ÓTRÚLEGT AÐ ESB SKULI ENNÞÁ REYNA ÞENNAN ÁRÓÐUR OG ENN ÓTRÚLEGRA AÐ EINHVER SKULI TRÚA ÞESSU KJAFTÆÐI.....

Fyrst eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna frægu í Bretlandi, trúðu menn þessu og Breska pundið féll nokkuð mikið (hátt í 20%), en svo sáu menn að áhrifin voru bókstaflega engin áhrif.  Fyrirtæki og stofnanir áttu að flytja frá Bretlandi og til Evrópu og þá sérstaklega til Parísar, en það gerðist ekki og nú berast fréttir af því að fyrirtæki og þá sérstaklega fjármálafyrirtæki í Evrópu, hyggi á flutning til Bretlands.  Nú eru menn farnir að átta sig á því að BRexit hefur MUN alvarlegri afleiðingar fyrir ESB en Bretland og nefni ég hér á eftir nokkur atriði: Fyrir það fyrsta minnkar þessi "stóri" markaður sem ESB sem INNLIMUNARSINNAR tala svo mikið um  úr 500 milljón manns niður í 436 milljónir manna.  Þetta eru rúm 5% af heildarmannfjölda heimsins.  VÆRI EKKI NÆR AÐ HUGA AÐ 95% MARKAÐNUM, SEM ÞAR AÐ AUKI KREFST EKKI FULLVELDISFRAMSALS AF OKKUR? Hagvöxtur innan ESB hefur verið mjög lítill og sá litli hagvöxtur sem hefur verið hefur verið mestur í Bretlandi og er því mikil hætta á efnahagslegum samdrætti hjá ESB eftir BREXIT.  Hin ESB ríkin hafa flutt mun meira af vörum til Bretlands og nú verður sá útflutningur allur í uppnámi.  Bretar hafa greitt stjarnfræðilegar upphæðir til ESB og nú skrúfast fyrir þessar greiðslur en það verður ekkert létt verk að draga "báknið í Brussel saman".  OG SVO ER AÐALMÁLIÐ AÐ EF BRETUM VERÐUR GERT MÖGULEGT AÐ YFIRGEFA SAMBANDIÐ, ÁN ÞESS AÐ ÞEIM VERÐI GERT ÞAÐ MJÖG ERFITT OG BEITT VIÐ ÖLLUM MÖGULEGUM OG ÓMÖGULEGUM RÁÐUM, SKAPAST MÖGULEIKI FYRIR ÖNNUR RÍKI AÐ YFIRGEFA SAMBANDIÐ.  ÞVÍ ER HÆGT AÐ SEGJA AÐ EF BREXIT VERÐUR AÐ VERULEIKA, ER ÞAÐ UPPHAFIÐ AÐ FALLI ESB OG NÆST KEMUR SVO ENDANLEGA "ROTHÖGGIÐ" SEM ER EVRAN..........


mbl.is Líkja Brexit við Eyjafjallajökul
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. janúar 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband