VANTAR EKKI EITTHVAÐ Í FORSENDURNAR Í KÖNNUNINNI???????

Einhvers staðar er sagt að það sé til þrenns konar lygi: " LYGI, HAUGALYGI OG TÖLFRÆÐI".  Mér sýnist að þarna  hafi tölfræðin verið notuð til þess að "fegra" útkomu þessar könnunar t.d með því að notast eingöngu við forsendur sem myndu "passa" fyrir þá útkomu sem aðstandendur könnunarinnar vildu fá.  Þegar ég bjó í Noregi var okkur ljóst að matarverð þar var mun hærra en á Íslandi en vegna þess að launin í Noregi voru mun hærri en á Íslandi voru lífskjörin mjög svipuð.


mbl.is Matarkarfan næstódýrust á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

M.ö.o. hefur ekkert verið að marka kannanir sem gerðar voru á liðnum árum og sýndu hátt matarverð hér enda kaupmáttur aldrei tekinn inn í myndina.

Hjörtur J. Guðmundsson, 14.1.2010 kl. 18:36

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú getur túlkað þessar kannanir eins og þú vilt og verið með skæting eins og þú villt.  Ég hef ekki vitneskju um hvernig kannanir sem hafa verið gerðar áður voru framkvæmdar en ég veit hvernig þessi var framkvæmd og ég get alveg sagt þér það að ég tel niðurstöðu hennar EKKI mjög trausta heimild, svo ekki sé nú fastar að orði kveðið.

Jóhann Elíasson, 14.1.2010 kl. 20:35

3 Smámynd: Árni Þór Björnsson

Þetta er ekki rétt. Bý erlendis og allt er mun dýrara hér á Íslandi. Oft eru þessar kannanir með skrýtnu vöruvali eða hlutum sem maður kaupir ekki. Það er verið að slá syki í augu almennings. Við eigum að una sæl við hið íslenska sjötta besta vöruverð í heiminum í dag ! Bull--it.

Árni Þór Björnsson, 14.1.2010 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband