AÐ TAPA FYRIR HERMANNI HREIÐARSSYNI VAR MEIRA EN STJÓRN ÍBV ÞOLDI

Þær eru ekki margar umferðirnar í Persi-deildinni eftir, þannig að nýr þjálfari kemur ekki til með að breyta miklu úr þessu.  Í ljósi þessa eru sjálfsagt einhverjir sem setja spurningamerki við þennan gjörning...


mbl.is Bjarni hættur með ÍBV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Satt seygir þu vinur og enda er eg ekki vinstri maður og ekki þu heldur. Hvernig ætli se að vera osamala Donald Trump ? Er ekki finnt að hafa hann a Bessastaði i staðinn fyrir hann Guðna ? Maður ma grínast endrum og eins vinur enn engu að síður byð eg kærlega að heilsa og please ekki móðgast. 😺👻👽🤖💀

Trump (IP-tala skráð) 21.8.2016 kl. 01:18

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sæll Jóhann! Oftast er þetta gert til að létta á spennu leikmanna sem komnir eru í verulega fallhættu.En þjálfari ÍBV óskaði sjálfur eftir að hætta,hvort sem það var af eigin frumkvæði eða ekki.- 

Helga Kristjánsdóttir, 21.8.2016 kl. 01:57

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

"Trump"?, ekki veit ég hvað vinstri menn koma fótbolta við? Mér skilst nú að það sé ekkert gott að vera ósammála Donald Trump.  Það hefur lítið reynt á Guðna á Bessastöðum og því finnst mér að pælingar um að Trump ætti að vera á Bessastöðum í stað Guðna alls ekki tímabærar og svo hefði Trump alls ekki kjörgengi hér.  Engin hætta á að ég móðgist. wink

Jóhann Elíasson, 21.8.2016 kl. 09:51

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sæl Helga, það kemur reyndar hvergi fram að Bjarni hafi ÓSKAÐ eftir að hætta heldur er sagt að þetta hafi verið "sameiginleg ákvörðun Bjarna og stjórnar ÍBV".  ÍBV er ekki komið í fallsæti en vissulega eru þeir komnir í fallbaráttuna svo það er nú kannski fullsnemmt að fara að "létta" einhverri fallspennu af leikmönnum.  En svo er önnur saga hvort Bjarni er búinn að missa "neistann", sem þjálfari, um þetta eru mörg dæmi með góða þjálfara og skýrasta dæmið er kannski hinn frábæri þjálfari Guðjón Þórðarson.

Jóhann Elíasson, 21.8.2016 kl. 10:03

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Jú vinur það las ég hér á Mbl. En meðan leikmenn eru ennþá með í bikarnum á miðju sumri,er hann í sjónmáli og keyrslan og væntingarnar meiri.-Það voru sár vonbrigði þegar þeir töpuðu fyrir Val í bikarnum 13.ág. Með !4 stig í deildinni á þessum tíma,nægir fyrir heitar umræður um leikskipulag,það leggst misjafnlega í menn. 

Helga Kristjánsdóttir, 21.8.2016 kl. 12:14

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Leiðr. 14 stig..

Helga Kristjánsdóttir, 21.8.2016 kl. 12:15

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Reyndar kom það ekki fram í þessari frétt á mbl. en hafi þetta farið framhjá mér biðst ég að sjálfsögðu afsökunar á þessari fullyrðingu minni.  Mér hefur nú ekki fundist mikið að leikskipulaginu hjá ÍBV en mér hefur fundist vanta nokkuð mikið upp á "mótiveringu" leikmanna og t.d í návígjum finnst mér þeir tapa boltanum full auðveldlega (fljótir að gefast upp) og svoleiðis er ekki vænlegt til árangur.  Tapið í bikarnum 13 ágúst var vissulega slæmt og það eru viðbrögð Eyjamanna við þessu tapi sem valda mestum vonbrigðum hjá mér því það er engu líkara en að sumir hafi bara gefist upp þá.

Jóhann Elíasson, 21.8.2016 kl. 12:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband