ÞESSIR FLOKKAR GETA EKKI ORÐIÐ SAMMÁLA UM NEITT NEMA VERA ÓSAMMÁLA UM ALLT

Þar af leiðandi getur ekki orðið um neitt ríkisstjórnarsamstarf að ræða milli þessara flokka.  Ef málin eru skoðuð kemur í ljós að Píratar hafa aldrei getað tekið afstöðu til eins eða neins nema að vera í andstöðu við stjórnvöld og því er það augljóst að þeir geta ekki orðið hluti af stjórnvöldum, því þá væri hlutverki þeirra lokið.  VG finnur sig ekki með þessum flokkum, sá flokkur veit ekki hvar hann er staddur og á meðan Kata litla veit ekki hvar hún er eða hvert hún á að fara og Gunnarsstaða Móri og Björn Valur geta ekki "afruglað" hana eða lagað fjarstýringuna á henni er engin von fyrir VG.  Björt framtíð er alfarið búið að "hengja sig á" Viðreisn og Benedikt er ekki búinn að gera upp við sig hvort hann á að halla sér til HÆGRI eða VINSTRI og á meðan svo er getur ENGIN ríkisstjórn verið mynduð. Og svo er það LANDRÁÐAFYLKINGIN en kjósendur HÖFNUÐU HENNI ALGJÖRLEGA í kosningunum í haust án þess að "þingmenn" flokksins gerðu sér grein fyrir því.  Af þessari upptalningu má vera ljóst að landsmönnum hefur verið forðað frá enn einu vinstra slysinu og menn hafa kannski séð að það er affarasælast að halda sig hægra megin........


mbl.is Málamiðlanir liggja enn ekki fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband