EKKERT SEM KEMUR Á ÓVART ÞARNA - ÞESSIR ÞRÍR FLOKKAR HALDA BARA ÁFRAM MEÐ PÓLITÍSKT "HARAKIRI"

Eiginlega kemur það svolítið á óvart að Bjarni Benediktsson skuli enn eina ferðina leggjast "marflatur" undir "Vinstra Liðið" og núna til þess að "bjarga" PÓLITÍSKUM FERLI Katrínar Jakobsdóttur.  Það er honum "lífsnauðsyn" að komast í ríkisstjórn núna en það er vandséð að þetta útspil geri nokkuð fyrir pólitískan feril hans, nema síður sé.  En Sigurður Ingi er STÓRI TAPARINN í þessu sjónarspili öllu saman.  Vegna óvildar sinnar, í garð Sigmundar Davíðs,  þrjósku og einstrengingsháttar, er hann að sjá til þess að Framsóknarflokkurinn allt að því þurrkast út af korti stjórnmálanna og hann getur endanlega kvatt sviðið sjálfur.  Bjarni Benediktsson hefur "bjargað" pólitískum ferli Katrínar Jakobsdóttur í bili en VG er ekki búið að bíta úr nálinni með því að fara í þetta stjórnarsamstarf ennþá og ber titringurinn í VG, síðustu daga glöggt merki um það.  En því miður er dapurlegt að sjá að þeir sem yfirgefa VG eru að fara úr öskunni í eldinn með því að ganga til liðs við LANDRÁÐFYLKINGUNA..........


mbl.is 11 ráðherra stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SENNILEGA FLOKKAST ÞESSI GJÖRNINGUR UNDIR "KYNFERÐISLEGA ÁREITNI"

En það er orðið flókið mál að gera öllum til hæfis og sannast hið fornkveðna að ekkert má.  Ég á nú frekar bágt með að sjá eitthvað NEIKVÆTT við þetta.  En það er ekki annað hægt en að segja að þjálfun flugmannsins hafi skilað sér fullkomlega, menn þurfa að vera mjög góðir í sínu fagi til að vera færir um að gera þetta.  Því er það tillaga mín að það ætti að vera hluti af þjálfuninni að menn ættu að "gera svona listaverk" í lok þjálfunarinnar...... wink cool


mbl.is „Óásættanlegt“ að teikna typpi með herþotu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. nóvember 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband