SUMIR KUNNA EKKI AÐ SKAMMAST SÍN!!!!!!!!

Að ráðherra Samfylkingarinnar tali um það að Einar K. Guðfinnsson hafi EKKI haft áhrif á útþenslu bankanna, er alveg fáránlegt að heyra frá honum, því það var ráðherra Samfylkingarinnar, Björgvin G. Sigurðsson, sem hafði þessi mál á sinni könnu en eins og Árni Páll kom að BRÁSThann algjörlega og ekki verður um það deilt að Ices(L)ave kom undir á hans "VAKT".  Ekki hef ég dálæti á Einari  og mun aldrei hafa en það er lágmarkskrafa að ráðherrar ríkisstjórnarinnar fari með rétt mál svona öðru hvoru.  Svo var annað í máli Árna Páls, sem þarf að skoðast, en heldur maðurinn það (er hann virkilega svo tómur í toppstykkinu) að vextir hér á landi LÆKKIvið það eitt að samþykkja Ices(L)ave?  Samfylkingarmenn og alhörðustu Evrópusinnar hafa haldið þessu fram ef við göngum í ESB en núna er Ices(L)ave komið í hópinn.  Hvað verður í þeirra málflutningi næst?  Ef verður gengið að öllu sem Samfylkingarmenn fara fram á endar með því að VEXTIR hér á landi verða NEIKVÆÐIR og það verður algjör lúxus að búa hér fyrir utan það að það verður búið að selja okkur í ÁNAUÐ, skuldir þjóðarinnar verða óbærilegar, landbúnaður og sjávarútvegur í rúst, mjög fáir verða eftir á landinu og Samfylkingin verður við völd.  Glæsileg framtíð sem blasir við okkur???
mbl.is Klappstýra hrunsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Óskar, ekki reyna að bera blak af þætti Björgvins í Ice(L)ave-málinu, ef þú ferð inná vef Seðlabankans þá sérðu vel hvenær Ices(L)ave varð til.  Það er alveg merkilegt og í sjálfu sér rannsóknarefni hversu Samfylkingin gengur hart fram í því að fyrra sig ALLRI ábyrgð á hruninu og vill bara "gleyma" þessum 18 mánuðum sem hún var í ríkisstjórn FYRIR hrun.  þessi tölfræði þín er afskaplega sérstök svo ekki sé nú meira sagt.

Jóhann Elíasson, 13.8.2009 kl. 17:56

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú þarft nú ekki að segja mér að Sjálfstæðisflokkurinn var í ríkisstjórn með Samfylkingunni þegar allt hrundi og ég frábið mér það að vera kallaður Sjálfstæðismaður þó ég sé EKKI Samfylkingarmaður og verði aldrei þá er ég ekki Sjálfstæðismaður og verð aldrei.  Söguskíring þín er afskaplega athyglisverð en ég efa að hún verði nokkurn tíma sett í sögubækurnar svo fráleit er hún.

Jóhann Elíasson, 13.8.2009 kl. 18:26

3 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Það er verið að tala um stýrivexti SÍ. Auðvitað lækka þeir þegar efnahagsstefnana skýrist.

Páll Geir Bjarnason, 14.8.2009 kl. 00:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband