhann Elíasson, 16.3.2016 kl. 04:22

6 identicon

Hvaða skoðun hefur þú á sjúkrahúsi við Hringbraut Guðmundur Ásgeirsson?  Af hverju heyrist ekkert í Pírötum vegna málsins?  Hafa þeir enga skoðun?  Ekki nógu merkilegt kannski?

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 16.3.2016 kl. 08:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband