EKKI BARA ÍSLENDINGAR SEM ÞURFA AÐ BERJAST GEGN "INNLIMUNARSINNUM" OG ÞEIM SEM VILJA FÓRNA FULLVELDINU...

Í gærkvöldi horfði ég á þátt í Norska sjónvarpinu (NRK), sem heitir DEBATTEN og er umræðuþáttur svipaður og "Silfrið" hér á landi, þarna var aðild að ESB til umræðu og upptaka evru.  Erna Solberg, formaður Højre var þarna fyrir INNLIMUNARSINA og svei mér þá hún gaf formanni Viðreisnar ekkert eftir í málflutningi sínum (eins og allir vita þá opnar formaur Viðreisnar ekki munninn á þess að koma evrunni og aðild að ESB að).  En það sem kom mér mest á óvart var það að INNLIMUNARSINNAR á Íslandi og Noregi, virðast vera búnir að SAMRÆMA "aðgerðir" sína til að LOKKA menn til fylgi við  aðild landanna að ESB, til dæmis var Ernu Solberg tíðrætt um hversu DÝR Norska krónan væri fyrir Norðmenn (nákvæmlega það sama og Íslenskir INNLIMUNARSINNAR eru búnir að "jarma" um árum saman) og voru þetta helstu rökin fyrir því að Norðmenn ættu að taka upp evru.  En væri ekki ráð að skoða aðeins hver skilyrðin fyrir upptöku evru eru?

  • FYRSTA SKILYRÐIÐ ER AÐILD AÐ ESB.
  • GENGIÐ ÞARF AÐ HAFA VERIÐ STÖÐUGT Í ÞRJÚ ÁR.
  • VEXTIR Á LANDINU ÞURFA AÐ HAFA VERIÐ UNDIR 4,5% Í ÞRJÚ ÁR.
  • VERÐBÓLGA ÞARF AÐ VERA UNDIR 4,5% Í MINNST ÞRJÚ ÁR.

AÐ ÞESSUM SKILYRÐUM UPPFYLLTUM ER BARA EKKI NOKKUR ÁSTÆÐA TIL ÞESS AÐ TAKA UPP EVRU, HVORKI Á ÍSLANDI EÐA NOREGI.  Svo er önnur spurning sem hlýtur að koma upp hjá mönnum; HALDA INNLIMUNARSINNAR AÐ EVRAN VERÐI ÁN KOSTNAÐAR EF HÚN YRÐI TEKIN UPP???????


EN VIRÐIST SKIPTA AFSKAPLEGA LITLU MÁLI ÞÓTT ALLT SÉ "BOTNFROSIÐ" HÉR Á LANDI...

Þarna kemur FORGANGSRÖÐUNIN berlega í ljós hjá þessu liði.........


mbl.is Hrikalegar fregnir frá Úganda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ VAR SVOSEM ALVEG EFTIR ÞVÍ - HUGMYNDALEYSIÐ ALGJÖRT.....

Og ekki vottur af því að það sé skoðað hvort sé verið að NÝTA núverandi tekjustofna nægilega vel eða hvort stofnanir ríkisins séu að nýta það fármagn sem þeim er úthlutað á sem "hagkvæmasta máta.  Þess í stað á bara að æða í skattahækkanir og niðurskurð, sumum er bara ekki viðbjargandi.........


mbl.is Aðhald og skattahækkanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TELUR ÞÁ SEÐLABANKINN EKKI "ÞÖRF" Á MEIRI VAXTAHÆKKUNUM?????

Það væri fróðlegt að þetta fólk færi að láta aðeins heyrast frá sér og segja sína hlið á málunum........


mbl.is Verðbólgan muni hjaðna um mitt ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HÚN ER SÍÐUR EN SVO BETRI SÚ MÚSIN SEM LÆÐIST EN SÚ SEM STEKKUR....

Menn og konur hafa sífellt verið að benda á hversu mikið EES samningurinn hefur verið að breytast í gegnum árin í þá áttina að áhrif ESB á stjórn landsins hafa sífellt verið að aukast.  Og núna á að gera kröfu um það að LÖG ESB VERÐI ÆÐRI STJÓRNARSKRÁ LANDSINS.  ÞAÐ ER ALVEG LJÓST AÐ NÚ UM STUNDIR ER RUNNIN UPP ÖGURSTUND HJÁ OKKUR ÍSLENDINGUM.   Eigum við endalaust að kyssa á vöndinn þar til sjálfstæðið verður endanlega fyrir bý????????


ALVÖRU EFNAHAGSUMBÆTUR SEM KÆMU ÖLLUM TIL GÓÐA...........

Núna er verið að tala um alls konar ráðstafanir sem ríkið ætti að grípa til vegna þeirra gífurlegu verðhækkana sem hafa orðið og þá aðallega á matvælum og svo ekki sé talað um hækkanir sem hafa orðið á eldsneyti (eldsneytið er nú eitthvað að lækka lítillega en ansi gengur það nú hægt).  Ekki eru allir sammála um það hverjar þessar aðgerðir ættu að vera en það er alveg á tæru að eitthvað þarf að gera því hækkanir á nauðsynjavöru til heimilanna eru  alveg gengdarlausar en launin hækka ekkert á móti og ofan á allt mælist verðbólgan yfir 10% -stigum.  Flestir benda á hið augljósa, það er að lækka virðisaukaskattinn á matvöru, hreinlætisvöru, eldsneyti og fleiru en það má Fjármálaráðherra ekki heyra nefnt, enda bíta þessar hækkanir lítið sem ekkert á hátekjufólki eins og honum og stjórnmálafólki yfirleitt.  Og hefur helst mátt skilja á stjórnmálafólki að ekki sé enn komin ástæða til aðgerða af hendi stjórnvalda.  Ég veit að það er hægt að grípa til aðgerða, sem bæði lækka útgjöld heimilanna mjög mikið og auka tekjur ríkisins verulega. Einhver hlýtur að spyrja sig að því hvernig það sé hægt að lækka skatta en um leið að auka tekjur ríkisins af skattheimtu?  Svarið er einfalt að leggja niður virðisaukaskattkerfið, sem er bæði flókið og þungt í vöfum og vegna þess hve erfitt er að hafa eftirlit með því er mikil hætta á að það sé misnotað.   Þá er mikið um undanþágur frá virðisaukaskatti í hinum ýmsu atvinnugreinum og vissulega „skekkir“ það samkeppnisstöðu margra fyrirtækja.  En hvað ætti þá að koma í stað virðisaukaskattskerfisins?  Svarið er einfalt, það er veltuskattur,  þar sem öll fyrirtæki landsins greiddu ákveðna prósentu af veltu fyrirtækisins og væri engin undaþága veitt á því.  Þessi prósenta yrði 6,00% og af því leiddi að tekjuauki ríkisins yrðu, miðað við gögn sem ég hef undir höndum milli 60 – 80 milljarðar ári.   Ástæða þess að ég valdi þessa prósentutölu var sú að ríkissjóður er algjörlega tómur og þarf á auknum tekjum að halda, en ef tekjur ríkisins ættu að verða óbreyttar frá því sem þær eru í dag ætti veltuskattsprósentan að vera rétt rúmlega 4,50%.  Á þessu sést hversu gífurlega miklu munar um hvert prósentustig.

 

VIRÐISAUKASKATTUR – VELTUSKATTUR

Virðisaukaskattur skiptist í útskatt og innskatt.  Útskattur er sá skattur sem er greiddur af tekjum sem viðkomandi greiðir af þeim tekjum sem hann hefur af starfsemi sinni. En innskattur er það sem viðkomandi fær endurgreitt af hráefniskaupum og öðrum kostnaði sem fellur til vegna starfseminnar.   Hér á landi er virðisaukaskatturinn í tveimur þrepum annars vegar 24% og hins vegar 11%, það fer eftir starfsemi viðkomandi fyrirtækis í hvoru virðisaukaskattsþrepinu fyrirtækið lendir.  Það fyrirtæki sem er með allar sínar tekjur í 11% þrepinu en hráefniskostnaði og annan rekstrarkostnað í 24% þrepinu, lendir undantekningalaust í því að innskatturinn verður hærri en útskatturinn, það er að segja að fyrirtækið fær endurgreiddan virðisaukaskatt og þá skiptir engu máli hvort hagnaður er af rekstrinum eða ekki.  Og svo greiða fyrirtæki sem selja framleiðslu sína erlendis ekki virðisaukaskatt en þau fá greiddan innskatt af hráefniskostnaði sínum og öðrum rekstrarkostnaði, til dæmis fékk stóriðjan í landinu endurgreiddan VSK 56,573 milljarða á virði ársins 2011,  á núvirði, reiknað í byrjun febrúar 2023,  105,732 milljarðar.  Rétt er að benda á það að um miðja síðustu öld,var það mjög ofarlega á listanum hjá Íslenskum stjórnvöldum að ganga í ESB eða EBE eins og það hét þá og eitt af skilyrðum sem EBE setti var að öll aðildarríkin og væntanleg aðildarríki innleiddu virðisaukaskatt að Evrópskri fyrirmynd og strax árið 1971 skilaði Jón Sigurðsson, sem síðar varð ráðherra Alþýðuflokksins, fyrstu skýrslunni um ávinning þess að innleiddur yrði virðisaukaskattur hér á landi.  Þátt fyrir að margar skýrslur væru unnar og mörg álit skrifuð um virðisaukaskatt, þá var hann ekki innleiddur  hér á landi fyrr en árið 1990, margir höfðu efasemdir um þetta fyrirbæri og nú þegar virðisaukaskatturinn hefur verið við lýði í rúm 30 ár ætti að vera komin þokkaleg reynsla á virkni þessa fyrirbæris.  En þó er ég nokkuð  sannfærður um það að fyrst innleiðing virðisaukaskattsins var að kröfu ESB þá verður ekki hróflað við honum jafnvel  þótt sýnt sé fram á að það væri margfalt hagkvæmara fyrir þjóðfélagið að hann viki.

Veltuskattur er, eins og nafnið gefur til kynna, skattur sem er lagður á sem hlutfall af veltu (verð x magn).   Einungis er sá skattur í einu þrepi og engar undanþágur eru, þetta gerir það að verkum að eftirlit er fremur einfalt og þar af leiðandi er minni hætta á að kerfið verði misnotað.  Eins og áður hefur komið fram, þá er munurinn á að  reka þessi  tvö kerfi alveg gríðarlegur og kannski vegna þess má reikna með að gífurleg andstaða verði við að leggja virðisaukakerfið niður og taka upp veltuskatt, því það er nokkuð ljóst að starfsmönnum við eftirlit myndi fækka nokkuð mikið, svo er það mjög viðkvæmt vegna þess að VSK er eitt af skilyrðunum fyrir ESB aðild og eitt af grunnskilyrðum fyrir EES samningnum.  En sjái stjórnvöld að ekki sé grundvöllur fyrir því að leggja VSK niður og taka upp veltuskatt, þá verður að gera breytingu virðisaukaskattlögunum og setja í LÖG að ekkert fyrirtæki eða einstaklingur fái meir gett úr virðisaukskattkerfinu enn  hann hafi greitt i það.  Það gefur auga leið að þegar skattþrepin í virðisaukaskattinum eru þrjú eins og er hér á landi (0% skatturinn er líka þrep, þá er 11% þrep og síðast er 24% þrep).  Það er ekki bara stóriðjan sem fær endurgreiddan VSK (þótt vissulega fái hún mest), útgerðin fær nokkuð mikið, ferðaþjónustan er mjög stórtæk.  Það er nokkuð augljóst að fyrirtæki sem eru með sínar tekjur í 11% og kostnaðinn í 24%, fær verulega endurgreidd úr VSK kerfinu og ég tala nú ekki um þá sem hafa tekjur sínar í 0%.  EN TIL ÞESS AÐ FÁ SVIPAÐAR TEKJUR OG TEKJUAUKA ÚT ÚR VSK KERFINU OG AÐ VERA MEÐ VELTUSKATT ÞYRFTI AÐ VERA MEÐ EITT VIRÐISAUÐAUKASKATTSÞREP AР UPPHÆÐ 11% EN  YRÐI VSK ENN OFANÁ YRÐI AÐ FÆKKA UNDANÞÁGUM Í VSK VERULEGA MIKIÐ.

 

HVERNIG VINNU VIÐ ÞESSA ÚTTEKT  VAR  HÁTTAÐ

Fyrst og fremst var unnið úr gögnum sem voru fengin frá RSK (Ríkisskattstjóra) árið 2016 (nú heitir þessi stofnun Skatturinn).  Út úr þessum gögnum sem innihéldu allt sem viðkom virðisaukaskattskilum landsmann fyrir árin 2011-2015 (bæði árin meðtalin).  Þarna inn vantaði þann virðisaukaskatt sem var innheimtur hjá Tollstjóra og til þess að fá það út varð að fara inn á heimasíðu Fjársýslu ríkisins og nálgast þar ríkisreikninga viðkomandi ára.  Siðan þurfti að samræma viðkomandi gögn og vinna úr þeim og fá út þær upplýsingar sem nauðsynlegar voru.  Mörg skjöl kom út úr þessari vinnu og væri það til að æra menn að birta það allt en tvö skjöl tel ég nauðsynlegt að fólk fái að sjá og gæti þá mynda sér skoðun á því sem hér hefur verið fjallað um.

 

Endurgreiðslur til stóriðjunnar 1

 

 

 

Mynd 1:  Endurgreiðslur til stóriðjunnar 2011-2015 á þávirði og núvirði.

 

„KLIKKIГ Á MYNDINA TIL AÐ STÆKKA HANA

 

 

Heimildir:

https://www.fjs.is/utgefid-efni/rikisreikningur/  Sótt þann 02.05.2022

Ecxel skrá um allt viðkomandi VSK skilum fyrir árin 2011-2015 fengin frá RSK í júní árið 2018.

Skúli Eggert Þórðarson og Jón Guðmundsson,  Virðisaukaskattur í aldarfjórðung, Tíund (nóvember 2014)

Þjóðskjalasafn Íslands (2001).  Skattamál  Fjármálaráðuneytið 1969-1980.  ÞT/12.  Skýrsla til Fjármálaráðherra 1971.  Greinargerð um virðisaukaskatt 1975.  Fleyri skýrslur,   Askja 1


NÚ VERÐUR "FJÖR" HJÁ SKATTA-KÖTU - EKKI LÝTUR FRAMTÍÐIN BJÖRGULEGA ÚT...

Eins og við var að búast þá verður ekki farið í að sporna við útþenslunni innan opinbera geirans, heldur verða skatta hækkaðir og skorið niður í allri þjónustu, nema það verður bætt dekrið við hælisleitendur og svo verða "loftslagstrúarbrögðin" enn á þeim stalli sem þau hafa verið og engin breyting á austrinum í þau og svona mætti lengi telja......


mbl.is Boða aukna skattheimtu og niðurskurð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG VILJA MENN ENN HALDA DAUÐAHALDI Í ÞENNAN ÞJÁLFARARÆFIL?????

Hversu langt niður á FIFA-listanum telja menn ásættanlegt að þessi þjálfaralufsa dragi landið niður, án þess að stjórn KSÍ grípi til nokkurra aðgerða??????????


mbl.is Þetta voru tvö heppnismörk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HEITIR "RUSLAHAUGARALLIÐ" NÚNA "MARSRALLIÐ"........

En er búið að gera einhverjar breytingar á framkvæmdinni og innihaldinu?  Mér skilst að það sé ansi lítil  breyting sem hafi orðið þarna og enn séu "vísindin" ekki með í ferð.............


mbl.is Marsrallið hálfnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ENN UM EES SAMNINGINN OG SCHENGEN SAMNINGINN. ÞESSA SAMNINGA VERÐUR ÍSLAND AÐ LOSA SIG VIÐ ÁÐUR EN ALLT FER Í "SKRÚFUNA" OG LANDIÐ VERÐUR LAGT ALVEG Í RÚST...

Nú er búið að staðfesta það að Ursula Gertrud von der Layen, er búin að neita beiðni Kötu litlu um undanþágu vegna mengunar frá flugi.  Það er nokkuð ljóst að með þessari aðgerð LEGGST FERÐAÞJÓNUSTAN AÐ ÖLLUM LÍKINDUM AF.  Kannski væri nú ekki svo vitlaust að menn færu ALMENNILEGA YFIR HVERJIR KOSTIR OG GALLAR EES SAMNINGSINS ERU RAUNVERULEGA (skýrsla Björns Bjarnasonar, hérna um árið, var einskis virði og tók ekkert á þeim málum sem hún átti að gera).  Þegar Ísland samþykkti EES samningin (ekki eru allir sammála um lögmæti hans en stjórnarskráin samþykkir EKKERT FRAMSAL Á FULLVELDI LANDSINS), var samningurinn gerður í anda RÓMAR sáttmálans en síðar kemur til LISSABON sáttmálinn og þá varð GJÖRBREYTING á EES samningnum og að mínu áliti kallar það að MINNSTA KOSTI Á ENDURSKOÐUN EES SAMNINGSINS EF EKKI UPPSÖGN HANS.  RÉTT ER AÐ MINNA Á ÞAÐ AÐ KANADA NÁÐI MUN HAGSTÆÐARI TVÍHLIÐA SAMNINGI VIÐ ESB EN ÍSLAND HEFUR Í GEGNUM EES SAMNINGINN OG ÞAR AÐ AUKI ÞURFA KANADAMENN EKKI AÐ TAKA UPP LÖG OG REGLUGERÐIR FRÁ ESB.......


ÍSLENDINGAR VERÐA AÐ FARA AÐ HERÐA SIG Í GEÐLYFJANEYSLUNNI.....

Íslendingar eiga víst heimsmet í neyslu geðlyfja (þunglyndislyf og fleira), samt sem áður náum við bara þriðja sæti yfir HAMINGJUSÖMUSTU ÞJÓÐ Í HEIMI.  ÞAÐ ER AUGLJÓST MÁL AÐ ÞAÐ ER EITTHVAÐ MIKIÐ AÐ........


mbl.is Finnar hamingjusamastir sjötta árið í röð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER "SÉRSTAKLEGA MIKILL ÞRÝSTINGUR" Á ÍSLAND FRÁ ESB VEGNA "ORKUSKIPTANNA????

Það vekur sérstaka athygli að ALLT virðist eiga að vera gengið yfir varðandi þessi svokölluðu "ORKUSKIPTI" fyrir árið 2030 og þrýstingurinn frá ESB virðist vera alveg gríðarlegur.  EÐA GETUR VERIÐ AÐ ÍSLENSK STJÓRNVÖLD SÉU BARA AÐ ÝKJA OG SETJI SÉR ÞESSI MARKMIÐ ALVEG SJÁLF????  Það er nú bara þannig að ef maður skoðar aðildarríki ESB, ER EKKI HÆGT AÐ SJÁ AÐ EITT EINASTA ÞEIRRA GETI STAÐIÐ VIÐ SETT TÍMAMÖRK ESB............


KANNSKI ÞESSI GREIN HREYFI VIÐ STJÓRN KSÍ????????

Það er nokkuð ljóst að margir eru algjörlega búnir að fá sig fullsadda af aðalþjálfara A - landsliðs karla í knattspyrnu.  Ætlar stjórn KSÍ endalaust að hunsa þetta???????


mbl.is Gummi Ben: Mun ekki líða endalausar árásir að heiðri og persónu Alberts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SÍÐAN HVENÆR ER GRIMSTAD Í ARENDAL?????????????

Verður ekki að gera einhverja lágmarkskröfu til þeirra sem skrifa fréttir og verður ekki að segja rétt frá????????


mbl.is Til hjartasérfræðings 19 ára eftir kókaín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER VÍST TIL NÓG AF "ÞJÓÐNÝÐINGUNUM" ÞARNA Á VINSTRI KANTI STJÓRNMÁLANNA...

Þar með er Viðreisn líka meðtalin og ekki nóg með  að þar fari VINSTRI flokkur heldur er þar um að ræða "VINSTRI ÖFGAFLOKK"........


mbl.is Hættur í VG eftir samþykkt útlendingafrumvarps
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÓRÖKSTUDDAR FULLYRÐINGAR OG "TRÚAROFSTÆKI" INNLIMUNARSINNA...

Í Fréttablaðinu á blaðsíðu 13, er grein eftir einhvern Ole Anton Bieltvedt, þar sem hann er að gagnrýna umfjöllun þingkonu Sjálfstæðisflokksins Diljá Mistar Einarsdóttur.  Ég las grein Diljár og ég verð bara að segja að ef Ole Anton Bieltvedt  myndi rökstyðja mál sitt jafn vel og Diljá Mist Einarsdóttir gerir í grein sinni, væri í lagi með þessa grein hans í Fréttablaðinu í dag SJÁ HÉR.  Hann segir meðal annars í grein sinni: "Stýrivextir eru nú 3,0%......ECB (Evrópski selabankinn) ráði stýrivöxtum í þeim 26 löndum sem eru aðilar ESB" Þetta er rétt hjá honum en er jafnframt VANDAMÁL sem INNLIMUNARSINNAR vilja ekki viðurkenna.  Það að löndin sem eru aðilar að ESB og eru með evruna sem gjaldmiðil,AFSALA SÉR STJÓRN EFNAHAGSMÁLA LANDSINS TIL EVRÓPSKA SEÐLABANKANS, þar kemur meðal annars skýringin á 26% verðbólgu í Ungverjalandi svo reynir hann líka að mótmæla því að VERÐBÓLGA SÉ MISMUNANDI HÁ INNAN ESB LANDANNA. Verðbólga hér á landi er síður en svo krónu/evru-spurning.  VERÐBÓLGAN HÉR Á LANDI ER TILKOMIN VEGNA AFSPYRNU MIKILLAR ÓSTJÓRNAR Í EFNAHAGSMÁLUM.  Þá heldur hann því einnig fram í grein sinni að Diljá Mist Einarsdóttir kenni ESB leiðtogum um orkukrísuna í Evrópu.  Ég fann EKKERT í grein Diljár Mistar, sem rennir stoðum undir þessa fullyrðingu hans (ég tek fram að ég er ekki hallur undir Sjálfstæðisflokkinn) en ég á frekar erfitt með að umbera það að menn fari með rangt mál.  Að sjálfsögðu þarf að hafa það að leiðarljósi við ESB aðild, hvernig til hefur tekist hjá öðrum löndum og út frá því að ákveða hvort full aðild sé fýsilegur kostur fyrir Ísland.  Svo kemur hann með 13 númeraða kosti, sem hann telur að þurfi að taka tillit til við hugsanlega aðild Íslands að ESB og upptöku evru.:

  1. Í gegnum EES- og Schengen-samningana erum við nú þegar 80–90% í ESB, en án áhrifa og valda; við erum hvorki með þingmenn á Evrópuþinginu, kommissar, ráðherra, í Brussel né aðgang að umræðu og ákvörðunum.  Engin rök eða tilvísanir.
  2. Með  fullri aðild fengjum við sex þingmenn á Evrópuþingið, kommissar í Brussel, eins og öll hin aðildarríkin, og setu við borðið.  Engin rök eða tilvísanir.
  3. Eins og öll aðildarríkin fengjum við neitunarvald gagnvart öllum helztu stefnumálum og ákvörðunum sambandsins. Við gætum látið rödd okkar heyrast og tryggt okkar eigin hagsmuni.  Aftur engin rök eða tilvísanir.
  4. Ætla má, að við myndum halda fullum yfirráðarétti yfir okkar auðlindum, fiskimiðum, eins og Malta, þegar hún varð aðildarríki.  Þarna eru INNLIMUNARSINNAR aðeins farnir að draga í land.  Fram til þessa hafa þeir haldið því fram að Ísland myndi að FULLU HALDA YFIRRÁÐUM Á AUÐLINUM SÍNUM.  Ástæða þess að  Malta hélt yfirráðunum yfir fiskimiðum sínum er sú að Malta hefur einungis 12 sjómílna lögsögu og samkvæmt reglum ESB eru ÖLL lögsaga utan 12 sjómílna sameiginleg með löndum í ESB.
  5. Ég tel líka, að við gætum tryggt hagsmuni og stöðu íslenzks landbúnaðar við inngöngu, eins og Finnum og Svíum tókst, vegna „norrænnar legu“.  Sennilega er þetta nokkuð rétt en hann vísar ekki í neitt máli sínu til stuðnings.
  6. Með evru myndum við vita, hvað við eigum og skuldum. Hvorutveggja myndi haldast stöðugt og óbreytt.  Þessa fullyrðingu sína styður hann ekki með neinum rökum heldur er eingöngu um eitthvað að ræða sem hann heldur að verði og því miður hefur það sem þessi maður hefur sent frá sér ekki gert það að verkum að ég telji að mark sé á því takandi.
  7. Vaxtakostnaður einstaklinga, fyrirtækja, sveitarfélaga og ríkisins myndi haldast lágur; að meðaltali þriðjungur af krónu-vöxtum.  Enn einu sinni kemur hann með algjörleg órökstuddar fullyrðingar og eingöngu sínar hugmyndir, sem ég tel afskaplega lítils virði.
  8. Heildarvaxtasparnaður lántakenda landsins gæti numið um 300 milljörðum á ári (heildarskuldsetning landsmanna 6.000 milljarðar, vextir hér 4–6% yfir vöxtum í evrulöndum).  Hvaða gögn liggja á bak við þessa fullyrðingu?
  9. Vextir á lánum myndu ekki breytast, hækka, við stýrivaxtahækkanir, svo lengi sem lánasamningar væru í gildi.  Þetta er alveg rétt hjá honum, því stýrivextir hækka ekki, því með því að ganga í ESB afsölum við okkur efnahagslegu sjálfstæði landsins til Seðlabanka Evrópu (EC).
  10. Íbúðakaupendur myndu ekki þurfa að greiða íbúðir sínar 3–4 sinnum, með vöxtum, eins og hér, en íbúðakaupendur evru-landa greiða þær 1,5 sinnum.  Enn einu sinni kemur hann ekki með nokkurn skapaðan hlut, sem rennir stoðum undir það sem hann er að halda fram.
  11. Erlendar smásölukeðjur og -bankar kæmu hér inn, sem myndi stórauka samkeppni og lækka vöruverð og þjónustugjöld.  Erlendir bankar hafa hingað til ekki séð ástæðu til að koma til landsins VEGNA SMÆÐAR MARKAÐARINS.  Svo má einnig geta þess að ef Ísland gengi í ESB þarf að sækja um að taka upp evru og það tæki MINNST 10 ár að sú umsókn yrði tekin fyrir eða hafnað.
  12. Erlendir fjárfestar myndu koma hér inn og örva uppbyggingu og tryggja auknar framfarir og velsæld.  Enn einu sinni engin rök eða heimildir heldur eingöngu óskhyggja INNLIMUNARSINNA.
  13. Ef við getum ekki tryggt okkar hagsmuni við samningaumleitanir, förum við ekki inn.  Í þessum síðasta "punkti" kemur líklega það eina sem er af einhverju smá viti hjá honum...

Þar með er ég búinn að hrekja að mestu leiti bullið í manninum en auðvitað er hann með sínar skoðanir áfram en hann verður að rökstyðja þær betur, ef  hann ætlast til að einhverjir sem hafa einhverja gagnrýna hugsun í kollinum, taki eitthvert mark á honum.........


HANN ÞARF Á HJÁLP AÐ HALDA TIL AÐ HALDA STARFINU........

Og aðeins þess vegna hringir hann í Albert Guðmundsson, því loksins er hann farinn að gera sér grein fyrir því að þolinmæði landsmanna er löngu þrotin og ekki kæmi mér á óvart að stjórn KSÍ væri eitthvað farin að "ókyrrast".  Ég get bara ekki með nokkru móti skilið hvað það er sem veldur því að það er ekki fyrir löngu búið að reka þennan mann úr starfi????????


mbl.is Arnar rétti fram sáttahönd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HANN ÆTTI NÚ FREKAR AÐ HUGSA UM HVERNIG HANN GÆTI NÝTT BETUR ÞÁ TEKJUSTOFNA SEM FYRIR ERU.......

Þar má til dæmis nefna VIRÐISAUKASKATTSKERFIÐ, sem er einn GALLAÐASTI tekjustofn ríkisins sem til er. Virðisaukaskattur var innleiddur 1.janúar árið 1990, eftir næstum tveggja áratuga undirbúning og japl og fuður (árið 1971 skilaði Jón Sigurðsson, síðar Viðskiptaráðherra, skýrslu um ágæti þess að taka upp virðisaukaskatt hér á landi).  Íslenskir stjórnmálamenn (sumir eru jú ákafari en aðrir) hafa nú alltaf verið veikir fyrir inngöngu  í ESB og að kröfu ESB var virðisaukaskatturinn tekinn upp og GALLAR þess gerðir eins slæmir og mögulegt var (þegar nefnd um upptöku virðisaukaskatt, fór til Norðurlandanna til að kynna sér hvernig virðisaukaskatturinn virkaði þar, vöruð Danskir embættismenn skattsins þar í landi sérstaklega við því að hafa virðisaukaskattsþrepin fleiri en EITT því þá yrði kerfið mjög flókið og eftirlit erfitt eða jafnvel óframkvæmanlegt).  En hvað var gert?  Virðisaukaskatturinn var ekki búinn að vera lengi í gangi þegar bætt (árið 10993) var við ÞRIÐJA skattþrepinu, alveg frá upphafi þess að virðisaukinn var tekinn upp voru þrepin tvö (núll prósent virðisaukaskattur er líka skattþrep).  ÞRIÐJA þrepið vara "ranglega" nefnt MATARSKATTURINN (en með tímanum var ýmsum flokkum starfsemi bætt þarna inn og með tímanum er þetta þriðja þrep orðið mjög stórt vandamál svo ekki sé talað um 0-þrepið).  Og svo eru undanþágurnar frá þessu kerfi orðnar allt að því óteljandi.

EN HVER GÆTI LAUSN VANDANS VERIÐ:  Til að byrja með þarf að EINFALDA virðisaukaskattinn VERULEGA.  Með því að FÆKKA undanþágum VERULEGA, vera með EITT skattþrep til dæmis 11% (sem er það sama og LÆGRA þrepið er í dag).  Setja inn í lög að enginn fái hærri greiðslu úr virðisaukaskattskerfinu en hann hefur greitt þar inn.  Sem dæmi er hægt að nefna að þar sem öll framleiðsla álveranna fer til ÚTFLUTNING lenda þau í 0-þrepinu en fá ALLAN innskatt sinn endurgreiddan (ÚTSKATTUR er sá virðisaukaskattur nefndur sem fyrirtæki greiðir af SÖLU sinni en INNSKATTUR er það sem fyrirtækið fær endurgreitt vegna starfseminnar), sá INNSKATTUR  sem álverin fá endurgreddan eru meira en 100 MILLJARÐAR Á HVERJU ÁRI.  Fleiri atvinnugreinar er hægt að nefna sem eru með tekjur sinar (útskatt) í lægra þrepi en kostnaðinn (INNSKATT) í hærra þrepi eins og til dæmis ferðaþjónustan og það segir sig alveg sjálft að hún (ferðaþjónustan) er að fá tugi milljóna endurgreiddar út úr þessu kerfi á ári.  Bara með þessum aðgerðum væri hægt að auka tekjur ríkisins MIKIÐ og eflaust er margt annað hægt að gera....... 


mbl.is Salan fjármagni innviði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SVEI MÉR ÞÁ ÉG HELD ÉG HAFI ALDREI SÉÐ JAFN HÖRMULEGAN LEIK HJÁ LANDSLIÐINU Í HANDBOLTA......

Meira að segja var þessi leikur lélegri en leikurinn á móti Ungverjum á HM í janúar og er þá mikið sagt.  En eitt var þó jákvætt sem kom út úr þessum leik FRAMMISTAÐA LIÐSINS Á HM SKRIFAST EKKI Á GUÐMUND ÞÓRÐ GUÐMUNDSSON HELDUR SKRIFAST HÚN ALFARIÐ Á LEIKMENNINA OG ÞAÐ ER ALVEG LJÓST AÐ ÞAR VERÐUR MIKIL VINNA FRAMUNDAN.  Getur verið að leikmenn liðsins séu að "spara" sig þegar þeir leika fyrir Ísland svo þeir geti verið í góðu standi fyrir félagsliðið,  sem jú borgar launin þeirra???????


mbl.is Hroðaleg sóknarframmistaða í stóru tapi Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

INNFLUTNINGUR TIL LANDSINS - HUGLEIÐING...........

Ég held það hafi verið 1988, sem var nokkuð mikil umræða um Íslenska framleiðslu á móti innfluttum UPPÞVOTTALEGI, sem því miður endaði með því að Íslenska framleiðslan varð UNDIR í þeirri baráttu.  En við skulum fara örlítið nánar yfir þessi mál, en ég ætla að skoða tvö mál annað er uppþvottalögurinn og hins vegar "innflutning" á bökunarvörum til landsins:

Við skulum byrja á því að fjalla um UPPÞVOTTALÖGINN. Fyrir það fyrsta þá eru um 90% af uppþvottalegi VATN.  Á þessum tíma (um 1988), var verðið á innfluttum uppþvottalegi um það bil 1/3 LÆGRI en á Íslensku framleiðslunni en á móti kom að það þurfti um það bil ÞRISVAR SINNUM MEIRA MAGN AF INNFLUTTU VÖRUNNI TIL AÐ SKILA SAMA ÁRANGRI.

Þá er komið að BÖKUNARVÖRUNUM.  Ég var að hlusta á viðtal við bakarameistara áðan og hjá honum kom fram að innflutningur á bökunarvörum væri alveg gríðarlega mikill, EÐA UM 14 TONN Á DAG.  Þá kom líka fram hjá honum að visst hlutfall af deiginu væri VATN (ekki nefndi hann neitt sérstakt hlutfall enda hlýtur það að vera misjafnt eftir því hvort er verið að baka brauð, kökur eða kex).  En samkvæmt þessu er varlega áætlað að flutt séu inn til landsins TVÖ-ÞRJÚ TONN AF VATNI Á DAG.

Ég man eftir því að það hefur löngum gengið hér á landi ef verið er að tala um að ef einhver vitleysa er í gangi þá er því líkt við að ef KAFFI VÆRI FLUTT TIL BRASILÍU.  EN HVAÐ MEÐ ÞAÐ AÐ VERIÐ SÉ AÐ FLYTJA VATN TIL ÍSLANDS?????????


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband