EKKI AÐ FURÐA AÐ LÍTIÐ SÉ UM HÁR Á HAUSNUM Á FJÁRMÁLARÁÐERRA.....

Því hann virðist ekki gera neitt annað en að berja hausnum í steininn.  Það gefur náttúrulega auga leið að þessir "fyrirvarar" eru sambærilegir við það að FELLA samninginn.  Það er ekki lagalega hægt að gera EINHLIÐA fyrirvara við undirritaðan SAMNING MILLI TVEGGJA AÐILA (reyndar eru þeir þrír í þessi tilfelli), ef Fjármálaráðherra heldur annað þarf hann að kynna sér samningarétt, er það alveg klárt að það verður að semja aftur.
mbl.is Eiga að viðurkenna staðreyndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Woot, þú hefur farið "veggmegin" framúr í morgun pistillinn fjallaði ekkert um þetta atriði.

Jóhann Elíasson, 17.8.2009 kl. 16:30

2 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Sæll Jóhann,

Venjulega eru samningar sem varða ríkisfjármál að einhverju leyti gerðir með fyrirvara um samþykki Alþingis enda er það Alþingi sem ræður.  IceSave er þar engin undantekning.  Alþingi hefur gert breytingar á samningnum og ég er nú nokkuð viss um að bæði Bretar og Hollendingar vita hvað það þýðir - að Alþingi geti gert breytingar á samningnum í meðförum áður en hann er samþykktur.  Nú er boltin hjá Bretum og Hollendingum og ég bíð eftir að sjá hver verða viðbrögð ríkisstjórna þessara landa við þeim breytingartillögum sem Alþingi samþykkti.  Það verður hugsanlega að setjast aftur að samingaborðinu til þess að ganga frá þeim breytingum sem Alþingi setti eða, ef Bretar og Hollendingar neita að viðurkenna samninginn, þá þarf vissulega að semja upp á nýtt, en þá verða forsendur Alþingis, Breta og Hollendinga betur þekktar.  Mér finnst að menn ættu að bíða eftir viðbrögðum samningsaðila við þessum breytingum áður en menn fara að slá því föstu að það þurfi að semja upp á nýtt. 

Kveðja,

Arnór Baldvinsson, 17.8.2009 kl. 19:33

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Arnór, mér er fullkunnugt um hvernig samningar um ríkisfjármál fara fram og einnig þekki ég það vel að undirrituðum samningi milli tveggja þjóða verður ALLS EKKI breytt með fyrirvörum, menn verða að vera ansi ILLA að sér í ALÞJÓÐARÉTTI til að ímynda sér annað.  Hver finnst þér vera rökin fyrir því að BÍÐA með að setja það fram að þurfi að semja upp á nýtt?

Jóhann Elíasson, 17.8.2009 kl. 21:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband