ÞAÐ ERU ÝMSIR SEM ÞURFA Á ENDURMENNTUN AÐ HALDA.........

Fyrir það fyrsta er rétt á að benda á að nú er árið 2009, Berlínarmúrinn féll árið 1989 og hið miðstýrða hagkerfi ráðstjórnarríkjanna hrundi um svipað leyti, þótt vissulega hefðu myndast brestir í því og miklar sprungur, sem ekki reyndist unnt að gera við þrátt fyrir tilraunir í þá veru, mikið fyrr.  Samt sem áður vilja stjórnvöld hér á landi, með fulltyngi Seðlabanka Íslands, beita hér á landi samskonar hagstjórn og hhrundi fyrir rúmum 20 árum.  Gjaldeyrishöftin voru sett á sem liður í því að styrkja gengi krónunnar en það virðist vera nákvæmlega sama hvað er gert alltaf FELLUR gengi krónunnar, sem sýnir svo ekki verður um villst að menn eru á villigötum og það hefur bara ekkert virkað það sem hefur verið gert.  Þá eru einhverjir sem reyna aðra hluti, en ekki Íslensk stjórnvöld og Seðlabankinn því í gömlu hagfræðibókunum þeirra sem eru síðan fyrir fall Berlínarmúsins eru ekki nema þau úrræði sem nú er beitt.  Gjaldeyrishöftin áttu að styrkja gengi krónunnar, eins áður segir, en þegar og ef gjaldeyrishöftin verða afnumin, þá er óhjákvæmilegt að gengi krónunnar fer eitthvað niður á við á meðan peningaflæðið til og frá landinu er að ná jafnvægi, en jafnar sig að því loknu.  ÞVÍ ER HÆGT AÐ HALDA ÞVÍ FRAM AÐ GJALDEYRISHÖFTIN HAFI VERIÐ EIN STÓR MISTÖK OG SKAÐINN AF ÞEIM MISTÖKUM VERÐI LÁGMARKAÐUR MEÐ ÞVÍ AÐ AFNEMA ÞAU STRAX.
mbl.is Eftirlit með gjaldeyri hert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég skil ekki hvað stjórnvöld eru að spá.  Hallast að því eins og kom berlega fram í Silfrinu að þau séu ráðalaus og hugsi út og suður.  Jóhanna farin í felur og stingur höfðinu í sandinn, Steingrímur geltandi á bæjarhólnum, og allir löngu hættir að hlusta.  Ja félegt er það.  Það versta er samt að það er ekkert betra í sjónmáli því miður. Nema að ráða hreinlega sérfræðinga íslenska og erlenda til að koma ríkinu á laggirnar aftur.  Og þá þarf að huga vel að hverja maður ræður.  Það má ekki vera fólk sem tengist inn í pólitíkina á nokkurn hátt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.9.2009 kl. 11:00

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta held ég að sé besta lausnin, sem þú bendir á Ásthildur, að ráða sérfræðinga til að koma Íslandi aftur á "lappirnar" og gefa stjórnmálamönnunum bara frí, þeir gera hvort eð er ekkert af viti.

Jóhann Elíasson, 14.9.2009 kl. 11:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband