FLEIRI AÐ GERA SÉR GREIN FYRIR HVERS KONAR "KJAFTÆÐI" ER Í GANGI VARÐANDI LOFTSLAGSMÁLIN

Og blessað barnið tekur þessum dómsdagsspám, sem er búið að ljúga hana fulla með, mjög alvarleg. En ég set stórt spurningamerki við það að verið sé að hræða líftóruna úr krakkagreyjunum sem koma til með að erfa heiminn og jafnvel eru þau farin að trúa því að það sé of seint að aðhafast nokkuð og við fljótum bara að feigðarósi og það verði jafnvel allt búið eftir einhver tólf ár eða eitthvað svoleiðis.  En eins og fram kemur í fréttinni, sem bloggað er um, þá virðast fleiri og fleiri af þeim sem komnir eru til vits og ára gera sér grein fyrir hvers konar BULL er í gangi NEMA FORSÆTISRÁÐHERRA ÍSLANDS OG FYLGIFISKAR HENNAR (UMHVERFISRÁÐHERRA OG FLEIRI).  En að "nota" krakkagreyið svona ber vott um að SIÐFERÐIÐ HJÁ ÞEIM SEM ÞAÐ GERA ER EKKI Á MJÖG HÁU PLANI. Fylgist fólk ekkert með, en lætur bara teyma sig áfram á asnaeyrunum?  VITA MENN EKKI AF FÆRSLU SEGULPÓLSINS?  ÞETTA ÞÝÐIR Á MANNAMÁLI AÐ Á ÞESSUM TÍMUM STANDA YFIR "PÓLSKIPTI".  Nú er segulpóllinn staddur í Síberíu og vísindamenn NASA telja að hann endi í Indlandshafi.  Vegna þess að segulpóllinn, var áður en "flakkið" byrjaði, staddur norður af Kanada hefur HLÝNAÐ umtalsvert á norðurslóðum, til dæmis bráðnar Grænlandsjökull mjög hratt en annars staðar hefur kólnað mjög mikið og sem dæmi má nefna að jöklar eru byrjaðir að myndast í Síberíu.  Þegar og ef segulpóllin endar í Indlandshafi, verða ýmis þéttbýl svæði í Asíu óbyggileg og mikill flutningur á fólki verður frá þessum svæðum.  HVERNIG TEKUR HEIMSBYGGÐIN Á ÞEIM MÁLUM?  Nú þegar stjórnmálamenn eru búnir að láta ljúga sig fulla um loftslagsbreytingar af mannavöldum og verða búnir að eyða milljörðum í að MOKA OFAN Í SKURÐI og nú ætlar stjórnmálaelítan að ráðast að 6% útblæstri okkar Íslendinga og BANNA innflutning á bílum, sem ganga fyrir JARÐEFNAELDSNEYTI,?  Þessar breytingar og öfgar í veðurfarinu má rekja beint til þessara breytinga á segulpólnum og svo er annað sem hafa þarf í huga: ÞESSAR BREYTINGAR Á SEGULPÓLNUM HLJÓTA AÐ HAFA ÁHRIF Á "HALLA JARÐAR". "LOFTSLAGSBREYTINGAR AF MANNVÖLDUM" ERU EKKERT ANNAÐ EN "BIG BUSINESS".....


mbl.is Opna hjálparsíma vegna aðgerða Thunberg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞURFA FORMAÐUR OG FRAMKVÆMDASTJÓRI EFLINGAR EKKI AÐ FARA AÐ GERA HREINT FYRIR SÍNUM DYRUM ÁN ÞESS AÐ VER MEÐ EITTHVAÐ SKÍTKAST Í FJÖLMIÐLUM????

Alltaf magnast þessar deilur upp, aðallega vegna þess að formaður og framkvæmdastjóri Eflingar eru að koma með einhverjar hálfkveðnar vísur og skítkast í fjölmiðlum...........


mbl.is Hegðunin „með hreinum ólíkindum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

DEMÓKRATAR GETA EKKI MEÐ NOKKRU MÓTI SÆTT SIG VIÐ TAP HILLARY 2016

"Glópaelítan" getur greinilega ekki sætt sig við NEINA mótspyrnu eins og dæmin í Bretlandi og Bandaríkjunum sýna svo glögglega........


mbl.is Demókratar ætla að ákæra Trump til embættismissis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÆTLI ÞEIR SEM "TRÚA" Á GLÓPAHLÝNUNINA SÉ EKKI BARA Í "DJÚPUM SKÍT"??

Það er búið að heilaþvo stelpuræfilinn svo rækilega að hún heldur virkilega að hún sé að fara að drepast eftir 12 ár vegna hlýnunar af mannavöldum cool tongue-out laughing.  Hún hefur engan þroska eða getu til þess að vita að "glópahlýnunarliðið" er að hafa hana að algjöru fífli í allan þennan tíma.  Kannski heldur hún að Kata litla og Merkel hafi komið til ráðstefnunnar á árabátum?  En sjálfsagt hefur enginn sagt henni frá pólskiptunum sem eru í gangi og þar liggi ástæðan fyrir þessum veðurfarsbreytingum og Kata litla (Kola Kata) ætlar að stöðva þau með því að moka ofan í skurði....... cool


mbl.is Heimurinn „í djúpri loftslagsholu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER NEFNILEGA HEILA MÁLIÐ "ÞAÐ ERU ENGIN VÍSINDI Á BAK VIÐ GLÓPAHLÝNUNINA".

En það er ekki hægt að ætlast til þess að stelpugreyið geri sér nokkra grein fyrir því.  Kannski ætti hún að berjast fyrir því að við förum að ganga betur um jörðina okkar og þar með að við hættum notkun plasts eða að minnsta kosti að við "losum okkur við rusl" á þann hátt að fylla ekki sjóinn af þessum óþverra og þar með allar fjörur.  En þessi hlýnun loftslags af mannavöldum er ekkert annað en BULL og er dæmi um það hvernig tölfræðin er notuð til að ljúga að fólki.  Í einni "rannsókn" sem ég las, var sagt að 97% vísindamanna væru sammála því að hlýnun loftslags á jörðinni væri af mannavöldum.  En ef niðurstöður "rannsóknarinnar" voru skoðaðar nánar kom í ljós að niðurstöðunum var raðað upp í fjóra flokka, þar áttu menn að merkja við í einhvern af fjórum möguleikum þess efnis hvort þeir væru algjörlega sammála því að loftslagsbreytingar væru af mannavöldum, mjög sammála fullyrðingunni, tiltölulega sammála, hvorki né, ósammála.  Það kom í ljós að þeir sem voru algjörlega sammála því að loftslagsbreytingarnar væru af mannavöldum voru og þeir sem voru mjög sammála fullyrðingunni voru samtals 1,6%, En aftur á móti voru samtals 97% sem voru þeim megin í könnuninni að þeir gætu talist jákvæðir fyrir því að loftslagsbreytingarnar GÆTU verið af mannavöldum, EN ÞAÐ VORU 3% AÐSPURÐRA Í "KÖNNUNINNI" Á ÞVÍ AÐ LOFTSLAGSBREYTINGAR AF MANNAVÖLDUM VÆRU TÓMT KJAFTÆÐI OG EINUNGIS "BIG BUSINESS"......


mbl.is „Af hverju ætti Trump að vilja hitta mig?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

Maður er í heimsókn hjá 87 ára gömlum föður sínum á hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu.  Á meðan hann er inni kemur hjúkrunarkona inn með flóaða mjólk og Viagra.  „til hvers er flóaða mjólkin“?  Spyr maðurinn.  „Hún er til að hann sofni“.  Svaraði hjúkkan. „ En til hvers er þá Viagrað“?   Spyr maðurinn aftur.  „Það  er svo hann rúlli ekki fram ú rúminu“.  Svaraði þá hjúkkan.....


EINN AF FÁUM SEM ÞORIR AÐ FARA GEGN "RÉTTTRÚNAÐARLIÐINU"..........

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er einn af örfáum stjórnmálamönnum, sem virðist hafa kjark til þess að fara gegn þeirri vitleysu, sem "rétttrúnaðarstefnuliðið" (öðru nafni "Vinstri Hjörðin" og "glóballistarnir" hafa tekið upp sem hin einu sönnu TRÚARBRÖGÐ), þess efnis að hlýnun jarðar sé nær eingöngu af mannavöldum.  Ekki tekur "Vinstri Hjörðin" því vel þegar einhver vogar sér að bera einhverjar brigður á að þvælan, sem þeir halda fram sé ekki alveg rétt.  Og þetta "fólk" sem segist vera svo frjálslynt og víðsýnt en það virðist eiga svolítið erfitt að umbera skoðanir, sem er þeim ekki þóknanlegt.  Fylgist fólk ekkert með en lætur bara teyma sig áfram á asnaeyrunum?  VITA MENN EKKI AF FÆRSLU SEGULPÓLSINS?  ÞETTA ÞÝÐIR Á MANNAMÁLI AÐ Á ÞESSUM TÍMUM STANDA YFIR "PÓLSKIPTI".  Nú er segulpóllinn staddur í Síberíu og vísindamenn NASA telja að hann endi í Indlandshafi.  Vegna þess að segulpóllinn, var áður en "flakkið" byrjaði, staddur norður af Kanada hefur HLÝNAÐ umtalsvert á norðurslóðum, til dæmis bráðnar Grænlandsjökull mjög hratt en annars staðar hefur kólnað mjög mikið og sem dæmi má nefna að jöklar eru byrjaðir að myndast í Síberíu.  Þegar og ef segulpóllin endar í Indlandshafi, verða ýmis þéttbýl svæði í Asíu óbyggileg og mikill flutningur á fólki verður frá þessum svæðum.  HVERNIG TEKUR HEIMSBYGGÐIN Á ÞEIM MÁLUM?  Nú þegar stjórnmálamenn eru búnir að láta ljúga sig fulla um loftslagsbreytingar af mannavöldum og verða búnir að eyða milljörðum í að MOKA OFAN Í SKURÐI og nú ætlar stjórnmálaelítan að ráðast að 6% útblæstri okkar Íslendinga og BANNA innflutning á bílum, sem ganga fyrir JARÐEFNAELDSNEYTI,?  Þessar breytingar og öfgar í veðurfarinu má rekja beint til þessara breytinga á segulpólnum og svo er annað sem hafa þarf í huga: ÞESSAR BREYTINGAR Á SEGULPÓLNUM HLJÓTA AÐ HAFA ÁHRIF Á "HALLA JARÐAR". "LOFTSLAGSBREYTINGAR AF MANNVÖLDUM" ERU EKKERT ANNAÐ EN "BIG BUSINESS"....


mbl.is Sigmundur tekur undir með Taalas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞÁ VERÐUR STJÓNSKIPUNAR - OG EFTIRLITSNEFND SENNILEGA ÓSTARFHÆF LÍKA.....

Því að brot Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur, er að mínu mati og margra annarra mun alvarlegra en brot Bergþórs Ólasonar, hann sýndi þó einhverja iðrun og baðst afsökunar (þó er deilt um það hvort hann hafi sýnt "næga iðrun" en um það má alltaf deila) en Þórhildur Sunna Ævarsdóttir hefur ekki sýnt neina iðrun heldur forhertist hún og sagði að Forsætisnefnd Alþingi væri gegnsýrð af spillingu.  Svo er þessi manneskja verðlaunuð með formennsku í í Stjórnskipunar - og Eftirlitsnefnd AÐ MÍNU MATI ER BROT ÞÓRHILDAR SUNNU ÆVARSDÓTTUR MUN ALVARLEGRA EN BROT BERGÞÓRS ÓLASONAR VERÐUR KANNSKI EKKERT TEKIÐ Á HENNAR BROTI VEGNA ÞESS AÐ HÚN ER KONA.  OG ÞAÐ HVERNIG HÚN HEFUR TALAÐ UM KARLA ER EKKERT BETRA EN HVERNIG BERGÞÓR ÓLASON TALAÐI UM KONUR Á KLAUSTURBAR........


mbl.is Stuttur fundur vegna deilna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HALDA RÁÐAMENN AÐ EFTIRSPURN EFTIR HJÚKRUNARFRÆÐINGUM MYNDI EKKERT AUKAST ÁRATUGUM SAMAN?????

Það hefur áratugum saman verið "hleypt sama fjölda nemenda inn í hjúkrunarfræðinámið".  Helsta ástæðan er sú að ekki er veitt fjármagni til spítalanna til að taka við hjúkrunarfræðingum í starfsnám.  Sama er að segja um læknanámið og svo er verið að tala um að fólk fáist ekki í þessi störf vegna þess að launakjörin séu ekki nógu og góð.  Það er ekki svo að launakjör séu eini áhrifavaldur þess að það vantar hjúkrunarfræðinga til vinnu heldur eru þar margir samverkandi þættir og einn þeirra er menntunarmálin.......


mbl.is Skortur á hjúkrunarfræðingum stóra vandamálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MEÐ ÖÐRUM ORÐUM - "STÆKKA OG ÞENJA ÚT BÁKNIÐ"..... :(

Og um leið verður að fjármagna stækkun "báknsins" og það er alltaf gert með því að bæta við "gjöldum" á viðkomandi atvinnugrein, þessi gjöld hafa í fæstum tilfellum skilað auknum gæðum í viðkomandi atvinnugrein.  Eingöngu aukið við skriffinnskuna þar og oftar en ekki orðið til þess að bæta hefur þurft við starfsfólki til að sinna aukinni skriffinnsku í greininni og þar með MINNKAÐ framleiðni í greininni.  Svona vitleysa endar yfirleitt bara á einn veg....


mbl.is Stjórnsýslan í kringum fiskeldi efld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STAÐFESTING Á ÞVÍ AÐ ÞINGIÐ OG ÞJÓÐIN ERU SÍÐUR EN SVO Á SÖMU BLAÐSÍÐUNNI....

Jafnvel ekki einu sinni að lesa sömu bókina.  En EINANGRUNARSINNARNIR, það er að segja þeir sem aðhyllast það að eiga einungis viðskipti við lítinn hluta heimsins þ.e Evrópu, virðast "raða" sér á Breska þingið og eins og hér á landi virðist sem þjóðarhagur sé ekki alltaf í forgangi hjá þingmönnum.  Í Bretlandi virðist fólk orðið þreytt á því að vilji þjóðarinnar sé ekki virtur og svipað virðist vera í gangi hér á landi.  Það er verið að segja stjórnmálamönnum það að kjósendur eru til staðar ALLT kjörtímabilið og ekki dugi að hlusta eingöngu á þá RÉTT FYRIR KOSNINGAR..........


mbl.is Breski Íhaldsflokkurinn eykur fylgi sitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐ HEFUR BERKOW FYRIR SÉR Í ÞVÍ AÐ BORIS JOHNSON "ÆTLI SÉR" AÐ BRJÓTA LÖGIN?

Þá vaknar sú spurning hvort Berkow sé á "launaskrá" hjá ESB og eigi að gæta hagsmuna ESB gagnvart Bretum og eigi að sjá til þess að Bretar gangi ekki út úr sambandinu?  Það væri ekki eina dæmið um "baktjaldamakk ESB" SJÁ HÉR.....


mbl.is „Ég mun hindra Boris í að brjóta lögin vegna Brexit“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EKKI TEKIÐ VIÐ FLEIRI HÆLISLEITENDUM FRÁ ALBANÍU..........

Enda er Albanía "öruggt" ríki og fólk sem kemur þaðan er ekki að flýja neina ógn.  Það hefur verið vinsælt hjá þeim að koma með einhverja "SÖGU" sem "GÓÐA FÓLKIÐ" gleypir alveg við.  Svo koma þessir hælisleitendur grenjandi með "sögurnar" sínar á sjónvarpsstöð "GÓÐA FÓLKSINS" og svo koma "lögfræðingar", sem Rauði Krossinn á Íslandi útvegar hælisleitendunum og þeir tala fjálglega um hversu Íslensk stjórnvöld fara illa  með þetta fólk og halda því fram að það bíði þeirra ekkert nema dauðinn ef þetta fólk verður sent til baka til upprunalandsins.  Og ekki verður maður bjartsýnni á framhaldið við skipan nýs Dómsmálaráðherra...........


mbl.is Slæmur skellur í Albaníu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞÁ FÆR BORIS JOHNSON KANNSKI EINHVERN STARFSFRIÐ Í SMÁ TÍMA........

Það er náttúrulega alveg með ólíkindum að meirihluti þingmanna á Breska þinginu skuli með öllum ráðum vilja vera áfram inni í þessu sambandi sem var stofnsett af NASISTUM og starfar í þeirra anda.......


mbl.is Breska þinginu verður slitið í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VÆRI ÞÁ EKKI RÁÐ AÐ STANDA GEGN "ÖLLUM" NASISTASMTÖKUM SEM HERJA Á OKKUR???

Alla tíð hefur það verið afskaplega mikið feimnismál hjá Evrópusinnum að þátttaka nasista í stofnun og rekstri ESB sé nefnd og aðkoma Nasista að ESB virðist vera eitthvað mikið feimnimál og ekki má skoða söguna eins og hún kemur fyrir.  Það skal tekið fram að allt sem kemur fram hér á eftir er unnið upp úr bókinni „Indisputable Evidence Proving the EU Was Created by Nazis“ eftir Jack King, útgefin árið 2019.  Farið er yfir nokkur mikilvæg atriði í sögu Evrópu í tímaröð:

1936 Allt frá byrjun þess að nasistaflokkurinn komst til valda var það markmið Adolfs Hitlers að sameina Evrópu í eitt ríki og voru Bandaríki Norður Ameríku fyrirmyndin.  Árið 1936 skipaði Hitler, Joachim von Ribbentropp sendiherra í Bretlandi með það sérstaka verkefni að semja um Enskt-Þýskt bandalag umsameiginlegt markmið að byggja upp „United States of Europe“, sem yrði með höfuðstöðvar í Þýskalandi.  Þegar þessi áform gengu ekki eftir, ræddi Ribbentrop við leiðtoga Japan og Ítalíu um að þessi þrjú lönd (Þýskaland, Japan og Ítalía) skiptu Breska heimsveldinu á milli sín.  Þetta var upphafið að ÖXULVELDUNUM.

1939 Walter Funk, sem hafði gengið í Nasistaflokkkinn árið 1931, var tilnefnur bankastjóri BIS (Bank for International Settlements, sem varð Seðlabanki Seðlabankanna og varð ein helsta “þvottastöð“ Nasista fyrir stolið gull og listaverk í seinni heimsstyrjöldinni) einnig var hann tilnefndur sem stjórnarformaður The Reichbank.  Walter Funk var þegar orðinn Fjármála- og Efnahagsráðherra í Nasistastjórn Hitlers.  Þetta ár kom til skjalanna maður að nafni Walter Hallstein.  Árið 1942 vann Walter Hallstein áætlun fyrir Hitler, sem innihélt áætlun um sameiningu Evrópu, undir stjórn Þýskalands og þar var fyrsta heimildin um SAMEIGINLEGAN GJALDMIÐIL FYRIR EVRÓPURÍKIN.  Þessari áætlun hefur verið fylgt upp á punkt og prik allt til dagsins í dag nema eitthvað hefur skolast til þetta með sameiginlega gjaldmiðilinn því evran var ekki tekin í gagnið fyrr en árið 2002.  Til marks um það hversu gríðarlega mikilvægur Walter Hallstein, var fyrir undirbúning og stofnun ESB skal þess getið að hann var aðalsprautan á bakvið „Rómarsáttmálans“ árið 1957.  Ekki finnast neinar heimildir um það að hann hafi hlotið nokkra refsingu fyrir störf sín í þágu Nasista í seinni heimsstyrjöldinni.  Og Walter Funk þótti of mikilvægur fyrir endurreisn Þýskalands eftir stríðið og fékk 20 ára fangelsisdóm en afplánaði einungis fimm ára fangelsisdóm fyrir stríðsglæpi í Nürnberg réttarhöldunum.  Ýmsir sagnfræðingar hafa viljað meina að Nürnberg réttarhöldin hafi verið mestu sýndarréttahöld allra tíma.

1942 Er haft eftir Walter Funk „HVORT SEM ÞJÓÐVERJAR VINNA STRÍÐIÐ EÐA EKKI, MUN ÞÝSKALAND STJÓRNA EVRÓPU“.

1943 21 mars lagði, Joachim von Ribbentrop Utanríkisráðherra í ríkisstjórn Hitlers, fram tillögu um sameinaða Evrópu og studdist þar við tillögur Walters Hallsteins.  Í júní þetta sama ár var búið að útfæra og samhæfa tillögur Hallsteins og Ribbentorps.  Á þessum tímum höfðu áhyggjur Nasista vegna uppgangs Sovétríkjanna aukist til mikilla muna og töldu þeir að sameining Evrópu væri það svar sem væri sterkast (og voru Ameríkanar alveg á sama máli).  Þar af leiðandi fengu tillögur Ribbentorps og Hallsteins mun meiri athygli og fengu þar af leiðandi snögga og „góða“ afgreiðslu.  SS foringinn Gustaw Schlotterer, sem var ráðherra í Hinu Keisaralega ráðuneyti Efnahags- og Viðskiptamála lagði til sameiginlega efnahagsstefnu aðildarríkja sameinaðrar Evrópu og einnig var hann sá sem „hannaði“  Evrópubankann.  Þetta sama ár var haldinn fundur í Mílanó, að undirlagi Altiero Spinelli fyrrum kommúnista, þar sem stofnað var Samband Evrópuríkja.  Aðalbygging höfuðstöðva ESB í Brüssel hlaut nafn hans.  Á þessum fundi var einnig talað um sameiginlegan her Evrópu.  Eins og allir aðrir feður ESB fannst honum það algjör fásinna að almennir íbúar Evrópu hefðu nokkuð um það að segja um hvað ESB gerði enda er ekki nokkur maður í framkvæmdastjórninni kosinnn heldur tilnefndur og skipaður af aðildarríkjunum.

1951 Stofnun Kola – og Stálsambandsins (forveri ESB)  Þann 18 apríl 1951 var svokallað „Parísarsamkomulag“ undirritað og upp ú því samkomulagi var Kola- og Stálsambandið stofnað í desember sama ár.  Að Kola- og Stálsambandinu stóðu sex ríki Vestur Þýskaland, Frakkland, Ítalía og Benelux-löndin (Belgía, Holland og Luxemburg). Um leið og Kola – og Stálsambandið hafði verið stofnað var stungið upp á að Evrópa kæmi sér upp sameiginlegum her, þannig að hugmyndin um Evrópuher er langt frá því að vera ný af nálinni.  Árið 1989, þegar ESB undirbjó það að koma evrunni í gagnið, viðurkenndi Jelle Zijlstra fyrrverandi forsætisráðherra Hollands og stjórnarformaður BIS að Kola – og Stálsambandið hafi verið „ pólitísk tilraun“ sem Þjóðverjar hefðu litið á sem „regnhlífarsamtök“ fyrir kola og stálframleiðslu sína.  Það sem vekur sérstaklega athygli er það að Bretland var ekki á meðal þeirra sem tóku þátt í Kola – og Stálsambandinu.  1950, þegar fyrstu plönin um sambandið voru kynnt, gerði Breska ríkisstjórnin það alveg kristalstært að Bretar hefðu ekki áhuga.  Því hefur löngum verið haldið fram af Evrópusinnum að Winston Churchill hafi verið mikill Evrópusinni og verið því mjög fylgjandi að Bretland gengi inn í ESB.  Þetta er alls ekki raunin því hann á að hafa sagt; „Ef ég ætti að velja á milli Evrópusambandsins og þess að sigla á bátsskel út á opið haf, myndi ég velja opna hafið“.  Pressan á Breta að ganga til liðs við ESB kom frá Bandaríkjunum. Árið 1961 sagði Bandaríski forsetinn John F. Kennedy við Harold Macmillan þáverandi forsætisráðherra Bretlands að „Hvíta Húsið“ myndi einungis styðja Breta áfram, ef þeir myndu sækja um aðild að „Sameiginlegum markaði Evrópu“ (Sem var EFTA og var litið á það sem fordyri ESB) og viðurkenna að hið opinbera markmið Sambandsins þess, væri „pólitísk sameining álfunnar“ – þar er kominn hinn frægi draumur Hitlers um sameinaða Evrópu.  Og aftur árið 1966 ítrekaði forseti Bandaríkjanna Lyndon B. Johnson að Bretar ættu að ganga til liðs við Sameiginlegan markað Evrópu.  Ákvörðun var tekin  í Utanríkisráðuneyti Bretlands að sambandið við Bandaríkin yrði það slæmt ef Bretland myndi ekki sækja um aðild að Sameiginlega markaðnum (EFTA) og með mikilli leynd, var Bretland orðið aðili að „EFTA“ án þess að almenningur fengi nokkru um það ráðið. Það var svo árið 1973, sem Bretland sótti um aðild að ESB og enn einu sinni var ekki um neina þjóðaratkvæðagreiðslu að ræða heldur skrifaði Edward Heath, þáverandi forsætisráðherra Bretlands, undir umsóknina.  Því er haldið fram að Heath hafi ekki haft heimild til að gera þetta, því að þessi gjörningur hafi brotið all freklega á stjórnarskrá Bretlands.  En það hefur komið fram að Edward Heath hafi fengið greidd 35.000 Sterlingspund skattfrjáls fyrir svikin.  Árið 2016 voru Bretar búnir að fá nóg af „lýðræðisskortinum“ og „miðstýringartilburðum“  ESB og það ár fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort Bretland ætti að yfirgefa ESB.  Í þjóðaratkvæðagreiðslunni var samþykkt að Bretland gengi út úr ESB það hefur almennt verið kallað BREXIT.  Nú árið 2019 hefur Bretum ekki enn tekist að yfirgefa ESB, getur verið að textabrot hljómsveitarinnar Eagles, í laginu „Hotel California“ eigi við í sambandi við ESB „YOU CAN CHECK OUT ANY TIME YOU LIKE BUT YOU CAN NEVER LEAVE“.  Það verður auðveldlega dregin sú ályktun að Bretar hafi verið þvingaðir til að ganga í ESB og þegar reynt er að leiðrétta það er mönnum gert eins erfitt fyrir og hægt er.  Vegna þess hversu Bretar hafa greitt mikið til sambandsins, eru þeir mjög mjög mikilvægir fyrir ESB og er talið að afleiðingarnar af BREXIT verði mun alvarlegri fyrir ESB heldur en Breta og jafnvel gæti útganga Breta verið upphafið að falli ESB.

1982 Var Helmut Kohl kjörinn kanslari Vestur Þýskalands.  Kohl var of ungur til að taka þátt í seinni heimsstyrjöldinni en það eru til heimildir fyrir því að hann var meðlimur í Hitlersæskunni og þrátt fyrir að hann hafi ávallt neitað því var hann mjög hallur undir málstað nasista og var mög fylgjandi sameiningu Evrópu að forskrift nasista.

2009 Lissabon-sáttmálinn tekur gildi.  Þar voru tekin af öll tvímæli um það að almenningur í Evrópu gæti kosið forseta framkvæmdastjórnar ESB eða aðra framkvæmdastjóra framkvæmdastjórnar ESB. Í framtíðinni yrði það framkvæmdastjórn ESB sem sæi um þær tilnefningar.  Þetta er dæmi um að lýðræðisást ESB var alltaf að minnka og miðstýringin að aukast.

Hér í þessari umfjölluninni, var aðeins stiklað á stóru en nánari umfjöllun um tengsl ESB við Nasista og hvernig forskrift þeirra er fylgt upp á punkt og prik MÁ SJÁ HÉR.  Á ekki að berjast gegn ÖLLUM NASISTAHREYFINGUM, sem herja á landið?????? 


mbl.is Standa saman gegn nasisma í rigningunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BEIÐ HANN MEÐ ÞESSA GAGNRÝNI ÞAR TIL "EFTIR" ÁKVÖRÐUN UM NÝJAN DÓMSMÁLARÁÐHERRA HAFÐI VERIÐ TEKIN????

Það er alveg stórmerkilegt að hugsa til þess að menn séu tilbúnir til þess að SVÍKJA land og þjóð, fyrir HUGSANLEGT RÁÐHERRAEMBÆTTI.  En það er hægt að upplýsa þingmanninn um það að það er tekinn af allur vafi um það í orkupakka fjögur AÐ EVRÓPSK LÖG ERU ÍSLENSKUM LÖGUM OG REGLUM ÆÐRI, ÞEGAR KEMUR AÐ ÖLLUM ORKUMÁLUM.  Þá skiptir ENGU máli hvort Íslensk stjórnvöld hafi sett einhvern virkjunarkost í VERNDARFLOKK, BIÐFLOKK, NÝTINGARKOST EÐA JAFNVEL AÐ FRIÐLÝSA EITTHVAÐ SVÆÐI.  Ef ESB vill virkja DETTIFOSS OG GULLFOSS hafa Íslensk stjórnvöld EKKERT um það að segja.  Ég geri ráð fyrir að þingmaðurinn ætli að samþykkja orkupakka fjögur því það er jú búið að samþykkja orkupakka eitt, tvö og þrjú????????????


mbl.is Þingmaður hótar stjórnarslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

Jón var niðri í bæ og gekk illa að finna bílastæði.
Jón var trúaður og leit til himins og sagði: "Góði Guð, hjálpaðu mér núna. Ef
þú finnur fyrir mig bílastæði skal ég fara í messu á hverjum sunnudegi það sem
eftir er, ég skal hætta að drekka."

Skyndilega, eins og fyrir kraftaverk, birtist
bílastæði beint fyrir framan Jón. Hann lítur til himins og segir:

"Gleymdu þessu. Fann stæði!"


ÞVÍ MIÐUR VIRÐIST ÞAÐ VERA EINHVER "LENSKA" HJÁ ÍSLENSKUM STJÓRNMÁLAMÖNNUM AÐ LÁTA ALMENNING EKKERT VITA UM HVAÐ ÞEIR ERU AÐ "BRALLA" FYRR EN ALLT ER UM GARÐ GENGIÐ.....

Og um þetta er allt stjórnmálagengið hér á landi sekt. Það þarf nú ekki að skoða langt aftur í tímann til að finna mörg ansi ljót dæmi um þetta og hún er síður en svo saklaus af svoleiðis vinnubrögðum.  Kannski sættir hún sig illa við að vera komin í "neðri lög" stjórnmálanna?  EN ÞAÐ FER LÍTIÐ FYRIR AÐ ALLT SÉ OPIÐ OG GAGNSÆTT............


mbl.is Funda með Katrínu vegna þjóðaröryggisstefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER MEIRIHLUTI ÞINGMANNA Á BRESKA ÞINGINU BARA AUMINGJAR??????

Loksins þegar kemur maður "með bein í nefinu" og ætlar að hrinda "BREXIT" í framkvæmd, sem var samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu í júní 2016.  Þá fær meirihluti þingsins í Bretlandi rennandi drullu og þá er það orðið aðalmálið  AÐ EKKI SÉ KOMINN SAMNINGUR VIÐ ESB UM ÚTGÖNGUNA.  AÐ SJÁLFSÖGÐU ER ÞAÐ STERKAST FYRIR BRETA AÐ GANGA BARA ÚT 31. OKTÓBER OG EF EKKI VERÐUR BÚIÐ AÐ SEMJA VIÐ ESB, FYRIR ÞANN TÍMA ER BARA HÆGT AÐ SEMJA EFTIR Á OG ÞÁ VERÐ STAÐA BRETA BARA STERKARI. En sennilega er um að ræða það að ESB hleypi engum út sem "sambandið hefur náð tangarhaldi á" og þar virðist textabrot The Eagles, úr laginu Hotel California eiga vel við: "YOU CAN CHECK OUT ANY TIME YOU LIKE - BUT YOU CAN NEVER LEAVE". HÉR ER UMFJÖLLUN UM ESB OG TENGSL ÞESS VIÐ NASISTA OG HVERNIG SAMBANDINU ER ENN STJÓRNAÐ Í ANDA ÞEIRRA.......


mbl.is Hvað bíður Johnsons í þinginu?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÓTRÚLEGT - ER ÞETTA VIRKILEGA ÞVERSKURÐURINN AF ÞVÍ SEM ER Í GANGI?

Það kemur auðvitað ekkert á óvart að fólk sé aðeins farið að sjá í gegnum Píratana en það kemur á óvart að "fallið" skuli ekki vera meira.  En það sem kemur mest á óvart er að LANDRÁÐAFYLKINGIN skuli bæta við sig fylgi.  Hvernig getur það verið að fólk sjái ekki í gegnum þetta LÝÐSKRUM sem er í gangi hjá þessum flokki?  En áhrif orkupakka þrjú eiga eftir að koma fram þannig að það á ýmislegt eftir að breytast.......


mbl.is Píratar missa fylgi en Samfylking bætir við sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband