ATVINNUREKENDUR KOMA SÉR Í STJÓRNIR LÍFEYRISSJÓÐA Á FÖLSKUM FORSENDUM!!!!

Atvinnurekendur hafa komið sér í stjórnir lífeyrissjóðanna í krafti "mótframlags atvinnurekanda" til lífeyrissjóðs þess eða þeirra launamanna er hjá honum starfa.  Þessi túlkun er, að mínu mati og margra annarra, ekki rétt.  Við skulum þar af leiðandi huga að tilurð "mótframlagsins"; þannig var að atvinnurekendur voru EKKI tilbúnir í BEINAR launahækkanir og þá varð þrautalendingin sú að sett var á þetta "mótframlag í lífeyrissjóð viðkomandi starfsmanns" því er hægt að segja að atvinnurekandi hafi ALDREI greitt NEITT til lífeyrissjóðanna HELDUR SÉ "MÓTFRAMLAGIÐ" HLUTI AF LAUNAKJÖRUM VIÐKOMANDI LAUNAMANNS.  Þar af leiðandi er hægt að segja að atvinnurekendur hafi með KLÆKJUM komið sér í stjórnir lífeyrissjóðanna.
mbl.is Vilja atvinnurekendur burt úr stjórnum lífeyrissjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er alveg rétt.   Avinnurekendur eiga ekkert erindi í stjórn lífeyrissjóðanna því fyrirtækin hafa engra hagsmuna að gæta við að ávaxta fé þeirra.   Stjórn lífeyrissjóðanna á eingöngu að vera í höndum þeirra sem eiga að fá lífeyri sinn greiddan úr þeim.

Gísli Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 16.9.2009 kl. 10:18

2 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Narraði ekki Mái Lífeyrisjóð Austurlands til að setja mörg hundruð miljónir í fiskeldi í Mjóafirði ?

Gott dæmi um siðleysi Máa.

Níels A. Ársælsson., 16.9.2009 kl. 10:24

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Mikið erum við sammá þarna Jóhann, !!!!!!þetta er og verður kol ´

ólöglegt,þessu verður að breyta,hvað segja V.G. við þessa????er þetta í anda réttlætis nei og aftur nei,kveðja frá akureyri Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 16.9.2009 kl. 12:22

4 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Sammála þessu ´félagi

Jón Aðalsteinn Jónsson, 16.9.2009 kl. 22:19

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Jóhann.

Það gefur augaleið að meðan þeir sem drottna og dýrka innan verkalýðshreyfingar sem forystumenn, samþykkja þetta fyrirkomulag þá eiga þeir litla samleið með hinum almenna verkamanni á vinnumarkaði.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 17.9.2009 kl. 00:41

6 Smámynd: Hulda Haraldsdóttir

Sæll Jóhann, Ég er svo hjartanlega sammmála ég held að þetta fyrirkomulag sé einsdæmi í hinum vestræna heimi og það sem verra er að maður hefur ekki von um að hlutirnir breytist neitt í náinni framtíð enda allt stjórnkerfi lýðveldisins í lamasessi og þjóðinni blæðir.

Hulda Haraldsdóttir, 17.9.2009 kl. 04:30

7 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Algjörlega sammála þér Jóhann og ykkur hinum. Ég man líka eftir því þegar verkalýðsforustan var að róa okkur sem þóttu kauphækkanirnar litlar með því að við fengjum þennan fína lífeyrissjóð í staðinn.

Það er fyllilega kominn tími til þess að við sem eigum þessa peninga með öllum rétti, og eigum þá einir en ekki atvinnurekendur tökum völdin yfir þessum peningum. Og það verður að gerast fljótlega og áður en þetta fjárfestingafélag lífeyrissjóðanna verður komið af stað. Þá glæpamennsku með okkar peninga verður að stoppa ekki seinna en strax!!

Jón Bragi Sigurðsson, 17.9.2009 kl. 15:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband