Enn reynt að LJÚGA til um mikilvægi þess að Icesave-samningar væru gerðir!!!!

Steingrímur Joð, "yfirlandráðamaður" og ómerkingur landsins númer eitt reynir að "réttlæta" landráð sín og Svavars Gestssonar með því að segja að Icesave-samkomulagið "liðki" fyrir rannsókn á bankahruninu í haust.  Það eru engin takmörk fyrir því sem hann gerir til þess að bjarga pólitísku skinni sínu.


mbl.is Ekki tilefni til að kyrrsetja eignir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Samkvæmt kastljósþættinum í gær og viðtalið við Evu Joly er ljóst að þetta er svört lygi frá A til Ö.  Ekkert minna en það.  Það vantar peninga og mannskap frá stjórnvöldum á Íslandi.  Ég er að verða reið yfir þessu öllu.  Burtu með pólitíkusana og við heimtum utanþingsstjórn og það strax!!!

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.6.2009 kl. 09:25

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hún undirstrikaði það sem mig hafði alltaf grunað ÞAÐ STÓÐ ALDREI TIL AÐ GERA NOKKURN SKAPAÐAN HLUT Í ÞESSU.

Jóhann Elíasson, 11.6.2009 kl. 09:35

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Auðvitað stóð aldrei til að gera neitt varðandi þennan hrylling, en varla er nú hægt að segja að þeir sem réðu Evu hafi verið þeirrar skoðunar? Ég get nú ekki betur séð en að verið sé að fá sér til aðstoðar erlendis frá alla þá aðstoð sem þurfa þykir, nákvæmlega eins og ég hef haldið fram að verði að gera, allt frá því í oktober.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 11.6.2009 kl. 12:25

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það er búið að ræna landið. Mér fannst merkilegt að fylgjast með viðbrögðum Villa Egils kvarta yfir því að Agnes Bragadóttir tæki lífeyrissjóðina fyrir en það er búið að ræna þá og skuldsetja þjóðina í botn.

Sigurjón Þórðarson, 11.6.2009 kl. 23:19

5 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Já Sigurjón, þetta er skelfilegt, í einu orði sagt. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að stærstan hluta þeirra sérfræðinga sem þarf að ráða til að sjá inní þennan skítahaug VERÐI að sækja til útlanda. Hér hangir þessi lögfræðingahjörð öll saman í einhverjum tengslum og vinnu í kringum útrás og banka og endurskoðendum hérna, sem nota bene eru aðallega í þremur fyrirtækjum, er ENGIN grundvöllur til að treysta í rannsókn á málum?

Skrif Agnesar eru auðvitað meingölluð, mér finnst rétt hjá Villa, það er allt of mikið af hennar skrifum í einhverjum rógberastíl og ekkert til að festa hönd á. Hún verður að vera með meira til að hengja sig á og minna af kjaftasögum, þær fáum við hérna, á blogginu.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 12.6.2009 kl. 06:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband