HVERRA HAGSMUNA ER FJÁRMÁLARÁÐHERRA AÐ GÆTA????????

Nú segir Steingrímur Joð að það sé svigrúm fyrir FYRIRVARA.  Ég verð bara að segja alveg eins og er að ég hef aldrei heyrt NEINN tala um það að samningurinn bjóði upp á nokkurt svigrúm í þá áttina, enda hef ég aldrei vitað það að undirrituðum samningum sé hægt að breyta einhliða eftir að þeir hafa verið undirritaðir.  Með því að LJÚGA svona trekk í trekk að landsmönnum fer að læðast að manni sá grunur að hann hafi ekki hagsmuni lands og þjóðar númer eitt heldur einhverra annarra.


mbl.is Svigrúm til að setja skilyrði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Fjölnisson

IMF er algjörlega undir kontról Wall Street og fjórskipti einflokkurinn hér hefur ávallt verið í erlendri eigu og fjármálamafían kostar gögn sín í svok. kosningum í gervilýðræði. Afleiðingar þessa gjörspillta kerfis blasa við hér og á heimsvísu og hafa raunar gert áratugum saman. Núna eru hins vegar allar lygaskjóður sprungnar og því ekki hægt lengur að ljúga sig frá þessu.

Baldur Fjölnisson, 6.8.2009 kl. 19:33

2 identicon

Jóhann, ég hef verið að kommentera víða í dag einmitt um þessa fyrirvara.

Eins og þú hef ég aldrei vitað að nein ákvæði væru í Icesavesamningnum um að setja megi fyrirvara og skilyrði við samþykkt. Annað hvort er samningurinn samykktur eða honum er hafnað. Ég efa ekki að þannig líta Bretar og Hollendingar á málið enda sagði Hollendingurinn sem gaf samþykki við birtingu Icesavesamningsins skýrt að þó birta megi samninginn þá sé það ekki til að hefja aftur upp samingaviðræður.

Staðan í dag gengur aðeins út á eitt: fá samþykki Alþingis. Þangað til ég sé sannfærandi rök löglærðra manna, og viðurkennigu viðsemjenda okkar um annað, þá tel ég fyrirvara marklausa.

Kristján Gunnarsson (IP-tala skráð) 6.8.2009 kl. 19:57

3 Smámynd: Jón Sveinsson

Sæll Jóhann í mínum huga hefur þetta aldrei verið samningur bara pappír sem einhver kjánar skrifuðu undir,strax í upphafi vissu menn hvað þetta var fáræðarlegt það átti að senda nýa nefnd um leið til baka og semja en ekki koma með einstefnuplagg eins og gert var.

Jón Sveinsson, 6.8.2009 kl. 20:03

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Kristján, ég þakka þér góðar athugasemdir nú veit ég að það eru mun fleiri en ég sem hafa efasemdir um þessa fyrirvara.

Jóhann Elíasson, 6.8.2009 kl. 20:05

5 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Það eru greinilega fleiri að hallast að þeirri skoðun að þessi dæmalausi samningur sé ekkert annað en vegvísir um þá gulrót sem hangir á spýtunni, m.a. mögulega upptöku og skuldalúkningu við samþykkt inngöngu í ESB. Þessi setning mín er að sjálfsögðu ekkert annað en lýsing á landráðum og ég ætla rétt að vona samvirkni ríkisstjórnarinnar, gagnvart niðurlendingum og bretum, fari að ljúka.

Það er jafnframt ljóst að sú kröftuga umræða sem farið hefur fram eftir að allar brýr voru brenndar að baki þann 27. júlí er heldur betur farinn að hitta stjórnvöld á horninu.

Að auki þá finnst mér heimskulegt hjá núverandi stjórnvöldum að benda á eitthvað sem er búið og gert til þess að komast hjá því að ræða um hvað næst er á döfinni.

Sindri Karl Sigurðsson, 6.8.2009 kl. 20:20

6 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Landið er greinilega gjaldþrota og raunar hið fyrsta í röð þjóðagjaldþrota sem munu leiða af ótrúlegri glæpastarfsemi alþjóðlegra fjármálaafla sem hafa lengi vel starfað óáreitt í skjóli keyptra pólitískra eigna sinna og ruslveitna, þar jafn sem hér. Þessi glæpamafía reynir að ljúga sig áfram fram í rauðan dauðann og núna snýst spinnið mest um að skapa ekki fordæmi heldur að mjólka draslið áfram eins lengi og hægt  er hversu lengi sem það gengur. Glóbalt séð skiptir gjaldþrot okkar litlu en þrotabú Bandaríkjanna og Bretlands skapa raunverulega ógn. Mafían fórnar því hiklaust litlum hagsmunum fyrir stærri eins og hún hefur ávallt gert.

Baldur Fjölnisson, 6.8.2009 kl. 20:33

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ætli sé hægt að rifta þessum samningi ef okkur tekst að koma þessu liði frá, og byrja upp á nýtt.  Þetta er ekkert annað en landráð.  Og um það hljóta að gilda ákveðin lög á alþjóða vettvangi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.8.2009 kl. 21:28

8 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Er ekki Reykásinn þarna á ferðinni? Hingað til hefur ekkert mátt hrófla við þessum samningi, en nú er það alltíeinu hægt! Steingrímur er að átta sig á því að félagi Svavar hefur samið af sér . . .

Ágúst Ásgeirsson, 7.8.2009 kl. 09:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband