SVONA UMMÆLI ERU EITUR FYRIR INNLIMUNARSINNA

En það sér það hver heilvita maður (það er að segja ef hann er ekki grjótharður INNLIMUNARSINNI og þá um leið vakna upp spurningar um hvort sá hinn sami sé alveg HEILVITA?), að um leið og meðlimum í EFTA fjölgar verður ESB ekki lengur það RÁÐANDI afl í Evrópusamstarfi, sem það hefur verið og í framhaldi af því verða "ESB tilskipanirnar" kannski eitthvað hófstilltari....


mbl.is Myndi gera EFTA áhrifameiri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það virðast ekki allir hafa gert sér grein fyrir því að þrátt fyrir allt hafa Bretar ekki tekið neina ákvörðun um að segja sig frá EES-samningnum.

Sá samningur er sjálfstæður og fellur ekki sjálfkrafa úr gildi þó svo að Bretland segi frá Lissabon sáttmála Evrópusambandsins.

Stjórnvöld í Evrópuríkjunum haga sér núna eins og þau hafi steingleymt því að hafa skrifað undir EES-samninginn á sínum tíma.

Afar sérstakt.

Guðmundur Ásgeirsson, 13.8.2016 kl. 16:44

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

BREXIT er alls ekki klárt og næstu mánuðir fara í að KLÁRA útgönguna.....

Jóhann Elíasson, 13.8.2016 kl. 17:18

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Eftir útgönguna verður Bretland samt áfram aðili að EES-samningnum ef ekkert annað kemur til.

Guðmundur Ásgeirsson, 13.8.2016 kl. 17:28

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er alls ekki sjálfgefið að Bretar verði SJÁLFKRAFA aðilar að EES samningnum. 

Jóhann Elíasson, 13.8.2016 kl. 21:14

5 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

EES samningurinn hefur þá beintengingu við ESB að aðildarríki eru skuldbundin til að taka upp lög og reglur ESB. Þetta er í raun valdaafsal. Og tal um að efla EES samstarf er raunar út í hött. Samningurinn er njörfaður niður í ákveðið form og ekkert svigrúm til að efla vægi hans eða draga úr því . Hvað er manneskjan að tala um?

Jósef Smári Ásmundsson, 14.8.2016 kl. 10:29

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er ósköp einfalt Jósef Smári, Ef Bretar ganga í EFTA, þá verða þeir aðilar að EES samningnum annars ekki.  Það er ekkert verið að tala um að efla eð minnka vægi hans heldur að vægi ESB verði minna ef Breta ganga í EFTA og að í framtíðinni verði ESB að taka meira tillit til EFTA.

Jóhann Elíasson, 14.8.2016 kl. 11:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband