ÞETTA VORU BARA SLÆM MISTÖK SEM GETA KOMIÐ FYRIR HVERN SEM ER..

Vissulega var þetta slæmt en það er ekki hægt að horfa framhjá því að hún kom í veg fyrir enn stærra tap hjá liðinu í kvöld. OG ÉG VERÐ AÐ SEGJA AÐ MIÐAÐ VIÐ ÞANN STÓRLEIK SEM HÚN ÁTTI Í ÍSLENSKA MARKINU ERU ÞESSI EINU MISTÖK SEM HÚN GERÐI Í ÞESSUM LEIK FREKAR SMÁVÆGILEG.  SANNLEIKURINN ER SÁ AÐ HÚN OG SIF ATLADÓTTIR VORU ÞÆR EINU Í ÍSLENSKA LIÐINU SEM GERÐU EITTHVAÐ SEM VIT VAR Í.  Fyrst og fremst þarf liðið að huga að því að ná meiri nákvæmni í sendingarnar, það var fyrst og fremst það sem varð þeim að falli og Austurríkisstelpurnar voru bara mun ÁKVEÐNARI í öllum sínum aðgerðum..


mbl.is Ég skemmdi leikinn fyrir liðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Alveg sammála. Guðbjörg er búin að fara á kostum í markinu fyrir utan þetta eina tilvik. Sif er búin að vera eins og mulningsvél í vörninni. Ég vil ekki lenda í slag við hana. :)

Guðmundur Ásgeirsson, 26.7.2017 kl. 23:36

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir innlitið Guðmundur og athugasemdirnar.  Mér finnst þessar tværm hafa staðið upp úr á þessu móti og ósanngjarnt að fara að "blása" þessi mistök út, sem einhvern örlagavald sem þau voru alls ekki.  Hún var með fjöldan allan af frábærum vörslum í þessum leik sem komu í veg fyrir enn stærra tap.  Væri ekki allt í lagi að nefna að það voru nokkrar, sem aldrei komust í gang allt mótið en það vantaði ekki að þær sömu höfðu uppi stórar og miklar yfirlýsingar fyrir hvern leik?

Jóhann Elíasson, 27.7.2017 kl. 07:00

3 Smámynd: Theódór Norðkvist

Vissulega slæm mistök sem geta hent alla, en Guðbjörg er að berja sjálfa sig allt of fast í hausinn. Fyrst og fremst vantaði alla stemmingu í liðið sem heild og íslenska liðið mátti þakka fyrir að tapa ekki 6-0, miðað við færin sem Austurríki fékk. Ég er nokkuð sammála Sindra Sverrissyni blaðamanni Mbl hér.

http://www.mbl.is/sport/efstadeild/2017/07/27/ekkert_stolt_engin_gledi/

Stelpurnar áttu einstaka kafla í leiknum þar sem eitthvað líf var í þeim og trú á að geta spilað vel, en eftir fyrsta markið virtust þær brotna. Andlega hliðin hrundi og þá er ekki von á góðu. Ég vonaðist til þess að liðið myndi bara fara í leikinn afslappað án pressu, þar sem möguleikar á að komast áfram voru ekki til staðar. Reyna bara að hafa gaman að þessu, því með þannig hugarfar ná lið oft góðum árangri, t.d. ítölsku stelpurnar gegn Svíþjóð. Því miður gerðist það ekki.

Theódór Norðkvist, 27.7.2017 kl. 18:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband