Og allt í sómanum...

Yfirdrátturinn einn hækkaði um 2,5 milljarða í október einum og þrátt fyrir þetta kemur Forsætisráðherra skælbrosandi fram í sjónvarpinu og segir að efnahagur þjóðarinnar standi á traustum grunni og hafi aldrei verið betri.  Stendur ekki til að kippa "hausnum aðeins upp úr sandinum" og kíkja aðeins útfyrir "glerbúrið"?

Vaxtahækkanir Seðlabankans hafa lítil sem engin áhrif á verðbólguna, viðskiptahallinn eykst stöðugt, einkaneyslan vex (einkaneyslan er öll tekin að láni og meira til), erlend lán hækka, ekkert lát virðist vera á framkvæmdum hins opinbera, útflutningsatvinnuvegir eru á horriminni vegna óstöðugs gengis, lítil og meðalstór fyrirtæki ráða ekki lengur við skuldbindingar sínar vegna okurvaxtastefnunnar, húsnæðismarkaðurinn er á heljarþröm, til þess að komast hjá "vaxtaokrinu" er almenningur farinn að taka húsnæðis- og neyslulán í erlendri mynt og svo er bara sagt að allt sé í góðum gír og farið í kokteilpartí í Seðlabankann.


mbl.is Erlend lán 112 milljarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Johnny Bravo

Sæll,

það eru 18-25% vextir á þessum 74,2milljörðum þannig að helming hækkunarinnar má væntanlega rekja til vaxta.   Annars er þetta frjálst val fólks að nota yfirdrátt. Þekki fullt af fólki sem þénar ekki mikið er í námi og svo framvegis sem kann að halda að sér höndum og skilur að þetta eru okurlán.

Skil ekki hvernig þú getur skrifað að vextir  hafi engin áhrif og svo að neyslan sé tekin að láni, verða þeir sem þar neyta ekki að borga vexti? Það slær á eftirspurn og þar með hækkun vöruverðs.

Þú skrifar að almenningur sé farinn að taka erlend lán, það fylgja greininni sérstaklega tölur sem sína að þetta hefur ekkert aukist í 3mánuði hækkunina má rekja til 13% veikingar krónunnar og eitthver aukin útlán, ekki mikið, fólk er að átta sig á að krónan á eftir að veikjast þegar lækkunarskeið stýrivaxta hefst.

Johnny Bravo, 27.11.2007 kl. 12:22

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Svona útúrsnúningar verða seint taldir til málefnalegrar umræðu.  Ég hvet þig til að lesa greinina betur og fréttina sem hún er skrifuð um og ekki veit ég hvað þú hefur fyrir þér í því að stýrivextir lækki í bráðina það er akkúrat ekkert sem bendir til þess.

Jóhann Elíasson, 27.11.2007 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband