ÞVÍLÍKUR BRANDARI SEM ÞETTA ÖRYGGISRÁÐ ER..........

Litli feiti brjálæðingurinn verður búinn að gera allt sem hann ætlar sér, áður en öryggisráðið nær nokkurri niðurstöðu.  Allir fordæma aðgerðir Norður Kóreu manna en gera svo ekkert.  Þegar Litli feiti brjálæðingurinn sé þessi viðbrögð færist hann allur í aukana en auðvitað endar þetta með því að hann gengur of langt og hvernig verður þá brugðist við?????...


mbl.is „Bandaríkin vilja aldrei fara í stríð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ef að NK myndi sprengja upp GUAM-eyjar að þá mun það væntanlega vera kornið sem mun fylla mælirinn.

=Kína mun þá ekki valda NK.

=Þá eru BANDAMENN komnir með frítt spil til að jarða NK.

--------------------------------------------------------

Spurninginn er hvort að þeir myndu senda 1 kjarnorkusprengju beint á höfuðborgina og reyna þannig að lama þjóðina sem mest í 1 skoti.

eða að eyða öllum hernaðar-mannvirkjum í NK. með venjulegum sprengjum án kjarnorku?

Jón Þórhallsson, 4.9.2017 kl. 22:42

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég hef sagt það áður og endurtek það hérna "MENN KOMA EKKI TIL MEÐ AÐ BEITA KJARNORKUSPRENGJU Á HÖFUÐBORGINA. ÞAR BÚA AÐ MESTU SAKLAUSIR BORGARAR OG ÞAR ERU ENGIN VERULEG HERNAÐARMANNVIRKI.  AÐ SENDA KJARNORKUSPRENGJU Á HÖFUÐBORGINA VÆRI EKKERT ANNAÐ EN MANNVONSKA OG SETTI MENN Á SAMA STALL OG LITLA FEITA BRJÁLÆÐINGINN".  Miklu líklegra er að "þekkt" hernaðarmannvirki og tilraunasvæði í Norður Kóreu yrðu sprengd í loft upp með "venjulegum sprengjum".

Jóhann Elíasson, 4.9.2017 kl. 23:33

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Það gæti verið verkefni fyrir einhverja fjölmiðla að fara að KORTLEGGJA ÖLL HERNAÐAR-MANNVIRKI í NK Á LANDAKORTUM sem að vitað er um og þyrfti helst sprengja upp í fyrstu atrennu til að koma í veg fyrir gagn-árás.

Jón Þórhallsson, 4.9.2017 kl. 23:41

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ætli hernaðarmannvirki í Norður Kóreu séu ekki alveg nógu og vel þekkt og það sé EKKI nokkur ástæða til að blanda fjölmiðlum í það?

Jóhann Elíasson, 5.9.2017 kl. 00:00

5 identicon

Voðalegir fitufordómar eru þetta...!!!

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 5.9.2017 kl. 12:13

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Finnst þér þetta vera "voðalegir" fitufordómar, Helgi?  Ég er nú aðallega að leggja áherslu á það að Kim Jong Un virðist vera sá EINI í Norður Kóreu, sem fær mikið meira en nóg að borða....

Jóhann Elíasson, 5.9.2017 kl. 13:54

7 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Karlinn er vissulega feitur og ekki ónýtt að nota hann á fréttamyndum frá NK til þess að auglýsa alla velsældina í þvísa landi.  En hvað ef hann er nú bara glansmynd sem engu ræður í rauninni?  Þeir eru nú nógu velsældarlegir allir þessir herforingjar sem ætíð standa honum til hliðar og að baki.  Skyldu ÞEIR svo ráða öllu eftir allt saman?

Kolbrún Hilmars, 5.9.2017 kl. 14:42

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei, því miður er það ekki svo, Kolbrún.  Ég horfði á þátt um Norður Kóreu um daginn á RT rásinni.  Þeir fóru meðal annars í leikskóla og þar er strax byrjað á að innræta "takmarkalausa" foringjadýrkun og börnunum er kennt að Kim-ættin sé GUÐLEG og meðal annars er sagt frá því að Kim Jong Un hafi fæðst í "paradísardal" sem finnist á afskekktum stað í Norður Kóreu og hann sé þeim eiginleikum gæddur að einungis Kim fjölskylda viti af honum og engir aðrir komist þar inn.  Margt fleira kom fram í þessum þætti og er nokkuð ljóst að Kim fjölskyldan heldur Norður Kóreu í heljargreipum og meðal annars var vitað um 17 háttsetta embættismenn þar í landi sem höfðu fallið í ónáð og "horfið".

Jóhann Elíasson, 5.9.2017 kl. 14:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband