OG FERÐAÞJÓNUSTAN VILL AÐ STJÓRNVÖLD HALDI ÁFRAM AÐ NIÐURGREIÐA GREININA.....

Þetta á sérstaklega við um gistinguna.  Ekki þarf annað en að skoða gögn frá RSK til að sjá þetta, ÞAÐ ER EKKI NEMA VON AÐ HÓTELREKSTRARAÐILAR HALDI ÞVÍ FRAM AÐ HÆKKUN VSK MUNI "RÚSTA" GREININNI. Greinin greiðir virðisaukaskatt upp á 11% af öllum tekjum sínum en næstum allur kostnaður greinarinnar er í 24% þrepinu og til að auka þennan mun enn meira (og til að auka endurgreiðslurnar, innskattinn) eru engir venjulegir launamenn heldur eru starfsmenn VERKTAKAR og ofan á launin leggst svo 24% VSK, sem fyrirtækið fær svo endurgreiddan í formi INNSKATTS.  ÞEGAR DÆMIÐ ER SVO GERT UPP ERU HÓTEL OG STÆRRI GISTISTAÐIR AÐ FÁ TUGI MILLJÓNA ENDURGREIDDAR Í FORMI INNSKATTS Á TVEGGJA MÁNAÐA FRESTI.  ÞAÐ ER VON AÐ ÞESSARI FYRIRHUGUÐU VSK HÆKKUN SÉ MÓTMÆLT.......


mbl.is Ferðamenn stytta dvölina á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Gíslason

Ferðaþjónustan er að fá hundruðu milljóna til baka á ári hverju, vegna þessa mismunar sem er á VSK. Flestir sem vinna hjá þeim eru verktaka á 24,5% vsk flokk en þeir rukka inn miðað við 11% vsk flokk mismunur verður því endurgreiddur. Það er fyrir bestu að vsk flokkurinn sé sami bæði út og inn og fá ekki endurgreitt hundruðu milljóna.

Ómar Gíslason, 24.4.2017 kl. 19:39

2 Smámynd: Ómar Gíslason

Einn ferðaþjónustuaðili sagði "...að hann myndi hætta við að byggja nýtt hótel, vegna hækkunar á VSK". Finnst það furðulegt að hætta að byggja hótel út af vsk flokki. Hefur þessi aðili gleymt því að hann er að byggja fyrir ferðamenn sem borga fyrir hótelherbergi en ekki til að fá endurgreitt til baka frá vsk.

Ómar Gíslason, 24.4.2017 kl. 19:44

3 Smámynd: Ómar Gíslason

Það á að vera einn vsk flokkur á allt og hætta þessu bulli.

Ómar Gíslason, 24.4.2017 kl. 19:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband