ÞAÐ ER EKKI AÐ LOKA LANDAMÆRUNUM AÐ TAKA EKKI VIÐ HÆLISLEITENDUM.

Íslendingum ber ENGIN skylda til að taka á móti hælisleitendum.  Nú þegar getur Útlendingastofnun ekki unnið úr öllum beiðnum um hæli sem þegar liggja fyrir. Besta leiðin er að vísa hælisleitendum frá við komuna til landsins og þegar búið er að vinna úr þeim umsóknum, sem þegar liggja fyrir, er hægt að taka ákvörðun um framhaldið.


mbl.is Getum ekki lokað landamærunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Hælisleitendur koma til landsins eins og hverjir aðrir ferðamenn og óska svo eftir hæli þegar þeir eru komnir til landsins. Það að reyna að kanna það hjá öllum ferðamönnunum hvort þeir muni hugsanlega óska eftir hæli hér á landi er ekki vinnandi vegur þegar þeir eru 1,7 milljónir á ári og fer fjölgandi. Og það er heldur ekki nein ástæða til enda fjöldi hælisleitenda hér á landi það lítill að það er ekki neitt vandamál og stefnir ekki í að verða það.

Sigurður M Grétarsson, 16.8.2016 kl. 17:08

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hælisleitendur verða að gera vart við sig hjá viðkomandi lögregluembætti innan viss tíma frá komu til landsins og því er EKKERT því til fyrirstöðu að vísa þeim í burtu.  Að sjálfsögðu er fjöldinn VANDAMÁL, þegar Útlendingastofnun ræður ekki við fjöldann.  Þú verður að fara að hugsa áður en þú sendir svona bull frá þér, Sigurður.

Jóhann Elíasson, 16.8.2016 kl. 17:25

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Húsnæði er líka vandamál.  Td eru 1160 námsmenn á biðlista um húsnæði á Stúdentagörðunum,  "talsvert fleiri en nokkru sinni fyrr" skv. Félagsstofnun stúdenta.  Ekkert húsnæði er í boði á almennum leigumarkaði nema á uppsprengdu ferðamannaverði.  Hælisleitendur á eigin vegum eru 137 það sem af er ári til viðbótar þeim tugum sem sóttir eru í flóttamannabúðir.  Einhvers staðar verður allt þetta fólk að búa, hælisleitendur, námsmenn og venjulegir innlendir - og ekkert er byggt nema rándýrt lúxushúsnæði.  Ég myndi segja að hér SÉ vandamál!

Kolbrún Hilmars, 17.8.2016 kl. 14:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband