Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott........

Á meðan krónuræfillinn er við lýði getum við alltaf átt von á þessu og ég tala nú ekki um á meðan þessi duglausa ríkisstjórn er við völd og "hryðjuverkamennirnir" í Seðlabankanum geta valsað um með sína handónýtu peningastefnu.  Er það kannski markmiðið að fá sem flesta ferðamenn til landsins og gera út á arfaslakt gengi, er það næsta "stóriðja"?
mbl.is Ísland á hálfvirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll kæri félagi.Tek undir með þér.Maður er steinhættur að skilja í hvað stefnir á þessu landi.Kært kvaddur

Ólafur Ragnarsson, 26.12.2008 kl. 14:02

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála ykkur, þetta er með ólíkindum, og eitthvað verður að gera til að laga ástandið.  Við verðum að krefjast þess að ráðamenn fari að taka á vandanum, ekki seinna en strax.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.12.2008 kl. 15:06

3 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Blessaður
Mér finnt þetta nú bera frekar merki um auglýsingamennsku nútímans það er allt notað til að skapa veltu og aura í kassan Annars er eitt sem að ég er að velta fyrir mér nú hefur Japanska jenið verið laggengis mynt síðan eg man eftir mer og Japan var eitt af meiri iðnveldunum er kannski allt of mikið lagt upp úr genginu kannski er bara allt í lagi að hafa það lágt. Ég held að það sé verið að vinna í þessum málum Ásthildur en ég held að það vanti tvennt.
1 . Hugrekkið til að gera það sem þarf núna strax taka bara skellin núna og þá liggur leiðin bara upp á við.
2. Vilja til að grafa upp og leita að því hvað varð um féð sumt af því hefur rýrnað í virði en það á að vera hægt að rekja þetta allt og birta það opinberlega við eigum kröfu á því að vita hvað við eigum að borga Ef ekki ættum við einfaldlega að neita að greiða skatta þ

Jón Aðalsteinn Jónsson, 26.12.2008 kl. 15:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband