ÞVÍ ÚTLENDINGASTOFNUN ER ÞYRNIR Í AUGA "GÓÐA FÓLKSINS" OG NO BORDER LIÐSINS....

Og þá er best að losna bara við öll höft og markmiðið er að "hælisleitndur" geti komist inn í landið án þess að nokkur fyrirstaða sé neins staðar í kerfinu.  Hingað til hefur Útlendingastofnun verið eina bremsan á óheftan innflutning "hælisleitenda" og þá vill þetta lið losna við hana.....


mbl.is Útlendingastofnun verði lögð niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ertu viss um að þessi stjórnkerfis breyting sé ekki gerð til að hafa möguleika til að auka "eftirlit með og auðvelda takmarkanir á " óheftum innflutningi " hælisleitenda"?

Ég vona bara að þessi breyting verði ekki til þess að gera Íslenskum ríkisborgurum búsettum erlendis erfiðara að endurnýja vegabréfið sitt.  Nóg er nú samt.

Eins og málin standa í dag, geta íslenskir ríkisborgarar búsettir í Evrópu fengið vegabréf sín endurnýjuð í  Reykjavík, London, Berlin, Kaupmannahöfn, Osló .

Þau okkar sem búsett eru t.d. á Suður Spáni þurfa þessvegna að koma sér til ofannefndra borga í Norður Evrópu til að sækja um framlengingu á vegabréfinu okkar.

Mér finnst þessi þjónusta léleg og vona að þar verði breyting á með góðra manna/kvenna hjálp.

Agla (IP-tala skráð) 27.2.2017 kl. 15:53

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég sé því miður ekki að þessi breyting geti neitt auðveldað eftirlit og takmarkanir á komu "hælisleitenda" nema síður sé.

Allt sem þarf að fara í gegnum stjórnsýsluna hér er alveg óheyrilega þungt í vöfum og á það ekki síst við um endurnýjun á vegabréfum, ökuskírteinum og fleira.  Þetta ætti að vera sérstaklega einfalt en það tekst að flækja þetta heil lifandi ósköp og gera þetta smotterí svo flókið að það er ekki fyrir neinn venjulegan mann að skilja ferlið.

Jóhann Elíasson, 27.2.2017 kl. 17:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband