Áður en ríkisstjórnin er komin á er SKEMMDARVERKUM lofað!!!!!!

Kolbrún Halldórsdóttir hefur "lofað" því, verði VG í ríkisstjórn sem allt bendir til að verði illu heilli fyrir þjóðina, að ákvörðun um hvalveiðar verði ENDURSKOÐUÐ.  Endurskoðun í þessu tilfelli er áframhaldandi bann við hvalveiðum, sem þýðir ekkert annað en STÓRTAP á gjaldeyristekjum fyrir okkur Íslendinga.  Svo heldur svona lið að það sé að vinna að hagsmunamálum þjóðarinnar.  Er ekki neinn möguleiki að draga svona kálfa fyrir dómstóla fyrir landráð?
mbl.is Hvalveiðum ætlað að tefja ESB-ferli?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Það er auðvitað spurning hver vinnur hér skemmdarverk. Er arðvænlegt að veiða hvali þegar markaðurinn fyrir afurðar er ótryggur? Þegar ímynd okkar ber skaða í útlöndum og við væntanlega spillum fyrir sölu fisksins til útlanda?

Ég er sannfærð um að við töpum stórt á stunda þessum glórulausum hvalveiðum.

Úrsúla Jünemann, 28.1.2009 kl. 12:23

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Úrsúla, Japanir hafa gefið það út að þeir ætli að kaupa allt hvalkjöt sem verður í boði og greiða fyrir það gott verð.  Þetta hafa verið ykkar hvalverndarsinna helstu rök undanfarin ár, að ekki sé markaður fyrir hvalkjöt.  Nú eru þau rök farin hverju verður borið við næst?

Jóhann Elíasson, 28.1.2009 kl. 12:29

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hvalverndunarsinnar hafa líka beitt fyrir sig þeim rökum að ferðamenn hætti að koma til Íslands. ÞEIR HAFA EKKERT sem styður þá kenningu. Ekki vísa þeir til Noregs, svo mikið er víst.

Gunnar Th. Gunnarsson, 28.1.2009 kl. 12:46

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Gunnar, þakka þér fyrir innleggið.  Þetta rannsóknarverkefni, sem ég vitnaði til í athugasemd hjá þér áðan, fólst meðal  annars í því að athuga hvort hvalveiðar hefðu áhrif á hvalaskoðanir.  Niðurstaðan varð sú að EKKI VAR HÆGT AÐ SJÁ ÞESS NEIN MERKI.

Jóhann Elíasson, 28.1.2009 kl. 12:53

5 Smámynd: ThoR-E

Auðvitað á að nýta þessa auðlind.

Þeir sem annað segja, sérstaklega á meðan ástandið er svona, eru vægast sagt veruleikafirrtir.

Ekki nóg með að ein svona skepna éti meira en heill frystitogari veiðir að þá þurfum við á öllum auðlindum okkar að halda á meðan skuldir ríkissins eru greiddar niður.

Þeir sem eru að reyna að standa í vegi fyrir því að fólk sæki sér lífbjörg ættu að skammast sín.

ThoR-E, 28.1.2009 kl. 13:46

6 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Nú stöndum vér saman félagi Jói og engin ágreiningur styð skoðun þin heils hugar og myndi örugglega mæta á Austurvöll þessari skoðun til stuðnings.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 28.1.2009 kl. 13:57

7 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Það er skilda okkar að nýta allar fisktegundir í sjónum og Hvalinn þar með líka , annars er hætt við því að ójafnvægi skapist í hafinu . kv .

Georg Eiður Arnarson, 28.1.2009 kl. 16:53

8 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Auðvitað nýtum við hvalinn annað væri fásinna.

Sigurður Þórðarson, 28.1.2009 kl. 23:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband