NÚ FER AÐ LÍÐA AÐ ÞVÍ AÐ HEILÖG JÓHANNA OG STEINGRÍMUR JOÐ ÞURFI AÐ SÚPA SEYÐIÐ AF VITLEYSUNNI SEM ÞAU LÉTU ALÞINGI KOKGLEYPA.

Það var nokkuð oft búið að segja að ÞAÐ VÆRI EKKI HÆGT AÐ GERA EINHLIÐA FYRIRVARA VIÐ SAMNING SEM VÆRI BÚIÐ AÐ UNDIRRITAog nú er þetta að koma í ljós.  Bretar og Hollendingar vilja greinilega hafna þessari vitleysu á eins kurteisan máta og þeim er unnt en það virðist vera að útkoman á þessari vitleysu verði sú að þeir FELLI þetta.  Ef það lá svona mikið á að afgreiða þetta mál, hvernig stóð þá á því að Heilög Jóhanna og Steingrímur Joð töfðu þetta í hátt í þrjá mánuði þetta mikilvæga mál, hvað skyldi það hafa kostað þjóðina?


mbl.is Hugmyndir Breta og Hollendinga kynntar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Að sjálfsögðu er þetta samkomulagsatriði.  Varla datt þér í hug að við gætum bara stillt þeim upp við vegg þegar allur heimurinn er á þeirra bandi?

Óskar (IP-tala skráð) 17.9.2009 kl. 16:16

2 Smámynd: Fannar frá Rifi

allur heimurinn er ekkert á þeirra bandi. hvurslags lyga kjaftæði er í þér Óskar. þetta er bara einfaldlega gamaldags nýlendu kúgun. Bretar náðu fótfestu og í kjólfarið innlimuðu Egyptaland inn í Breskaheimsveldið með nánast nákvæmega sama hætti og nú er verið að beita okkur.

Fannar frá Rifi, 17.9.2009 kl. 16:22

3 identicon

Fannar fylgist þú ekkert með fréttum ? AGS neitar allri fyrirgreiðslu nema við klárum þetta mál.  VINAÞJÓÐIR OKKAR NEITA OKKUR LÍKA UM AÐSTOÐ!  Hvað segir þetta þér?

Óskar (IP-tala skráð) 17.9.2009 kl. 16:43

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Óskar, hefur þú getað gert fyrirvara við einhverja gerða samninga?  Allur heimurinn á þeirra bandi? hverslags kjaftæði er þetta eiginlega????  Þessir fyrirvarar eru ekkert samkomulagsatriði ef þú heldur það ertu alveg jafn barnalegur og Heilög Jóhanna og Steingrímur Joð.  Það eina sem hægt var að gera af viti var að FELLA þennan Ices(L)ave-samning og þar með ríkisábyrgðina og semja upp á nýtt en Heilög Jóhanna var hrædd um að það hefði í för með sér neikvæðar afleiðingar fyrir ESB-umsóknina og því var farin sú leið að þvæla málinu til ómælds skaða fyrir Íslenska  þjóð.

Jóhann Elíasson, 17.9.2009 kl. 16:48

5 Smámynd: Fannar frá Rifi

AGS og Alþjóðabankinn eru stjórntæki USA og gömlu evrópsku nýlenduveldanna. heldurðu að það sé einhver tilviljun að öll ríki utan vestur evrópu sem fengið hafa lán hjá annari hvorri stofnunni hafi farið verr út úr því heldur en að gera ekki neitt?

AGS gerir bara það sem stjórnendurnir segja. hverjir stjórna? Bretar, Frakkar, Hollendingar, etc. etc. gömlu evrópsku nýlenduveldin. 

Fannar frá Rifi, 17.9.2009 kl. 17:46

6 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Það er skeð að þeir samþykkja ekki!!!!Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 17.9.2009 kl. 18:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband