BYRJUNIN HJÁ STRÁKUNUM OKKAR GERÐI ÚT UM LEIKINN.......

Eins og fyrri hálfleikurinn var ömurlegur hjá strákunum, var sá seinni alveg stórkostlegur.  Ungu strákarnir sýndu það svo sannarlega úr hverju þeir eru gerðir og svo var "Westinghouse ísskápurinn" okkar á línunni mjög öflugur þegar hann náði að beita sér og mikið sá ég eftir markinu, sem dómararnir tóku af honum með því að flauta á brot Norðmanna "of snemma".  Þá er ekki hægt að horfa framhjá frammistöðu Viktors í markinu, það segir nokkuð mikið þegar maður úr tapliðinu er valinn maður leiksins.  Þá er ekki hægt að horfa framhjá frammistöðu eins besta handboltamanns í heimi, það er einfaldlega óásættanlegt að fá BARA TVO GÓÐA LEIKI FRÁ HONUM Á STÓRMÓTI..........


mbl.is Þriggja marka tap gegn Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. janúar 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband