ÞETTA ER BÚIÐ AÐ VERA LJÓST Í MÖRG ÁR EN HVAÐ VELDUR ÞVÍ AÐ ALLT Í EINU NÚNA ÞARF AÐ GERA EITTHVAÐ???

Getur það verið að þegar "elítan" fékk að finna fyrir þessu á "eigin skinni", hafi allt í einu verið brýn þörf á einhverjum aðgerðum.  Það var kannski "tilviljun" en strax eftir að viðtal birtist við bróður Gunnarsstaða Móra, þar sem hann lýsti því að "erlendur auðmaður" hefði bara komið eins og þjófur að nóttu og keypt land, sem hann átti sem sameign með öðrum bæ í nágreni við Gunnarsstaði.  Síðan þetta viðtal kom hafa bæði Forsætisráðherra og Sveitastjórnaráðherra komið fram á sjónarsviðið og tjáð sig um þessi mál.  En fram að þessu atviki hafði þetta jarðamál hlotið afar litla athygli hjá ráðmönnum þjóðarinnar.  En það er vonandi að eitthvað af viti verði gert í þessu núna, þegar þetta er farið að hafa áhrif á "elítuna".......


mbl.is Ítarlegri kröfur í nágrannalöndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AÐ SJÁLFSÖGÐU EKKI ÞAÐ ERU SKATTGREIÐENDUR SEM BORGA - SKIPTIR "ENGU" EINASTA MÁLI

ISAVIA hefur hingað til hagað sér eins og fyrirtækið sé hafið yfir lög og reglu á Íslandi, enda enginn sem virðist hafa neitt með fyrirtækið að gera og ekkert boðvald yfir gjörðum þess að einu eða neinu leiti.  Í skjóli þessa hefur fyrirtækið "troðið" á rétti fyrirtækja, sem starfa í Flugstöðinni og víðar, svo ekki sé minnst á að markmið og stefna fyrirtækisins virðist taka breytingum eftir því hvernig vindar blása.  Fyrirtækið á að sjá um flugvelli landsins en nú virðist vera að aðalstefna fyrirtækisins sé hámörkun HAGNAÐAR og enginn segir neitt.  Málið með þessa flugvél er alveg kostulegt og er efni í heila bók.  Ég held að ég geti fullyrt það að EKKERT EINKAFYRIRTÆKI HEFÐI LEYFT SÉR AÐ GANGA FRAM MEÐ ÞESSUM HÆTTI sem ISAVIA hefur gert í þessu máli og svo bíta þeir hausinn af skömminni með því að lýsa því yfir að dómurinn sé einfaldlega RANGUR og alveg greinilegt að það átti bara að hunsa hann eins og þeir gerðu í "Kaffitársmálinu" (man einhver eftir því?)......


mbl.is Sér ekki eftir ákvörðunum Isavia
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. júlí 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband