LÍTIL VON TIL AÐ HÆGT VERÐI AÐ KOMA VITINU FYRIR RÁÐHERRANN

Enda er ekki eingöngu um það að ræða að þjóðarhagur sé í húfi heldur er þetta persónulegt mál og ráðherrann verður að gera upp við sig hvort vegi meira þjóðhagslegir hagsmunir eða persónulegir.  Þannig er mál með vexti að ráðherrann sótti það MJÖG FAST að fá stöðu framkvæmdastjóra SFS (LÍÚ), á sínum tíma, en varð að lúta í lægra haldi fyrir Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur.  Það er því ljóst að ýmis ljón eru í veginum og ýmsar flækjurnar, sem þarf að leysa ef stjórnvöld eiga að koma að þessari deilu...


mbl.is Ráðherra komi fyrir nefndina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Ertu þá að meina Jóhann að ráðherranum sé sama þó eitthvað molnu undan Heiðrúnu Lind? Þetta sé svona Bergþóru þema og Hallgerðar.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 16.2.2017 kl. 10:29

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Jæja nú eru ríkisafskiptin byrjuð hjá "hægri" stjórninni.

Guðmundur Ásgeirsson, 16.2.2017 kl. 11:04

3 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Málið er að dagpeningar eru ekki skattskyldir, þeir eru hugsaðir til að koma á móti útgjöldum. Fæðispeningar falla ekki undir það, en frítt fæði á að telja fram sem fæðishlunnindi. Þar af leiðir þarf að búa til nýtt ákvæði fyrir sjómenn, sem virðist vefjast fyrir yfirvöldum, en er réttlætis mál fyrir sjómenn allir sem vinna utan sveitarfélagsmarka lögheimilis hafa frítt fæði, en verða að telja það framm sem fæðishlunnindi, þar stendur hnífurinn í kúnni þegar horft er til jafnræðisreglunnar.

Spurning er að gera matarfélagið um að hlutafélagi og greiða fæðispeningan út sem arð, þá gengi þetta mál allt upp.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 16.2.2017 kl. 11:22

4 identicon

Dagpeningar eru víst skattskyldir. Hins vegar er sá hluti sem sannanlega er varið til greiðslu ferðakostnaðar á vegum vinnuveitanda frádráttarbær. Embættismennirnir og flugliðarnir, langflestir amk. færa þó alla upphæðina til frádráttar og svíkja því verulega undan skatti. Og ríkisskattstjóri hylmir meðvitaður yfir með þeim enda einn af þeim sem nýtur þessara skattsviknu dagpeninga. Á að láta þjófana sjálfa svo ákveða hvað sjómenn fá að færa til frádráttar? Annars skil ég ekki hvers vegna sumt fæði á að vera frádráttarbært en annað ekki. Ég þarf a.m.k. alltaf að borða, hvar sem ég er og hvort ég er að vinna eða í fríi. Er ekki rétt að uppræta skattsvik embættismanna og flugliða og þá sitja allir við sama borð? Svo talar þessi svokallaði ráðherra um sértækar aðgerðir. Hún er þá sjálf meðhöndluð með sértækum hætti en vill ekki leyfa öðrum að njóta þess sama.

Örn Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 16.2.2017 kl. 12:15

5 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Sæll Örn ég sló feilnótu og þakka leiðréttinguna. Það ber að telja dagpeninga fram en þeir eru ekki skattlagðir, er það nokkuð?

 Það er það sem ég meinti. Það á nú að vera hægt að útkljá þetta deilumál og ástæðulaust að láta mikilvægustu atvinnugrein stöðvast með öllum þeim skaða sem auglajóst er hverjum sem er, fyrir svona mannasetningar um skæklatog hvað hlutirnir heita.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 16.2.2017 kl. 12:52

6 identicon

Það ber að telja dagpeninga fram en vegna þess að ríkisskattstjóri og öll elítan hagnast á eftirlitsleysi þá er það undir framteljandanum sjálfum komið hvernig hann telur þetta fram. Ef þú kemst upp með að fá greidda 50.000 í dagpeninga á dag en greiðir aðeins 20.000 fyrir kostnað þá standa 30.000 eftir sem þú átt að greiða skatt af. En þessir aðilar gera það ekki. Hvaða kostnað bera flugliðar af því að fara um borð í vinnustað sinn að morgni og ganga út þaðan seinnipart sama dag? Bullið, svindlið, þjófnaðurinn og viðbjóðurinn er svo mikill að þeir sem þetta stunda sjá ekki eigið sukk. Og þingmenn okkar eru mestu þjófarnir!

Örn Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 16.2.2017 kl. 20:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband