Hvað er um að vera?

Hvernig stendur eiginlega á því að maðurinn skuli þurfa að verða sér úti um vélar og tæki, sem henta til þeirra starfa sem hann þarf að inna af hendi, á fjármögnunarleigu?  Í mínum huga er það algjört lágmark að honum séu sköffuð tæki og vélar, sem hann þarf til að sinna sínum störfum, en hann sjái svo um endurnýjun þeirra.  En sé rétt farið með , í fréttinni, að umsaminn frestur hafi ekki verið útrunninn, eru þessi vinnubrögð alveg með ólíkindum og bera þess vott að viðskiptasiðferðið hjá viðkomandi lánadrottni sé ekki á mjög háu plani.
mbl.is Lamaður bóndi sviptur sérbúnum vélum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Hann hefði betur setið heima á öryrkjabótum. Brynja minntist á söfnun. hér: http://brynja.blog.is/blog/brynja/entry/629114/

Villi Asgeirsson, 30.8.2008 kl. 11:52

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það hefur farið fram söfnun af minna tilefni en persónulega finnst mér söfnun við svona aðstæður niðurlægjandi og þá sérstaklega fyrir okkur sem segjumst vera svo rík, við getum ekki séð til þess að ALLIR þegnar okkar "ríka" þjófélags lifi mannsæmandi lífi.

Jóhann Elíasson, 30.8.2008 kl. 11:59

3 Smámynd: Villi Asgeirsson

Eitthvað verður að gera ef löffararnir vilja bara fara í hart.

Villi Asgeirsson, 30.8.2008 kl. 12:22

4 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Jóhann, er þetta ekki nýja stefnan í okkar þjóðfélagi að níðast á þeim sem minst meiga sín?

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 1.9.2008 kl. 23:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband