ENN OG AFTUR MÁ HEILÖG JÓHANNA EKKI TIL ÞESS HUGSA AÐ STYGGJA BRETA OG HOLLENDINGA......

Og samþykkir allar þeirra kröfur eins og kúgaður og barinn hundur Því það má ekki til þess hugsa að "nokkuð trufli umsóknina í ESB".  Hún virðist tilbúin til hvaða LANDRÁÐA sem er fyrir þetta hugðarefni sitt.  Þeir sem eru á þingi fyrir Landráðafylkinguna virðast vera algjörlega viljalaus verkfæri Heilagrar Jóhönnu og gera bara það sem hún segir þeim að gera. Þessir aumingjar þora örugglega ekki að fara á klósettið, án þess að fá leyfi , hjá henni fyrst.
mbl.is Breyttur hagvaxtarfyrirvari getur valdið hærri greiðslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æji, hvað ég hlakka til þegar sagan fær að dæma um þetta. Hún mun segja það sem allir með hundsvit á efnahagsmálum vita að það er ekkert val að borga þetta. Ef við borgum þetta ekki, þá verða engar frekari erlendar fjárfestingar á Íslandi yfirhöfuð. Afleiðingarnar af því er ekki hægt að ýkja.

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 27.10.2009 kl. 13:13

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ertu svona mikill Landráðafylkingarmaður Helgi eða er eitthvað annað að hrjá þig?  Hver segir að ef við borgum ekki að allar erlendar fjárfestingar stöðvist og hvaðan er það komið að við höfum ekkert val? Voru það ekki ein af rökunum fyrir einkavæðingu bankanna, á sínum tíma, að ríkið bæri þá ekki ábyrgð á gjörðum þeirra?  Annars fjallaði þessi færsla mín meira um það hvað Heilög Jóhanna og hennar lið er tilbúið að ganga langt til þess að umsóknin í ESB skaðist ekki og þar spila Bretar og Hollendingar stórt hlutverk.

Jóhann Elíasson, 27.10.2009 kl. 15:42

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Einhvernveginn hef ég grun um að það sé ekki Jóhanna sem stendur þarna á bak við, heldur sé hún notuð sem skjöldur.  Og lætur sig hafa það.  Það er sameiginleg ósk Samfylkingarinnar að troða okkur inn í ESB með góðu eða illu.  Af hvaða völdum sem það annars er.  Ég veit að þeir sem þar ráða taka einstaklinga sem hafa völd og bjóða þeim allskonar fínar stöður í Brussel.  Allavega hafa þeir gert það í öðrum löndum, svo af hverju ekki hér.  Þessi endalausa þrautarganga okkar í hjólför ESB er að mínu mati óþolandi undirlægjuháttur og minnimáttarkennt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.10.2009 kl. 11:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband