ER ÞETTA STAÐFESTINGIN Á ÞVÍ AÐ KOSIÐ VERÐI AFTUR TIL ALÞINGIS Í VOR??

 ÞÁ ER EINA VITIÐ AÐ KJÓSA AFTUR Í VOR OG LÁTA ÞÁ STARFSSTJÓRN, SEM ER NÚNA STARFA ÞANGAÐ TIL.  Og kannski fólk verði þá búið að átta sig á alvöru málsins og láti ekki einhver "grínsamtök" sem hafa engin málefni fram að færa og vilja alls ekki og geta ekki borið neina ábyrgð á einu eða neinu, í té atkvæði sitt og pólitíska landslagið fær þá aðeins að jafna sig.  En mikið eru það ánægjulegar fréttir fyrir þjóðina að "Vinstri Hjörðin" skyldi springa í loft upp, kannski var það líka fyrirséð að þetta lið gæti aldrei komið sér saman um eitt eða neitt.....


mbl.is Búið að slíta stjórnarviðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Af miklum gunguhætti lét ríkisstjórnin undan kröfu stjórnarandstöðu um kosningar í haust. Ríkisstjórnin hafði ríflegan meirihluta á þingi og hefði getað og hefði átt að sitja til vors. Þá væri þinghald í fullum gangi og menn að vinna vinnuna sína landi og þjóð til heilla, vonandi. Nú hinsvegar er svo komið að staðan eftir kosningar er óljós og ekki séð fram á farsæla lausn. Það þýðir að til að ná saman starfshæfri ríkisstjórn þurfa allir sem koma að slíkri stjórn að gefa eftir og fara út í víðtækar málamiðlanir. Slíkt getur ekki orðið til góðs og að lokum þarf að boða til kosninga öðru sinni, þá erum við væntanlega farin að nálgast vorið og erum þá komin á það tímabil sem kosningar hefðu átt að vera í upphafi.

Tómas Ibsen Halldórsson, 23.11.2016 kl. 20:35

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Vel mælt Tómas og allt HÁRRÉTT, stærstu mistökin voru að láta kosningar eftir þessum FÁU en HÁVÆRU öskuröpum, sem mættu á Austurvöll þarna í kjölfar fyrirsátarinnar hjá  Sænska sjónvarpinu og Jóhannesar Kr með stuðningi RÚV..

Jóhann Elíasson, 23.11.2016 kl. 21:00

3 identicon

Þar sem síðuhöfundur er alltaf að klifast á þessum fáu og háværu sem mættu á Austurvöll þann 4 apríl s.l. þá ætti þessi mynd (tekin af Vísi.is höfunadur Ernir Eyjólfsson eða Vilhelm Gunnarsson) að sýna honum hversu fáir þeir voru. Örugglega fleiri ein þeir sem kusu Framsókn.

thin (IP-tala skráð) 25.11.2016 kl. 14:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband