Svona lagað gera ekki "alvöru" veiðimenn!!!!!

Það er númer 1, 2 og 3 hjá fólki, sem stundar veiðimennsku, að ganga vel um náttúruna.  Það munar engu fyrir menn að vera með poka undir girni og öngla með sér.  Það EIGA ALLIR að ganga um náttúruna eins og þeir ganga um heima hjá sér, myndu menn henda sígarettustubbum, girni önglum og öðru rusli á stofugólfið heima hjá sér?
mbl.is „Stórhættulegt að kasta önglum og girni"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alveg sammála. Ég er sjálfur veiðimaður og þetta er sorglegt að sjá. Það er heldur ekki í lagi að sleppa þessu í vatn eða á. Nýlegt dæmi um mann sem losaði tvo gæsaunga girni við Helluvatn. Þeirra beið dauðinn einn en það gladdi mig óumræðanlega að heyra þessa björgun. því miður er fámennur hópur svokallaðra veiðimanna sem skilja svona eftir sig. Það er engin afsökun að erfitt er að koma auga á þetta. Það er líka erfitt fyrir dýrin að sjá þetta. Ég tíni alltaf upp króka, flugur og girni og aðra aðskotahluti á veiðistað, bæði eftir mig og aðra og vona að viðkomandi hafi bara yfirsést þetta. Hvet alla veiðimenn og útivistafólk að gera hið sama. Takk fyrir.

Hafsteinn Elvar Jakobsson (IP-tala skráð) 30.7.2008 kl. 14:17

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Ég var nú alinn upp við stangaveiði, enda pabbi mikill laxveiðimaður. Ég man að hann lagði alltaf mikla áherslu á að skilja ekkert girni eða neitt eftir við árnar, enda eru veiðimenn með fullt af vösum á sínum vestum og ekkert mál að stinga þessu í þá. Hann var alltaf að tala um það að fuglar, sauðfé og önnur dýr væru í hættu ef þetta væri gert. Sama gilti hjá honum á grásleppuveiðunum, aldrei sett neitt af netaflækjum í sjóinn.

Haraldur Bjarnason, 30.7.2008 kl. 15:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband