HVAÐA "FYRIRVARAR" HALDA??????

Hún ríður ekki við einteyming vitleysan sem hrjáir þetta "vinstra"dóti sem heldur að það sé að stjórna landinu núna.  Jarðfræðingurinn gagnslausi (hann virðist ekki enn vera búinn að átta sig á því hversu vanhæfur hann er) reynir og reynir af veikum mætti að koma þessum Ices(L)ave-samningi í gegn og hann vill bara ekki viðurkenna það opinberlega að annar kommafélagi hafi bara verið með allt niður um sig og hreinlega samið af sér.  Hann nýtur dyggrar aðstoðar formanns fjárlaganefndar og eitthvað var nú "roð og beinlausa" hræið þeirra í VG að láta heyra frá sér, það kom nú reyndar ekkert af viti frá honum enda ekki við því að  búast.  Eitthvað eru þeir orðnir þreyttir í fjárlaganefnd enda er erfitt fyrir "meirihluta" hennar að standa í því að "verja" þessa vitleysu í meira en tvo mánuði.


mbl.is Efast um alvöru þingmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Samningurinn er arfleið af skítamáli sem Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn kölluðu yfir okkur. Við skulum ekki gleyma því.

Nú þarf á stjórn að halda sem sér til lands en ekki villuráfandi þingmönnum sem keppast við að kynna sjálfan sig. Það skortir nokkuð á það enda er VG stjórnlaust að mestu. Formaður fjárlaganefndar er maður sem virðist vera jarðbundinn og vinna vel og skynsamlega. Hann er einfaldlega að leita að lausn í mjög erfiðu máli. Það sjá allir sem eru ekki svo blindir af einhverri flokkshollustu. Hvort það tekst veit enginn en lausnina þarf að finna. Við getum kannski bara einkavætt Icesave. Það var víst svo þjóðhagslega hagkvæmt.

Vonandi eru fleiri en formaður fjárlaganefndar á þingi sem hafa einhvern dug að leita lausna fyrir almenning.

sigurður (IP-tala skráð) 10.8.2009 kl. 15:32

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er mesti misskilningur Sigurður, Ices(L)ave er tilkomið þegar Björgvin G. Sigurðsson var Viðskiptaráðherra, þannig að þetta er frá stjórnartíð Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks.  Ef þú ferð inn á vef Seðlabankans, getur þú séð hvenær MESTA aukningin varð á erlendum skuldum landsins, þessi "baggi" er nú ekki eldri en það.  Ekki hef ég getað séð það að formaður fjárlaganefndar sé "JARÐBUNDINN", það er ekki annað að sjá en hann sé SVÍNBUNDINN og BEYGÐUR.

Jóhann Elíasson, 10.8.2009 kl. 16:00

3 identicon

Upphafið er fyrr þó Björgvin hafi tekið við klúðrinu og sofið gjörsamlega á verðinum. Það er rétt.

"Jarðbundinn eða svínbundinn" fer sjálfsagt eftir hvernig menn sjá "silfrið."

Hef það eftir mörgum aðilum úr ólíkum flokkum að Guðbjartur sé einn öflugasti þingmaðurinn okkar. Maður sem er ekki að auglýsa sjálfan sig heldur vinnur af samviskusemi og dugnaði. Slíkt kann ég að meta. Hann er síðan bundinn af sinni sannfæringu og það getur enginn sett út á það. Hef fylgst með manninum síðan hann tók við þingstjórn á erfiðum tímum. Virðist vera traustur náungi.Nú skiptir máli að á þingi séu menn sem hugsa um heildarhagsmuni þjóðarinnar en sé ekki í einhverju "athyglissýkiskasti". Við erum vonandi sammála um það. Góðar stundir.

sigurður (IP-tala skráð) 10.8.2009 kl. 16:16

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Upphafið að Ices(L)ave var EKKI fyrr heldur nákvæmlega á tíma Björgvins G. það er ekki HÆGT að þræta fyrir það.  Skoðaðu það sem þér var bent á maður. Samfylkingin VERÐUR að fara að viðurkenna að þeir eiga hlut af þeim skít sem er verið að moka upp núna.  Ekki ætla ég að deila um það að Guðbjartur sé vænsti maður enda þekki ég ekki manninn og er ekki í neinni aðstöðu til að efast um mannkosti hans.

Jóhann Elíasson, 10.8.2009 kl. 16:26

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Björn ekki vera að blogga þegar þú ert fullur eða á einhverju öðru.

Jóhann Elíasson, 10.8.2009 kl. 16:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband