FULLORÐINN EN ÓÞROSKAÐUR!!!!!!

Sennilega hefur "klukkan" stöðvast hjá honum þegar hann var fimm ára.  Mér er sagt að við búum í réttarríki eigum við ekki að láta dómstólana um refsinguna ekki gengur að hinir og þessir séu að taka lögin í sínar hendur.  Þó að mönnum finnist að hægt gangi að stöðva þessa útrásarvíkinga get ég ekki séð að það lagi ástandið neitt að vera með einhver skrílslæti og skemmdarverk og það lagar ekkert stöðu þeirra þúsunda fjölskyldna sem þessir menn hafa komið á vonarvöl.
mbl.is Sást skvetta málningu á húsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já kannski, eða kannski hefur ekki enn tekist að heilaþvo hann þannig að hann sé boðlegur í svefn engla klúbbinn okkar.

Það er löngu búið að aðlaga lögin handa þeim sem stela frá almenningi, einu skilyrðin er að vera í jakkafötum með bindi og "þekkja" rétta fólkið þá ertu komin í annað réttarríki eins og sést á árangrinum við að koma "lögum" yfir þetta fólk sem rændi okkur "löglega". Það er nefnilega skylda að vera siðlaus til að fá inngöngu í "réttaríki" hina útvöldu.

Eggert (IP-tala skráð) 6.8.2009 kl. 13:40

2 Smámynd: Héðinn Björnsson

Við búum ekki í réttarríki samkvæmt neinum af þeim skilgreiningum sem ég skil við slíkt. Þeir sem eru sekastir um stærstu glæpina stýra dómskerfinu og því ekki hægt að búast við neinu réttlæti þaðan. Það eina réttlæti sem hægt er að finna verður það sem við framköllum á götunni.

Héðinn Björnsson, 6.8.2009 kl. 14:14

3 Smámynd: Þorri Almennings Forni Loftski

Þú ert bjartsýnn að tala um að láta dómstólana um refsinguna. Hvar hefur þú veriðÐ Veistu ekki fyrir hverja lögrugla og réttarkerfi starfar. Það hefur aldrei verið ljósara en nú.

Trúirðu kannski lygaáróðri lögruglurnar og glæparíkisvaldsins?

Þorri Almennings Forni Loftski, 6.8.2009 kl. 14:44

4 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Ég get ekki annað en tekið undir athugasemdirnar hér fyrir ofan.

Ævar Rafn Kjartansson, 6.8.2009 kl. 14:47

5 identicon

Ég get lofað mönnum einu. EF þessir menn fá dóm þá verður hann ekki þyngri enn dómurinn yfir Árna Jónsen. Ég er bara brattur og er ekki að fara að gráta yfir þessu.

MÉR ER ANDSSKOTANS SAMA BARA!!

óli (IP-tala skráð) 6.8.2009 kl. 14:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband