Hvert er stefnt??

Skítur það ekki skökku við að formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands sitji í stjórn öfgasamtaka eins og Greenpeace er sannanlega?  Eða er mönnum alveg sama en ef málflutningur Árna Finnssonar er skoðaður yfir nokkurra ára tímabil hafa áherslur hans og skoðanir orðið sífellt einstrengingslegri og öfgafyllri.  Getur ástæðan verið sú að hann er alltaf að auka samband sitt við þessi öfgasamtök út um allan heim?  Spyr sá sem ekki veit.
mbl.is Árni áfram í stjórn Greenpeace Nordic
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Sammála þessu Jóhann,ekkert mark takandi á þessum manni,eða samtökunum  i heild,sjáum hvernig þeir láta með Hvalveiðar sem eru að verða nauðsyn algjörlega/kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 30.4.2008 kl. 17:10

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sem minnir mig á, hvar er Magnús Jónsson, eða hvað hann nú annars heitir sá ágæti maður sem barðist á sínum tíma fyrir hvalveiðum og var hataður um allan heim fyrir vikið.  Hann gerði kvikmynd sem fletti ofan af Öfgafriðunarsinnum.  Það hefur ekkert heyrst í honum lengi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.4.2008 kl. 17:46

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Jóhann.

Árni Finnsson hefur mér best vitanlega aldrei verið á verði gagnvart til dæmis vernd um náttúru hafsbotnsins, þannig að sá hinn sami telst því varla gjaldgengur sem Greenpeace maður að því leyti.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 1.5.2008 kl. 01:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband