Er STERK starfandi ríkisstjórn í landinu núna???????

Jóhanna Sigurðardóttir minnti á þetta í sjónvarpsfréttum á RÚV í kvöld.  Er konan á einhverjum sterkum lyfjum eða er hún virkilega svo veruleikafirrt að hún sjái það ekki, að á meðan vinstri flokkarnir karpa um ESB og fleiri smámál, er landið stjórnlaust?  Ég hef nú ekki getað séð betur en að "flestir" ráðherrar "gömlu" ríkisstjórnarinnar taki þátt í þessu stjórnarmyndunarkarpi, sem hefur tekið ALLT OF LANGAN TÍMA, ekki stjórna þeir landinu mikið á meðan.  Ef á að taka sér EINA VIKU í viðbót til þess að ná saman er ekki mikið verið að hugsa um þjóðarhag heldur hag þessara TVEGGJA stjórnmálaflokka.  Gefur þessi vandræðagangur ekki fyrirheit um það sem á eftir kemur?
mbl.is Ný ríkisstjórn um næstu helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Jóhanna missir heilgaleikan fljótt og yfirgefur sviðið sem einn óvinsælasti stjórnmálamaður sem við höfum átt hún hefur ekki það sem til þarf til að verjast þeirri ógnarreiði sem er að rísa meðal landsmanna. Eiginlega synd en spái því að hún verði óvinsælli en Davíð þegar upp verður staðið

Jón Aðalsteinn Jónsson, 3.5.2009 kl. 20:07

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Það var hálf sjokkerandi að sjá og ég tala nú ekki um að heyra hana í sjónvarpsfréttum í kvöld.  Ég veit ekki hvort það var af reiði eða hvort hún var sjokkeruð yfir ástandi heimilanna og getuleysi hennar sjálfrar að hún mátti vart mæla án þess að rödd hennar titraði og hún átti í erfiðleikum með að tjá hótanir sýnar í garð þeirra sem ekki geta borgað af lánum sínum.

Tómas Ibsen Halldórsson, 3.5.2009 kl. 20:39

3 Smámynd: corvus corax

Jóhanna og Gylfi geta hótað okkur eins og þeim sýnist! Látum þau mæta okkur á Austurvelli ef þau þora! Jóhanna og Steingrímur eru langt komin með að svíkja okkur um allt sem þau lofuðu fyrir örfáum dögum ...kortér fyrir kosningar! Gagnsæi hvað? Standa vörð um heimilin hvað? Uppræta spillingu hvað? Það er ótrúlegt að það eigi ekkert að gera í málunum annað en að bíða eina viku enn ...eða tvær ...eða þrjár! Svo fullyrðir Jóhanna í fjölmiðlum í dag að það sé búið að gera fullt af hlutum fyrir heimilin og launafólk en það eigi bara eftir að koma í ljós! Hverslags helvítis þvaður er þetta í henni? Það er ótrúlega stutt á milli ástar og haturs ...og Jóhanna hefur notið ástar þjóðarinnar um hríð, en nú er þolinmæði almennings þrotin!

corvus corax, 3.5.2009 kl. 21:35

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Jóhanna hefur alltaf verið reið/aldrei annað,og man maður hana frá fyrstu tíð/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 3.5.2009 kl. 22:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband