Talandi um mótsagnakenndan málflutning!

Hann Árni Finnsson ætti ekki að vera að tala mikið um mótsagnakenndan málflutning, ekki þarf að fara lengi yfir hans málflutning til að rekast á mótsagnir.  Þegar hann er ekki lengur að tuða um "útblástur gróðurhúsalofttegunda" (því að mjög fáir nenna orðið að hlusta á það væl hans) þá fer hann að tala um "sjónmengun".  Halló!
mbl.is Mótsagnakenndur málflutningur um olíuhreinsistöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Fyrir 1000 árum var hraun sjónmengun.  Hvað er það nú?  Fyrir 15-20 árum voru sandar sjónmengun.  Hvað þykja þeir nú?  Fer allt eftir hver horfir, skilst mér.

Ásgrímur Hartmannsson, 25.2.2008 kl. 23:44

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já rétt er það en það hefur enginn skilgreint hvað sjónmengun er.

Jóhann Elíasson, 25.2.2008 kl. 23:48

3 identicon

En eru Vestfirðingar virkilega svona hugmyndasnauðir, hugsanalatir og algerlega lausir við sjáfsbjargarviðleitni að ekkert nema olíubrælustöð í anda austur-blokkarinnar kemst að hjá þeim. Nei það hefði ég ekki haldið! Við bíðum spennt eftir því að fólk á Vestfjörðum sýni sitt sanna andlit og láti ekki svona vitleysiskóna troða uppá sig einhverri mestu ruglhugmynd sem komið hefur fram síðan redda átti öllu með loðdýrarækt!

Gústa (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 02:48

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Gústa,þú skalt hafa það sem rétt er það var komið með þessa hugmynd til Vestfirðinga og það sem meira er hún fól í sér 500 störf sem er nú nokkuð meira en nokkur annar iðnaður hefur boðið upp á. Ég man ekki betur en þessir "Náttúruverndar-Ayjatollar" (Náttúruverndar-rugludallarnir) hafi, fyrir nokkrum árum, talað mikið um það að Vestfirðingar ættu að halda í sína stórbrotnu og hreinu náttúru og sjá til þess að engin "stóriðja " kæmi í þennan landshluta og þá myndi ferðamannaiðnaðurinn blómstra og mikil aukning yrði af ferðamönnum öll þjónusta myndi margfaldast og fjórðungurinn myndi blómstra og ekki nóg með það varla yrði nægt rými fyrir alla þá sem myndu vilja búa í svona "paradís" á jörðu.  En hver varð svo raunin?  Ekkert af þessu "kjaftæði" gekk eftir, atvinnuleysi jókst, íbúum fækkaði.  Það sem hefur verið framkvæmt til þess að efla Vestfirði hafa Vestfirðingar sjálfir staðið fyrir, svo sem sjóstangaveiði, stórefling útgerðar smábáta og svona mætti lengi telja, svo aðdróttanir þínar Gústa, eru algjörlega út í hött og ættir þú að skammast þín fyrir öfgafull og meiðandi ummæli og ert þú búin að kynna þér þetta mál svo vel að þú getir sópað þessari hugmynd út af borðinu með þeim hætti sem þú gerir?

Jóhann Elíasson, 26.2.2008 kl. 09:32

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég veit sannarlega ekki hvað skal segja, ég get ekki gert upp minn hug um þetta mál.  En einhvernveginn finnst mér að við getum gert svo miklu betur ef við til dæmis fengjum að hafa okkar fiskimið í friði eins og áður, og efla vistvænar veiðar, það myndi strax efla byggðirnar á ný.  Síðan gæti komið til smáiðnaður og fleira.  Þessi 500 störf yrðu nefnilega mest megnis unnin af erlendu fólki, sennilega Portugölum, þar sem Pólskt efnahagslíf er að batna. 

Ég hef líka fengið misvísandi sögur af bæði mengun og sjónmengum.  Ef kynnt er með rafmagni, þá þarf nýja kárahnjúkavirkjun til að við fáum nægilegt rafmagn, ef kynnt verður með olíu, þá þarf að bæra verulega við mengunarkvótann.  Veit ekki með sjónmengun.  En þarna eiga að vera einbyrðingar, og hvað með eitt sjóslys eða strand og fiskimiðinn öll í hættu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.2.2008 kl. 14:23

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þessi hugmynd er auðvitað slík fáránleg hringavitleysa að það er móðgun við þjóðina að boða til ráðstefnu um þenna fjanda.

Ein hugmyndin er að kynda skrímslið með oliu! Og til að kóróna sköpunarverkið á að koma stassjóninni fyrir inni í þröngum firði.

Fiskurinn hefur fögur hljóð / finnst hann oft á heiðum........

Árni Gunnarsson, 26.2.2008 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband