GÓÐAR FRÉTTIR MITT Í ÖLLU VOLÆÐINU, ÞÁ ER LAG!!!!!!!!!!!!!!!

En ef maður skoðar málin  vekur þetta enga furðu, það eru jú gjaldeyrishöft í gangi og það er takmarkað það sem almenningur "getur fjárfest".  Svo verður sumum hugsað til hvað verður um megnið af þessum peningum.  Ekki virðist vera nokkur möguleiki fyrir fyrirtæki eða almenning að fá lán, bankarnir setja þannig  kröfur að ekki er nokkur leið að uppfylla þær og sagt er að bankarnir séu hreinlega að "springa" það séu að hlaðast inn peningar svo ekki verði við ráðið.  Hér er eitt ráð:  Hvernig væri  að kaupa GJALDEYRI fyrir þessa peninga, leggja inn í Seðlabankann og freista þess að "STYRKJA" krónuna?  Eða hafa menn EKKI TRÚ á því að svoleiðis lagað hafi nokkra þýðingu?  Það sé betra að nota lánsfé í svoleiðis tilraunastarfsemi, sem óvíst er að skili nokkrum árangri?  Enn virðist það vera yfirlýst markmið Seðlabankans að ganga frá atvinnulífinu hér á landi dauðu með vaxtaokri og ekkert er í spilunum þess efnis að það eigi að LÆKKA stýrivextina.  Við höfum séð stýrivextina "æða" uppávið og alltaf er viðkvæðið að þeir séu svona háir til að hafa áhrif á verðbólguna en alltaf hækkar verðbólgan og nú er farið að bera því við að það sé verið að "vernda gengi" krónunnar.  Hver verður afsökunin fyrir næstu stýrivaxtahækkun?
mbl.is Nærri 40 milljarða afgangur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

Viðskiptajöfnuður var neikvæður um 50 milljarða fyrsta ársfjórðung þessa árs.  Það þýðir að það er enn halli á viðskiptum við útlönd og því ekki til neinn gjaldeyrir til þess að styrkja krónuna.

Vöruskipti eru aðeins munur á vöruskiptum við útlönd.  Þegar búið er að taka tillit til þjónustujafnaðar, þáttatekna, vaxta, afborgana og fleira þess háttar þá höfum við viðskiptajöfnuð.

Lúðvík Júlíusson, 31.8.2009 kl. 13:00

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú þarft nú ekki að fræða mig um muninn á vöruskiptajöfnuði og viðskiptajöfnuði en þakka þér samt fyrir.  Þú virðist ekki fylgjast mikið með, það komu fréttir af því, um daginn, að bankarnir væru hreinlega að springa það væru til svo miklir peningar hvað mælir á móti því að þeir séu notaðir til að "styrkja" krónuna ef ráðamenn þjóðarinnar telja að það sé hægt?

Jóhann Elíasson, 31.8.2009 kl. 13:33

3 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

Ef við ætlum að styrkja krónuna með inngripum í gjaldeyrismarkað þá er það gert með því að kaupa krónur fyrir gjaldeyri en ekki öfugt.  Ef þú myndir nota allar krónurnar sem eru í bönkunum til að kaupa gjaldeyri þá myndi krónan falla.

Ég er líka hlyntur því að leyfa fólki að spara erlendan gjaldeyri en til þess að það sé mögulegt þá þarf krónan að lækka enn meira.  Það myndi hins vegar hafa góð áhrif á þjóðarbúið til lengri tíma að leyfa Íslendingum að spara gjaldeyri í stað þess að mega bara nota hann í innflutning.

Lúðvík Júlíusson, 31.8.2009 kl. 13:49

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Lúðvík, var einhver að tala um alla myntina?  Ef eitthvað er ALVARLEGT í Íslenskri efnahagsstjórnun, þá er það að ALDREI hefur verið hvatt til sparnaðar, (nú reka einhverjir upp harmakvein og benda á lífeyrissjóðina það er rétt að upphaflega voru þeir sparnaðarform en þeir voru gerðir að "bákni" sem átt upp sparnað landsmanna og þetta "bákn" gerir nú ekki mikið meira en að "fæða" sjálft sig og allt bendir til þess að þetta lífeyrissjóðakerfi hrynji innan skamms) það er enginn HVATI til SPARNAÐAR í okkar hagkerfi, hvorki til að spara gjaldeyri eða krónur, þessu ÞARFað breyta og það hið fyrsta.  Mér sýndist það á skrifum þínum að um þetta atriði séum við nokkurn vegin sammála þó sjálfsagt sé blæbrigðamunur á skoðunum okkar.

Jóhann Elíasson, 31.8.2009 kl. 14:53

5 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll kæri bloggvinur, væri ekki sterkur leikur að fara að koma með eitt og eitt föstudagsgrín,  það er ekki laust við að maður sakni þess Jóhann.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 31.8.2009 kl. 20:39

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú Sigmar ég verð aðeins að reyna að hressa upp á síðuna og reyni að koma með einn "fimmaurabrandara" á föstudaginn annars er verðbólgan búin að fara svo illa með þá að þeir eru bara orðnir "þriggja aurabrandarar" núna.

Jóhann Elíasson, 31.8.2009 kl. 23:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband