Loksins!!!!!!!!

Á að standa við stóru orðin.  Hann hefur talað nokkuð mikið um þetta en núna loksins lætur hann verða af því að láta rannsaka málið en  svo er hvort eitthvað verði gert í málunum það er svo önnur saga.
mbl.is Skoðar verðlag á eldsneyti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Rúnar Einarsson

Hvað ef menn komast nú að því að verðið sé "eðlilegt" miðað við þróun á heimsmarkaði og verðbólgu ásamt tilheyrandi aukningu rekstrarkostnaðar hérna heima?

Mér finnst þessi bloggfærsla áhugavert innlegg inn í umræðuna.

Það kemur að því að við þurfum að fara að leita að öðrum orkulindum og öðrum leiðum til að sjá um samgöngur á Íslandi.  Eflaust breyta menn ekki venjum sínum og væntingum fyrr en verðið hækkar talsvert meira, en ég er ansi hræddur um að þeir sem bindi vonir við að eitthvað samsæri finnist og vondu kallarnir verði neyddir til að hætta að "okra" eigi eftir að verða fyrir vonbrigðum, þegar til lengri tíma er litið.

Bjarni Rúnar Einarsson, 28.8.2008 kl. 15:58

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ef útkoman úr þessari skoðun verður sú að allt hafi verið með eðlilegum hætti í verðlagi á eldsneyti þá slær þessi rannsókn á þær "háværu" raddir sem halda hinu gagnstæða fram og því ætti þessi rannsókn aðeins að vera af hinu góða.

Ég á nú ekki von á því að margir bindi vonir við það að eitthvað samsæri sé í gangi en að mínu mati er það gott fyrir alla aðila að þessi rannsókn fari fram.  Ég viðurkenni alveg að mér hefur fundist eldsneytisverðið fylgja heimsmarkaðsverðinu mun "betur" þegar um hækkanir er að ræða heldur en lækkanir.

Jóhann Elíasson, 28.8.2008 kl. 16:17

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er rétt Jóhann, það er alltaf hækkað strax, en það er ekki lækkað, því þá þarf að bíða eftir því hvernig málin þróast.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.8.2008 kl. 11:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband