HVENÆR TEKUR GRÓÐAHYGGJAN YFIR SKYNSEMI OG UMHYGGJU?

Sjaldan hef ég orðið vitni að jafn slæmum aðbúnaði hjá nokkrum dýrum eins og hjá "Frjálsu ,Hamingjusömu Hænunum" hjá Brúneggi á Teigi í Mosfellsdal og Stafholtsveggjum í Borgarfirði.  Þegar ég var gutti, fyrir löngu síðan, var ég í sveit á bæ í næsta nágrenni við Stafholtsveggi, þá var þar myndarbúskapur og ég veit að ef hann Árni sem bjó þá á Stafholtsveggjum, vissi um þessa meðferð, myndi hann snúa sér marga hringi í gröfinni, því aldrei hefði hann liðið svona lagað.  En tímarnir breytast og mennirnir með.  En það sem mér fannst alvarlegast við þessa umfjöllun er hversu lengi þetta fékk að viðgangast án þess að eitthvað væri gert og að fyrirtækið komst upp með að BLEKKJA neytendur með því að selja þessi egg á TÆPLEGA 40% HÆRRA VERÐI Í MÖRG ÁR án þess að NOKKUÐ VÆRI Á BAK VIÐ ÞESSA VERÐLAGNINGU. Auðvitað keyptu neytendur þessi egg í góðri trú en ábyrgðin á þessum blekkingum er að sjálfsögðu fyrst og fremst hjá fyrirtækinuÞað er mín skoðun að það eigi að svipta þetta fyrirtæki starfsleyfinu og rekstraraðilana ætti að dæma til refsingar fyrir dýraníð og sjá til þess að þeir komi aldrei nálægt svona rekstri aftur.


mbl.is Aldrei verið vistvæn framleiðsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Mér varð líka svona mikið um þetta,en svo fór ég að hugsa um hvort það er langt síðan þetta var og komið í lag nú. En myndirnar eru skelfilegar sannarlega.

Helga Kristjánsdóttir, 29.11.2016 kl. 02:04

2 Smámynd: Steindór Sigurðsson

Þú hlýtur nú að vita hvernig möppudýrin vinna Jóhann minn, bara með rassgatinu.

Steindór Sigurðsson, 29.11.2016 kl. 03:00

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir innlitið, Helga........

Jóhann Elíasson, 29.11.2016 kl. 05:54

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Og hverjir eru "möppudýrin", sem eiga þarna sökina Steindór???????

Jóhann Elíasson, 29.11.2016 kl. 05:56

5 identicon

Er þetta ekki bara enn einn áróðurinn frá rúvurum...Samfylkingarspuni.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 29.11.2016 kl. 10:55

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er ekki að ÖLLU leit áróður, en þeir kunna að setja hlutina í "sölubúning".  En aftaka var þetta, ég hef ekki nokkra trú á að þetta fyrirtæki eigi nokkurn möguleika eftir þetta.....

Jóhann Elíasson, 29.11.2016 kl. 11:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband