Hvað er athugavert við það að taka verkefnum????

Það er verið að reka fyrirtæki og svo framarlega að verkefni séu lögleg og það skili sér réttu megin við núllið er sjálfsagt að taka þeim.  Það er markmið flestra fyrirtækja í einkaeign að hagnast á viðskiptum sínum og í þessu tilfelli var yfirstjórn fyrirtækisins eingöngu að fylgja eftir markmiði þess.  Ég get ekki með nokkru móti séð að þarna sé um neina frétt að ræða, fyrirtækið starfar á alþjóðlegum markaði og það hlýtur óhjákvæmilega að koma til að vopn séu flutt fyrir einhverja viðskiptavini.
mbl.is Flutti vopn til Georgíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Mér finnst það ekki frétt að íslenskt fyrirtæki skuli hafa komið við sögu en mér finnst það stórfrétt að Bandaríkjamenn skuli hafa verið að flytja vopn til Georgíu áður en óeirðir brutust út þar. Það bendir til þess að þeir hafi vitað hvað hafi verið í uppsiglingu. Enda hef ég heyrt því fleygt að Bandaríkjastjórn hafi hvatt Georgiumenn til þessa svo Rússarnir réðust inn í Georgíu og Repúblikanar geta notað það sem grýlu á kjósendur í haust: "Sko bara, kalda stríðið er ekki búið og Obama mun ekki gera neitt". Enda fór fylgi John McCain upp um fjögur prósent um leið og Rússar réðust inn í Georgíu.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 25.8.2008 kl. 20:47

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir þína athugasemd, Kristín það er alltaf gaman að fá sjónarhorn fólks sem er í návígi við hlutina.  Ég er alveg sammála þér með það að nú var "kalda stríðið" bara að "kíkja" upp á yfirborðið og svipaðar uppákomur eiga eftir að verða algengari í framtíðinni.

Jóhann Elíasson, 25.8.2008 kl. 20:57

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Það eru samsæriskenningar á báða bóga um þetta georgíudæmi.  Eru Rússarnir að hræða nágranna sína frá NATÓ?  Eða er einhver í USA nógu vitlaus til að starta stríði við þá?

Veljið bara þá sem gerir ykkur ánægð, eða gerið eins og ég: bíðið.

Ásgrímur Hartmannsson, 25.8.2008 kl. 21:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband