NÚ FÓR RÚV HELDUR BETUR "YFIR STRIKIÐ" - TIL HVERS ER ÞESSI "ÍÞRÓTTARÁS"?.....

Ekki nóg með það að venjulegri dagskrá sé komið algjörlega fyrir "kattarnef" og íþróttum TROÐIÐ inn í dagskrána, heldur er svo mikil áhersla lögð á AUGLÝSINGAR að það er látið ganga fyrir því að sýna frá íþróttaviðburðinum sjálfum.  Ég verð að viðurkenna að ég athugaði ekki hvort LEIKURINN væri sýndur á "aukarásinni" en hefði ekki verið eðlilegast að LEIKURINN hefi verið sýndur þar og vanaleg dagskrá á aðalrásinni?  Það virðist vera að stjórnendur RÚV geri sér ekki alveg grein fyrir að það sé hægt að nýta báðar rásirnar í einu....


mbl.is Sýndu auglýsingu en ekki upphaf leiksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Jóhann.

Ég er þér algjörlega sammála og meira til.

Fyrir utan vera gróflega hlutdrægt hvað pólitík og skoðanir varðar, þá setur þessi peninga suga eflaust hundruðir milljóna í tökuteymi sem ferðast vítt og breitt til þess eins að ná skotum úr deildarleikjum til að sýna á aðalrásinni og það jafnvel frekar úr kvenna deildunum, sem enginn, eða mjög fáir hafa áhuga á.

Ef þú trúir mér ekki hvað áhugaleysið varðar, þá getur þú bæði beint sjónum þínum að tómlegum áhorfenda svæðunum í leikjunum og svo er það tilvalið að spyrja vini eða vinnufélaga af báðum kynjum hvort þau geti upplýst þig um hvaða lið sé Íslandsmeistari í t.d. körfuknattleik kvenna og þú munt komast að því að u.þ.b.enginn hefur minnstu hugmynd um svarið.

Jónatan Karlsson, 19.7.2017 kl. 03:28

2 Smámynd: Hallgrímur Hrafn Gíslason

Sjómenn og kanski fleiri ná ekki íþróttarás sjónvarpsins.  Svo að það er eðlilegt að sýna svona viðburði þar sem flestir sjá, nöldurpungar eins og þið ættuð jafnvel að skilja það :)

Hallgrímur Hrafn Gíslason, 19.7.2017 kl. 09:04

3 Smámynd: Jónatan Karlsson

Ég hefði nú haldið að sjómenn öðrum fremur hefðu nú meiri áhuga á að geta gengið að fréttum af veðri og öðru vísu, fremur en að fylgjast með ungum stelpum hamast af veikum mætti í hefðbundnum íþróttum karla. 

Jónatan Karlsson, 19.7.2017 kl. 10:23

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég hallast nú að því að Hallgrímur sé einhver "stofusjómaður" því ég man ekki til þess að það væri verið að glápa á sjónvarp á sjónum, það var hreinlega ekki tími til þess.

Jóhann Elíasson, 19.7.2017 kl. 15:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband