"HATURSORÐRÆÐA" - HVERJIR STUNDA HANA OG TIL HVERS??????

Jú þeir sem stunda HATURSORÐRÆÐU eru "Góða Fólkið" og Rétttrúnaðarliðið.l  Er það kannski ekki HATURSORÐRÆÐA að kalla þá sem EKKI hafa "rétta" skoðun, að mati ákveðinna aðila, RASISTA, FASISTA, NASISTA og fleiri ónefnum??  Og einnig eru þessir aðilar að reyna að þagga niður skoðanir sem eru þeim ekki að skapi.


mbl.is Hatursorðræða er samfélagsmein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HÚN GERIR SÉR GREIN FYRIR ÞVÍ AÐ GALLAR ESB ERU FLEIRI EN KOSTIRNIR

Í þessu felast líka skilaboð til þeirra sem eru aðilar að EES-samningnum:  "SKOÐIÐ HANN VEL OG ÍHUGIÐ HVORT HANN ER Í RAUNINNI AÐ SKILA EINHVERJU NEMA KOSTNAÐI"???


mbl.is „Við getum gert svo miklu betur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

Tveir gamlingjar, Jói og Siggi sitja á garðbekk í miðbænum. Þeir eru að gefa öndunum og spjalla um fótbolta eins og vanalega. Jói snýr sér að Sigga og spyr:

 "Heldurðu að það sé fótbolti í himnaríki?"

Siggi hugsar sig um og segir svo:

 "Ég veit það ekki. En gerum samning, ef ég dey á undan, þá geng ég aftur og segi þér ef það er fótbolti í himnaríki og ef þú deyrð fyrst, þá gerir þú það sama." Þeir handsala samninginn og nokkrum mánuðum síðar deyr Jói. Dag einn er Siggi að gefa öndunum, þegar hann heyrir hvíslað:

 "Siggi, Siggi..."

Siggi svarar:

 "Jói, ert þetta þú?" "Já," hvíslar andi Jóa til baka.

 "Er fótbolti í himnaríki?" spyr Siggi. "Ég er með góðar og slæmar fréttir," hvíslar andi Jóa. "Góðu fréttirnar fyrst," segir Siggi." "Það er fótbolti á himnum...."

 "Það er frábært!!" kallar Siggi upp yfir sig, "Hvaða fréttir gætu verið svo slæmar að þær skyggi á þessa frábæru fréttir,!?"

"Þú ert í marki á föstudaginn."


Bloggfærslur 22. september 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband