SVONA LAGAÐ SANNAR ÞAÐ BARA AÐ ÞETTA FÓLK HEFUR ENGA ÞEKKINGU Á VIRÐISAUKASKATTINUM EÐA HVERNIG FRAMKVÆMDIN ER

Þegar stjórnmálamenn koma með svona "popúlistatillögur" er full ástæða til að skoða málið aðeins nánar.  Tökum bækurnar sem dæmi:  Um daginn fór ég í búð og þar voru hlið við hlið tvær bækur, önnur þeirra var þýdd kilja og var verðið á henni 4.600 krónur hin var erlend kilja og kostaði hún 915 krónur.  Sú þýdda var rúmlega fimm sinnum dýrari en sú erlenda, reyndar skal það viðurkennt að sú þýdda var mun eigulegri enda var sú erlenda um Mourhinio.  Verð þessara bóka er þannig að sú þýdda kostar 4.144 krónur án virðisaukaskatts en sú erlenda kostar 824 krónur án virðisaukaskatts.  En þar með er alls ekki öll sagan sögð.  Bókaútgáfa á Íslandi er með ALLAR TEKJUR sínar í LÆGRA virðisaukaskattsþrepinu (11%, sem er útskattsprósentan) en ALLUR KOSTNAÐURINN er í HÆRRA virðisaukaskattsþrepinu (24%, sem er innskattsprósentan).  Og svo til að auka þennan mun enn meira eru afskaplega fáir launamenn innan bókaútgáfunnar, þar eru flestir sem vinna við hana VERKTAKAR og ofan á verktakalaunin leggst 24% virðisaukaskattur sem bókaútgáfan fær síðar greiddan sem innskatt.  Þannig að þegar upp er staðið þá fær bókaútgáfan á hverju ári endurgreiddan virðisaukaskatt SVO SKIPTIR TUGUM MILLJÓNUM króna.  Svo er spurningin hvort ESA myndi ekki túlka þetta sem ólöglegan ríkisstyrk við eina atvinnugrein.  En svo aftur að tillögunni um að fella niður virðisaukaskattinn af bókum og einhverju fleiru sem telst til menningar.  ALLAR þessar greinar eru með tekjur í lægra þrepinu og kostnað í því hærra en með því að FELLA NIÐUR virðisaukaskattinn á þessum greinum ERU ÞÆR EKKI LENGUR Í VIRÐISAUKASKATTSKERFINU OG FÁ HELDUR EKKI NEINN INNSKATT ÚTGREIDDAN.  OG ÞANNIG VERÐUR SKAÐINN AF ÞESSARI NIÐURFELLINGU VIRÐISAUKASKATTS Á ÞESSAR GREINAR MEIRI EN ÁBATINN,FYRIR ÞÆR.....


mbl.is Ágætis stuðningur við málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. desember 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband