"VERSTU MISTÖK ALLRA TÍMA"..........

Margir virtir hagfræðingar hafa stigið fram og sagt evruna vera mestu hagfræðimistök, sem hafi verið gerð.  Nú kemur framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fram og segir að EINNIG hafi verið gerð pólitísk mistök við upptöku evru.  GETA MISTÖKIN ORÐIÐ ÖLLU MEIRI, HVAÐ SEGJA INNLIMUNARSINNAR VIÐ ÞESSU????


mbl.is Evrusvæðið hættulega berskjaldað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐ HAFIÐ ÞIÐ GERT???????

Hvað hefur stjórnmálaelítan eiginlega gert?  Viðar Þorkelsson, líkti sumum stjórnmálamönnunum við börn, sem væru með eldspýtur, vegna ýmissa samninga og reglna, sem þeir eru að gangast undir og samþykkja um allan heim.  Það má líka segja að þessir "ÓVITAR" vinni þjóðinni ENN MEIRI SKAÐA, þegar þeir eru látnir hafa PENNA og skrifa undir allt mögulegt og ómögulegt OG VIRÐAST EKKI HAFA NOKKRA GLÓRU UM HVAÐ ÞEIR ERU AÐ GERA, sérstaklega virðist Utanríkisráðherra vera nokkuð "pennalipur", einmitt sá sem ætlar að leggja fram "ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGUNA" um þriðja orkupakkann.  er hann að breiða yfir gamlan "skít"? Getur ekki verið að ýmislegt, sem var skrifað undir, á árum áður, sé að koma í bakið á okkur núna??????????


mbl.is Hafnar þriðja orkupakkanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

Þessi saga gerðist á “fraktara” og mér er sagt að hún sé alveg sönn. Þannig var að þarna var “handstýrt” og var fyrirkomulagið þannig að vakthafandi hásetar “stýrðu” á 4 klst vöktum og að sjálfsögðu hafði vakthafandi stýrimaður umsjón með siglingu skipsins.  Nýliði kom upp í brú til að handstýra.  Þegar vaktin hjá nýliðanum var að verða hálfnuð fannst vakthafandi stýrimanni þó nokkuð athugavert við siglingu skipsins svo hann spurði þann á stýrinu:  “Heyrðu, hvaða stefnu stýrir þú eiginlega”?“ Ha, stefnu hvað”? Sagði strákurinn, “það veit ég ekki, þegar ég tók við var sólin beint framundan”.


LÍKURNAR Á AÐ MÚRINN VERÐI BYGGÐUR AUKAST.......

Þarna barst Trump liðsauki í baráttunni um að "múrinn" verði reistur og ekki bætir úr að Demókratar hafa heldur betur skotið sig í fótinn, eftir að Muellers skýrslan var gerð opinber og sennilega hafa þeir þar með tryggt Trump endurkjör sem forseta Bandaríkjanna á næsta kjörtímabili.....


mbl.is Landamærin komin að þolmörkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HEF ALDREI HEYRT TALAÐ UM ÞORSTEIN MÁ, SEM MANN SÁTTA OG SAMLYNDIS

Og einhvern veginn hef ég það á tilfinningunni að hann ætli sér bara að fara í hart í þessu máli og eina sem hann hefur í huga er að ná sér niður á Seðlabankastjóra, þannig að hann eigi sér ekki viðreisnar von í framtíðinni.  Þannig hefur hann unnið hingað til og engin ástæða til að ætla að þar hafi einhver breyting hafi átt sér stað þar á.........


mbl.is Vonar að menn séu reiðubúnir að semja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA ER SKÓLABÓKARDÆMI UM AÐ MENN SÉU BARA AÐ PISSA Í SKÓINN SINN......

Það er jú ágætt á meðan hlandið í skónum er volgt en það kólnar fljótt og þá verðu líðanin alveg djöfulleg.  Með því að selja fargjöldin svona langt undir kostnaðarverði, er bara verið að ná sér í lausfjármuni til að "redda" sér frá degi til dags.  Til skamms tíma litið er þetta gott fyrir samkeppnina, það er að segja að ábati neytenda verður mjög mikill.  En þegar þessu er lokið og ekki þarf lengur að ná í lausafé með þessum hætti, þá hækkar verðið og það nokkuð mikið.  Þannig að til lengri tíma leiðir þetta til þess að flugfargjöld hækka, því einhver verður að borga fyrir "vitleysuna" sem var í gangi......


mbl.is 100 þúsund krónum ódýrara með WOW
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"AF LITLUM NEISTA VERÐUR OFT MIKIÐ BÁL".......

Vandræði WOW virðast ætla að hafa mikil áhrif á þjóðfélagið og virðist ekki vera neitt lát þar á.  Verði það úr að WOW fari í gjaldþrot (sem raunar fyrirtækið er búið að vera í nokkrar vikur), verður þetta örugglega það gjaldþrot sem hefur mest áhrif í þjóðfélaginu og líka það langdregnasta.....


mbl.is Fundinum slitið vegna WOW air
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"STORMUR" Í VATNSGLASI- HVER VERÐUR NÆSTI LEIKUR DEMÓKRATA??????

Og ekki sá RÚV ástæðu til að koma með "frétt" um máli en það má telja nokkuð víst að ef niðurstaðan hefði verið sú að Trump hefi átt í samstarfi við Rússa, hefði komið stór frétt um málið og Silja Bára Ómarsdóttir verið fengin í settið til að ræða málin.  En nú er um það bil ár í næstu forsetakosningar í Bandaríkjunum og björgum Demókrata fer fækkandi, í baráttunni við Trump og nú bætist við að þetta helsta "TROMP" þeirra reyndist vera "skítabomba" sem sprakk í andlitið á þeim sjálfum.  Nú fer sennilega að koma að því að þeir þurfi að fara að "henda handklæðinu inn í hringinn"..........


mbl.is Áttu ekki óeðlileg samskipti við Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA ER ÖRUGGLEGA HÁRRÉTT HJÁ HONUM - EINHVER BLEKKINGARLEIKUR ER Í GANGI

Það þarf nú ekki að skoða málið mikið til að sjá að þetta er alveg rétt athugað hjá Jóni Karli.  WOW á ekki neitt sem ICELANDAIR gæti hugsanlega haft áhuga á að eignast.  WOW á ekki eina einustu flugvél, þar að auki eru flugvélarnar, sem WOW er með á LEIGU af allt annarri tegund, sem myndi kalla á að allt viðhald og eftirlit,  færi erlendis og það það þýddi bara aukinn kostnað.  WOW á mikið af skuldum og það er ekki beint það sem Icelandair þarf á að halda núna.  Það er eiginlega ekkert nema gjaldþrot sem blasir við WOW núna.  Vissulega yrði það skellur fyrir efnahagslífið en getur landið ekki unnið sig út úr því eins og loðnubresti????????


mbl.is Trúir ekki að Icelandair kaupi WOW
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVERSU VEL ER LANDHELGISGÆSLA ÍSLANDS UNDIRBÚIN FYRIR SVONA?????

Það er nefnilega ekki spurningin HVORT svona slys verður við strendur Íslands heldur HVENÆR það verður.  Með auknum ferðamannastraumi og þar með aukinni umferð skemmtiferðaskipa eykst hættan á þessu. Skemmtiferðaskipin sigla uppi í harða landi til þess að farþegarnir fái sem "best" útsýni í náttúruperlurnar.  Víða er nokkuð "aðdjúpt til dæmis á Hornströndum og þá þarf ekki mikið til svo skipið og farþegar séu í stórhættu.  Engir nógu og öflugir dráttarbátar eru á Vestfjörðum í svona verkefni og skemmtiferðaskipið yrði komið upp í fjöru á fremur stuttum tíma og þá væri Þór, öflugasta varðskip Gæslunnar, sennilega við bryggju í Reykjavík vegna fjárskorts.  ER EKKI TÍMI TIL KOMINN AÐ RÁÐHERRA FERÐAMÁLA FARI AÐ HUGA AÐ ÞESSUM MÁLUM???????


mbl.is Enn eru um 1.000 farþegar um borð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AÐKOMA RÍKISINS AÐ ÞESSU MÁLI ÆTTI EINFALDLEGA EKKI AÐ KOMA TIL GREINA

Það muna örugglega eftir því þegar Flugfélag Íslands og Loftleiðir "sameinuðust" og ekki var nú aðkoma ríkisstjórnarinnar þar neitt glæsileg og stjórnvöldum til mikils sóma.  Það er um það talað að sú "sameining" hafi verið hrein yfirtaka Flugfélags Íslands á Lofleiðum, með atstoð stjórnvalda.  Er kannski verið að horfa til svipaðra hluta núna?  Ég efast um að það nokkur maður sé meðmæltur svoleiðis aðferðum enda eru tímar ríkisafskipta einkafyrirtækja í samkeppnisrekstri löngu liðnir.........


mbl.is Aðkoma ríkisins ekkert verið rædd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SVONA BYRJAÐI ÞETTA LÍKA HJÁ JÓNI HEITNUM.........

Munurinn er bara sá að hann bjó í félagslegri íbúð í Breiðholtinu og þar af leiðandi þótti engin ástæða til að gera nokkuð í málinu......


mbl.is Kvörtuðu undan óþægindum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VITLEYSAN RÍÐUR EKKI VIÐ EINTEYMING..........

Nú er heldur betur kominn tími til skoða vel hlutverk og skyldur þingmanna.  Ég efast stórlega um að þingið hafi eitthvað eftirlitshlutverk með starf lögreglu og fleiri aðila í þjóðfélaginu.  Fyrir mér lýtur þetta þannig út að þingmenn séu að TAKA sér vald, sem þeim er langt frá því heimilt.  Þetta er óheillavænleg þróun og þegar þetta er einu sinni byrjað þá heldur þessi SJÁLFTAKA áfram og enginn veit hvar þetta endar.......


mbl.is Nefndarfundur um aðgerðir lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞESSI MAÐUR HEFUR EKKI MINNSTA SNEFIL AF VIRÐINGU FYRIR ÞJÓÐ SINNI OG ARFLEIFÐ HENNAR

Og það er spurning hvort svona maður á nokkurt einasta erindi á Alþingi Íslendinga?  Og ég get ekki með nokkru einasta móti séð samhengið á milli hreinsun gangstétta og grasflata í þessu tilfelli.  Það er réttur fólks í lýðræðisþjóðfélagi að mótmæla, en það er ekki sama hvernig er mótmælt og hvar,  var til dæmis búið að fá leifi fyrir þessum mótmælum, hjá til þess bærum yfirvöldum?  Ef þingmaðurinn er svo "stropaður" að hann heldur að þessi viðbrögð séu vegna minnimáttarkenndar, tortryggni og hræðslu við  ókunnuga er hann enn meira úti að aka en ég hafði haldið.  Hælisleitendur höfðu ekki undan neinu að kvarta, hvað varðar aðbúnað og þess háttar og ber þá að líta til aðbúnaðar í öðrum löndum.  En kannski ættu stjórnvöld að setja STRANGAR reglur og lög um það að flugfélög og skipafélög, sem flytja skilríkjalaust fólk til landsins, greiði fyrir það háar sektir og beri þannig ábyrgð á þeim farþegum, sem hingað eru fluttir.  HÆLISLEITENDAFLAUMURINN HINGAÐ TIL LANDS ER ALFARIÐ Í BOÐI STJÓRNVALDA.....


mbl.is Hvatti þingmenn til að líta í eigin barm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STAÐA WOW RÆÐUR HLUTABRÉFAVERÐI Í ICELANDAIR........

Þetta er náttúrulega alveg stórmerkilegt, ef fylgst er með hlutabréfamarkaðnum hér á landi, verðið virðist ekki lúta neinum lögmálum á fjármálamarkaði, heldur er einn lítil "klíka" sem öllu stjórnar hér og svo er eitthvað farið eftir kjaftasögum sem ganga og þessi "klíka" kemur oftast af stað.

Svo er þetta með að Arion banki sé að fara fram á RÍKISÁBYRGÐ Á LÁNI TIL WOW AIR.  Skúli Mogensen vill einfaldlega ekki semja við Indigo Partners, því þá missir hann MEIRIHLUTANN í flugfélaginu og við skoðun á bókhaldinu kemur ýmis "sóðaskapur" í ljós sem er ekkert annað en gróf lögbrot.  Vegna þessa er Skúli Mogensen að leita til Arion banka, því ef félagið fer í þrot kemur þetta sama í ljós.  En eitt hefur ekki verið skoðað EN RÍKISÁBYRGÐ TIL FYRIRTÆKJA ER ÓLÖGLEG SAMKVÆMT EES SAMNINGNUM OG ESA MYNDI DÆMA ÍSLENSKA RÍKIÐ ILLILEGA Í FYRIR SVOLEIÐIS BROT.  En alveg er stórkostlegt að sjá að fjármálelítan hér á landi skuli endalaust halda að það sé hægt að láta almenning taka áhættuna af fjármálabraskinu þeirra................


mbl.is Bréf Icelandair hækka mikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BREGÐAST VIÐ?????????

Það hefur verið óborganlega gaman að fylgjast með þessum "sirkus", sem fór af stað eftir þennan dóm mannréttindadómstólsins.  það er bara alveg á hreinu að ALLIR dómara Landsréttar eru ÓLÖGLEGIR.  Niðurstaða dómstólsins var ekki var rétt staðið að því, af hendi ALÞINGIS, að velja dómarana.   Samkvæmt því eru einu réttu viðbrögðin við þessu að endurtaka allt ferlið á nýtt og í þetta skipti að gera hlutina rétt.........


mbl.is Forsætisráðherra fer yfir viðbrögð stjórnvalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN ER GREINILEGA EKKI EINN UM AÐ ÞURFA AÐ FÁ PÁSU

Þessi maður "þarf að fá pásu" frá Alþingi og það ekki seinna en strax.  Það er svo fáránleg vitleysa og rugl sem kemur frá manninum frá morgni til kvölds að það er alveg með ólíkindum hversu mikið rugl getur komið frá einum manni.  Hann ætti kannski að vera ágætur þegar hann sefur, það er að segja ef hann tekur ekki upp á því að tala upp úr svefni en þá væri friðurinn úti.  Að kjósa Pírata í stað Sjálfstæðisflokksins, væri eins og að fara úr öskunni í eldinn.  Ekki get ég séð Helga Hrafn fyrir mér sem Fjármálaráðherra eða Þórhildi Sunnu sem Dómsmálaráðherra....... wink undecided cool laughing cry


mbl.is „Hann verður að fá pásu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KRAKKAGREYIN HALDA AUÐVITAÐ AÐ ÞARNA SÉ UM "SKOTHELD" VÍSINDI AÐ RÆÐA

Sem er ekki skrítið þar sem Forsætisráðherra og Umverfisráðherra taka undir "trúarbrögðin" og eins og sagt er "Umhverfisvernd er BIG BUSINESS" og svo hafa þau horft á "krakka-RÚV" og þar er heldur betur tekið undir áróðurinn og krakkagreyin halda að þarna sé um heilagan sannleik að ræða.  Svo er þetta ágætis ástæða til að skrópa í skólann og segjast hafa verið að berjast fyrir umhverfið.  En fáum virðist detta í hug að sú breyting sem hefur orðið á veðrinu undanfarin ár, sé af þeim orsökum að nú eru "pólskipti" í gangi.  Segulpóllinn er á hraðri leið til Síberíu og er því spáð að hann endi í Indlandshafi.  ÞAÐ ER EKKERT SEM STJÓRNMÁLASTÉTTIN GETUR GERT Í ÞESSU, EN VIÐ GETUM ÖLL FARIÐ AÐ GANGA BETUR UM JÖRÐINA OKKAR............


mbl.is „Drullusama um framtíð krakkanna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

Tvær vinkonur, Sossa og Systa, voru saman í golfi þegar önnur varð fyrir því óhappi að hitta kúluna illa í upphafshöggi og horfði með skelfingu á eftir kúlunni sem stefndi á hóp karlmanna.
Kúlan lenti inni í miðjum hópnum og einn maðurinn hné til jarðar haldandi
báðum höndum á milli fótanna, greinilega sárþjáður.
Vinkonurnar hlupu til mannanna og þegar þær komu að hópnum hélt maðurinn enn höndunum á milli fótanna.
Sú sem hafði slegið kúlunni baðst afsökunar og bauð fram aðstoð.
Maðurinn vildi ekki að svo stöddu þiggja aðstoð og sagðist jafna sig eftir
smá stund. 
Konan þráaðist við, sagðist vera sjúkraþjálfari og vildi fá að þreifa aðeins
á manninum.
Maðurinn lét tilleiðast og fékk hún hann til að leggjast á bakið, tók hendur
hans frá, renndi buxnaklaufinni niður og byrjaði að nudda hann rólega.
Eftir smástund spurði hún manninn hvernig honum þætti þetta.
Maðurinn svarar "Þetta er mjög gott, en ég er ennþá að drepast í
þumalputtanum!"


ERU BRETAR ENDANLEGA AÐ KLÚÐRA ENDURHEIMTU SJÁLFSTÆÐIS SÍNS???

"Það er ekki ein báran stök í 12 vinstigum".  Það hefur allt farið úrskeiðis sem gat farið úrskeiðis, í "samningaviðræðum" Theresu May og ESB, vegna úrgöngu Breta úr sambandinu.  Þetta kemur svo sem ekki á óvart því Theresa May var hörð á því að vera áfram í ESB og hverjum dettur í hug að hún hafi í einlægni getað leitt viðræðurnar um úrgöngu Breta úr sambandinu.  Enda er það komið í ljós að henni hefur ekkert orðið ágengt og sumir halda því fram að hún hafi bara fest Breta enn meira inn í ESB en áður var, nema að því leiti að þeir hafi þar engin áhrif lengur. Það er í sjálfu sér "kómískt", að einn helsti ásteytingssteinninn í viðræðum Breta og ESB skuli vera að landamærin milli Norður Írlands og Írlands séu ekki nægilega ÖRUGG OG OF EINFALT AÐ FARA ÞAR UM.  Og ESB sem vill ENGIN landamæri og þar með ENGIN þjóðríki.  Það er bar öllum ljóst, sem vilja sjá það, að gangi Bretar út úr ESB hrynur sambandið og hvað tekur þá við? Samkvæmt könnunum hefur stuðningur almennings við Brexit aukist en meirihluti þingmanna eru sambandssinnar, þannig að það er víðar en á Íslandi þar sem er GJÁ milli þings og þjóðar........


mbl.is Óska eftir frestun Brexit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband