HVERRA HAGSMUNA ER HÚN AÐ GÆTA????????

Ég er fullkomlega orðlaus yfir hvernig þessi manneskja getur hagað sér og get bara ekki með nokkru móti séð að hún sé mikið að leggja nótt við nýtan dag til að forða landinu frá gjaldþroti eins og hún segir sjálf.  Er manneskjan virkilega svo "stropuð" að halda að maður sem tók þátt í að semja þá reglugerð sem hann er að tala um VITI EKKI hvað hann er að segja????? Ég er á því að allt þetta LANDRÁÐAFYLKINGARLIÐ þurfi skoðunar við og það verði bara að komast á hreint HVAÐA HAGSMUNIR ERU  Í FYRIRRÚMI HJÁ ÞEIM?
mbl.is Segir misskilnings gæta hjá Lipietz
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

eru þessi manneskja nokkuð athyglissjúk

Jón Snæbjörnsson, 11.1.2010 kl. 10:08

2 Smámynd: Alli

Veistu það ekki Jóhann?

Útsýnið er ekki mjög gott þegar menn eru með HAUSINN Á KAFI Í RASSGATINU Á ESB !!!!!!!!!!!!

Alli, 11.1.2010 kl. 10:09

3 identicon

"Þvert á móti var innlánastarfsemin rekin á ábyrgð bankans hér heima og þar með íslenska innistæðutryggingasjóðsins"

Þetta er alveg rétt hjá henni. Innistæðutryggingasjóðurinn á Íslandi ber ábyrgð á Icesave innlánum. Því miður á hann enga peninga.  Það er ekki okkar mál.

Sigurgeir (IP-tala skráð) 11.1.2010 kl. 10:15

4 Smámynd: Skúli Víkingsson

Lipietz lýsti því skýrt hvaða takmörkunum er háð að gera skuld einkaaðila að ríkisskuld. Þetta var alveg óháð spurningunni um dótturfélag eða útibú. Við eigum eftir að sjá mikið af hálmstrám þjóðníðinga á næstunni.

Skúli Víkingsson, 11.1.2010 kl. 10:23

5 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Björn Valur þingmaður VG hlýtur að koma sterklega til greina sem einn af fimm lélegustu þingmönnum sem setið hefur á alþingi frá upphafði.  Maður skilur ekki BULLIÐ sem ítrekað kemur frá þeim hrokafulla karakter.  Eða með þínum orðum:  "Er manneskjan virkilega svo "stropuð" að halda að maður sem tók þátt í að semja þá reglugerð sem hann er að tala um VITI EKKI hvað hann er að segja?????"  Svarið er því miður "JÁ..!"

Kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

Jakob Þór Haraldsson, 11.1.2010 kl. 10:30

6 Smámynd: Hrannar Baldursson

Lipietz talaði um "megin staðsetningu starfsemi" sem ákvarðandi fyrir ábyrgð.

Hrannar Baldursson, 11.1.2010 kl. 10:32

7 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Ég tek heilshugar undir það sem þú segir Jóhann, hún er gjörsamlega "stropuð", eins og þú kemst að orði.

Björn Valur Gíslason er það líka, jafnvel verri ef eitthvað er.

Í lagadeilum hafi allir sér eitthvað til málsbóta, en til að hafa sigur þarf að halda uppi vörnum, það ætti að vera hlutverk ríkisstjórnarinnar. En miðað við þeirra framgöngu í þessu máli, ætti hún að segja af sé og hætta í stjórnmálum með skömm.

Það er sama hvaða rök koma til stuðnings okkar málstaðs, alltaf reynir stjórnarmeirihlutinn að hrekja þau, þetta er með svo miklum ólíkindum að ég finn engin prenthæf orð til að lýsa þessu.

Það besta væri, að stofnað væri  til undirskriftar, sem skoraði áríkisstjórnina að segja af sér. Þótt stjórnarkreppa sé slæm, þá er hún hátíð miðað við þessa hlandvitlausu hálfvita sem við höfum núna.

Jón Ríkharðsson, 11.1.2010 kl. 10:49

8 Smámynd: Axel Pétur Axelsson

Athugið hverja ríkisstjórnin hefur valið sér til fulltingis:

Ingvi Örn Kristinsson er aðstoðarmaður Félagsmálaráðherra Árna Páls Árnasonar, en hann var framkvæmdastjóri Verðbréfasviðs Landsbankans. Einnig starfar hann sem ráðgjafi Forsætisráðherra.

Benedikt Stefánsson var í Greiningardeild Landsbankans og er núna aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar Efnahags- og Viðskiptaráðherra.

Björn Rúnar er skrifstofustjóri í Viðskiptaráðuneytinu. Hann var forstöðumaður í Greiningardeild Landsbankans

Edda Rós er núna fulltrúi Íslands í AGS í gegnum Samfylkinguna. Hún var forstöðumaður Greiningardeildar Landsbankans

Arnar Guðmundsson var í Greiningardeild Landsbankans. Hann er núna aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur Iðnaðarráðherra.

Með svo marga bankamenn í farteskinu, og einnig hafandi í huga að fyrir kosningar kom í ljós að Samfó var sá flokkur sem hafði fengið næstmest í gjafafé frá bönkunum og eigendum þeirra; er ekki þá einfaldlega ljóst hverra hagsmuna stjórnendur Samfó, eru að leitast til með að vera?

Áhugavert einnig, að allir þessir aðstoðarmenn, eru fyrrum starfsmenn Björgólfsfeðga.

Gæti þetta hafa eitthvað með málið að gera?:

Meðfylgjandi er yfirlit styrkja til Samfylkingarinnar frá lögaðilum árið 2006 sem voru hærri en 500 þúsund

* Actavis hf. 3.000.000

* Baugur Group hf. 3.000.000

* Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga 1.000.000

* Eimskipafélag Íslands 1.000.000

* Exista ehf. 3.000.000

* Eykt ehf. 1.000.000

* FL-Group hf. 3.000.000

* Glitnir 3.500.000

* Kaupþing 5.000.000

* Ker hf. 3.000.000

* Landsbanki Íslands 4.000.000

* Milestone 1.500.000

* Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis 1.000.000

* Straumur Burðarás fjárfestingabanki 1.500.000

* Teymi ehf. 1.500.000

* Samtals yfir 500.000 http://www.facebook.com/l/f433d;36.000.000

Axel Pétur Axelsson, 11.1.2010 kl. 10:57

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já maður er að verða orðlaus yfir spillingunni.  Og var hún þó ærin fyrir. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.1.2010 kl. 11:19

10 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Ég þori hiklaust að láta orðið flakka þetta eru LANDRÁÐ!

Sigurður Haraldsson, 12.1.2010 kl. 10:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband