HEFUR EITTHVAÐ BREYST EÐA ER BJARNI BARA TILBÚINN AÐ GEFA MEIRA EFTIR EN ÁÐUR?

Eitt er alveg öruggt að það er alveg meiriháttar klúður að fara með þessum tveim flokkum í ríkisstjórnarsamstarf og það með EINS ÞINGMANNS MEIRIHLUTAÞað er ekki nokkur möguleiki að gera sér grein fyrir hvers vegna Bjarni Benediktsson, er svo barnalegur að halda að þetta geti gengið, vitandi það að hann getur ekki treyst formanni Viðreisnar fyrir horn og aldrei hægt að vita hvernig kjölturakkinn bregst við eða hvort hann geltir bara þegar formaður Viðreisnar sigar honum?  ESB-málið átti að vera ÓUMSEMJANLEGT bæði hjá Viðreisn og Bjartri Framtíð, skyldi Bjarni vera búinn að gefa eftir í því máli?  Hvernig skyldi eiginlega standa á því að INNLIMUNARSINNAR eru ekki tilbúnir að ganga HREINT TIL VERKS OG SPYRJA AÐ ÞVÍ Í ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU HVORT ÞJÓÐIN VILL GANGA Í ESB?  Þá væri þetta mál bara úr sögunni og hundruð milljón króna sparnaður......

 

 

 

 

 

 


mbl.is Mikil leynd hvílir yfir viðræðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég er aldrei alveg örugg með Bjarna,þótt mér finnist hann bera af framboðsfólki allra flokka.-Maður á fárra kosta völ,þegar Gróa reitir af okkur besta fólkið með sínu víðfræga stefi"Ólyginn sagði mér" En í kosningum í vor göngum við frá óvininum.   

Helga Kristjánsdóttir, 28.12.2016 kl. 16:15

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já, Gróa í Efstaleiti ætlar að verða ómetanlegur bakhjarl fyrir "Vinstri Hjörðina".

Jóhann Elíasson, 28.12.2016 kl. 16:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband