EITTHVAÐ "ER NÚ SKRÝTIÐ Í KÝRHAUSNUM"........

Hann talar um loftslagsbreytingar af mannavöldum og hefur miklar áhyggjur af þeim og ræðst af "alefli" gegn því sem er í gangi.  En hefur hann ekkert spáð í "pólskiptin" sem eru í gangi og hafa verið undanfarið, í dag er NORÐURPÓLLINN staddur í Úralfjöllunum og talið að hann komi til með að stoppa í Indlandshafi?  En hann fylgir meginstraumnum og trúir alfarið á að þessar loftlagsbreytingar séu eingöngu af mannavöldum.  Og hvað gerir hann?  Jú það er efst á forgangslistanum að það verði bannað að flytja inn dísil og bensín bifreiðar eftir árið 2030.  Halló bifreiðaumferð er með um 6% af heildarloftslagsmengun Íslands.  Þetta heitir að taka á málunum af ákveðni og festu. cool laughing  Ekki nóg með það, en þá ætlar þessi fyrrum framkvæmdastjóri og formaður LANDVERNDAR að láta "troða" þessum orkupakka þrjú þversum ofan í kokið á sér og gleypa hann án þess að æmta eða skræmta eða án þess að drekka vatn til þess að "liðka" fyrir óþægindunum sem þetta hlýtur að valda (eða kannski hann sé bara svona fljótur að læra stjórnmálaklækina).

Það má kallast með eindæmum að VG (WC) ætli að láta hafa sig út í að samþykkja orkupakka þrjú.  Þeir hafa hingað til gefið sig út fyrir að vera sérstaklega "GRÆNN" flokkur og til verndar umhverfinu og hingað til hefur ekki mátt heyra á það minnst að virkja eina einustu sprænu í landinu, þá hefur allt ætlað á hliðina innan þessa flokks.  En skyndilega er allt orðið breytt, það heyrist ekki "múkk" í "náttúruverndarliðinu" í sambandi við orkupakka þrjú, en utanríkisráðherra segist vera kominn með skotheld axlabönd og belti með "fyrirvörum sem hann setti og Orkumálastjóri ESB samþykkti í símtali laughing tongue-out, sem geri það að verkum að hingað verði ekki lagður sæstrengur nema Kata litla og Umhverfisráðherrann samþykki það, sem sagt aldrei.  En hversu vel hafa "fyrirvarar" Íslenskra stjórnvalda haldið hingað til?  Við þurfum ekki að fara langt aftur í tímann til að sjá það.  Hvernig var með fyrirvarana varðandi innflutning á HRÁU KJÖTI?  Og stjórnvöldum finnst bara best að leggjast flatir undir orkustefnu ESB og láta ESB stjórna orkumálum Íslendinga.  En eitt er nokkuð skýrt, að til þess að sæstrengur til Evrópu geti orðið hagkvæmur, ÞARF EINA VIRKJUN Á STÆRÐ VIÐ KÁRAHNJÚKAVIRKJUN OG TVÆR VIRKJANIR Á STÆRÐ VIÐ BLÖNDUVIRKJUN.  Í fljótu bragði sé ég ekki að við eigum þessa kosti ÞAÐ EINA SEM GÆTI KOMIÐ TIL ERU DETTIFOSS OG GULLFOSS, sem færu langleiðina með að uppfylla þessa þörf en þá yrðu að koma til "smærri" kostir eins og GOÐAFOSS,GLYMUR og kannski eru einhverjir fossar í Norðurá og víðar sem hægt væri að nýta. Kannski Glanni,Laxfoss komi til greina ásamt nokkrum öðrum "smákostum" komi til álita?  Þetta lið hefur greinilega ekki kynnt sér orkupakka þrjú vel, frekar en aðrir stjórnarliðar.  Ef orkupakki þrjú verður keyrður í gegn (eins og allt útlit er fyrir í dag), þá verður sett á stofn embætti "landsreglara", sem heyrir undir ACER.  Komi upp ágreiningur milli landsreglarans og stjórnvalda, um raforkumál, verður þeim ágreiningi vísað til Evrópudómstólsins og við vitum öll hvernig sá úrskurður fellur. Hvaða "hrossakaup" eru eiginlega í gangi hjá "stjórnarliðinu"???????????


mbl.is Ótrúlegur kraftur einkennir baráttuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. maí 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband