Alltaf er eitthvað í gangi kringum Alonso.

Hann virðist ekki eiga marga "aðdáendur" innan McLaren-liðsins og kannski er þetta bara undirbúningur þess að tilkynnt verði að hann fari frá liðinu en það er nokkuð öruggt að það verða ekki margir sem koma til með að sakna hans allavega falla ekki mörg tár.
mbl.is Hamilton: Alonso sýnir McLaren ónóga hollustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég veit nú ekki betur en að "prímadonnustælarnir" hafi komið frá Alonso, það eina sem hefur komið frá Hamilton er það sem hann sagði um Alonso í gær en Alonso eyðilagði fyrir honum tímatökuhring í Ungverjalandi og var nokkuð "svínslegur" við Hamilton í fyrstu beygju á Spa og svona mætti lengi telja.  Miðað við hvernig Alonso hefur hagað sér á þessu tímabili þá er engu líkara en hann eigi erfitt með að þola það vera ekki skilyrðislaust meðhöndlaður eins og "kóngur".  Ég á ekki von á að Alonso verði hjá McLaren á næsta ári og mér sýnist að hans verði ekki sárt saknað.

Jóhann Elíasson, 30.9.2007 kl. 15:22

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ekki dettur mér í hug að bera á móti því að Alonso sé góður ökumaður, hann er meira en góður ökumaður því hann er frábær og mjög sjaldgæft að hann geri mistök.  Ég er bara óánægður með hátterni hans á þessu tímabili og af einhverjum ástæðum er hann sá eini, af ökumönnunum í formúlunni, sem fer virkilega í taugarnar á mér.

Jóhann Elíasson, 30.9.2007 kl. 20:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband