MAÐURINN ER LÖNGU KOMINN MEÐ ÞETTA ICES(L)AVE-MÁL Á HEILANN!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Ég hef alltaf litið á hann sem bráðgreindan mann en maður hlýtur að fá efasemdir eftir að hafa lesið um og séð  viðbrögð hans, við synjun forsetans og svo er ekki alveg heilbrigt hvernig maðurinn hefur látið í fjölmiðlum vegna þessa máls.  Eftir að hann komst í ráðherrastól hefur hann svoleiðis "umpólast" að Ragnar Reykás kemst ekki með tærnar þar sem Steingrímur Joð er með hælana.  Hvernig í ósköpunum er hægt að ætlast til þess að maður hafi nokkra trú á þessum manni????
mbl.is Betra en að deyja úr þorsta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og til viðbótar þá er öll stjórnin hrjáð af Stokkhólmsheilkennunum

Björn (IP-tala skráð) 15.1.2010 kl. 20:23

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

hann er kanski með "joð" sótt

Jón Snæbjörnsson, 15.1.2010 kl. 20:46

3 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Jæja segið, það er nú bara ekki hægt annað en að hlæja gráta yfir þessum orðum hans. Annað hvort er hann að sjá að þetta er búið hjá honum, frekar en að hann sjálfur trúir þessum orðum sínum. Þetta er bein hótun... Ef við samþykkjum ekki þá verðum við vatnslaus...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 15.1.2010 kl. 21:25

4 identicon

Það sem ég skil ekki er hvernig eina þjóðin í heiminum með nægar vatnsbirgðir getur nokkurn tíma dáið úr þorsta nema einhverjar herragarðsþjóðir hafi "stolið" vatnsbirgðunum.

Bjarni (IP-tala skráð) 15.1.2010 kl. 21:34

5 identicon

SJS getur stöðu sinnar vegna ekki gert annað en að hvetja fólk til að samþyggja frumvarpið. Hann flutti það, alþingi samþykkti. Gagnvart Bretum, Hollendingum og reyndar ríkisstjórninni, væri ótækt að SJS sem fjármálaráðherra talaði gegn eigin frumvarpi, og gerði sig að ómerkingi. Nei, SJS veit vel að frumvarpið verður fellt, og hann getur þá sagt að hann hafi gert sitt, og nú verði Bretar og Hollendingar að gefa eftir.

Björn Ólafs (IP-tala skráð) 15.1.2010 kl. 21:36

6 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Varið ykkur Steingrímur er að selja vatnið það er ljóst með að samþykkja icesave og ganga inn i ESB. Steingrímur á að fara heim vil ekki sjá svona menn á þinginu!

Sigurður Haraldsson, 15.1.2010 kl. 23:39

7 Smámynd: Sigurjón

SJS er fyrir löngu búinn að gera sig að ómerkingi.  Horfið bara á alla hans stjórnarandstöðu.  Annað hvort er ekkert að marka hana í næstum 20 ár, eða þessa stuttu, hræðilegu stjórnarsetu þessa sköllótta skeggapa!

Sigurjón, 16.1.2010 kl. 02:19

8 Smámynd: Auðun Gíslason

Niðurstöður frá 2008 sem Bjarni Ben studdi ásamt öllum öðrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins!

Flokksformennirnir semja og semja hver við annan!  Og segjast sumir þeirra hafa góða trú á, að Hollendingar og Bretar fáist að samningaborðinu.  Stjórnarandstöðunni tókst með lýðskrumi að þvinga ríkisstjórnina í viðræður við sig.  Að þeim takist hið sama með Breta og Hollendinga má með réttu efast um.  Hollendingar og Bretar hafa enga þörf fyrir að semja við Íslendinga uppá nýtt.  En Íslendingar verða í mikilli klemmu verði enginn samningur um málið gildur!

„...en ég hef alla tíð verið þeirrar skoðunar að Evrópusambandið hefði átt að standa miklu nær viðræðuferlinu," sagði Bjarni. Bjarna má benda á samning sem ríkisstjórn Geirs H. Haarde gerði 16. nóvember 2008 við ESB. Þar voru lagðar línurnar um samningana, hin umsömdu viðmið. Ríkjunum var svo látið eftir að semja um smáatriðin. Í Viljayfirlýsingu Íslands og AGS 9. grein kemur einnig fram sama afstað. Bjarni Ben hefur endurtekið í sífellu, að samningurinn frá í haust sé ósanngjarn og að engin ríkisábyrgð gildi um innistæðutryggingar. Samt greiddi Bjarni einmitt atkvæði sitt tillögu um ríkisábyrg á innistæðum í íslenskum bönkum á Evrópska efnahagssvæðinu haustið 2008.

AGS hefur verið gagnrýndur fyrir þá afstöðu sem hann tók til endurskoðunar áætlunarinnar um endurreisnina eftir að ÓRG vísaði lögunum til þjóðarinnar.

 Árni Mathiesen þáverandi fjármálaráðherra og Davíð Oddsson þáverandi seðlabankastjóri undirrituðu Viljayfirlýsingu íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. 

Í níundu grein þeirrar yfirlýsingar stendur orðrétt:

„Ísland hefur heitið því að virða skuldbindingar á grundvelli innstæðutryggingakerfisins gagnvart öllum tryggðum innlánshöfum. Þetta byggist á þeim skilningi að unnt verði að forfjármagna þessar kröfur fyrir tilstyrk viðkomandi erlendra ríkja og að jafnt Ísland sem þessi ríki séu staðráðin í að efna til viðræðna á næstu dögum með það að markmiði að ná samkomulagi um nánari skilmála vegna þessarar forfjármögnunar." (15. nóvember 2008). 

Hin umsömdu viðmið í samningi ríkisstjórnar Geirs H. Haarde við ESB.

  1. Ríkisstjórn Íslands hefur átt viðræðufundi með stofnunum Evrópusambandsins og hlutaðeigandi aðildarríkjum þess um skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að því er tekur til tilskipunar um innstæðutryggingar 94/19/EB. Aðilar komu sér saman um að tilskipunin um innstæðutryggingar hafi verið felld inn í lög­gjöf­ina um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við samninginn um Evrópska efnahags­svæð­ið og gildi því á Íslandi með sama hætti og hún gildir í aðildarríkjum Evrópusambandsins.
  2. Viðurkenning allra aðila á þessari lagalegu stöðu greiðir fyrir skjótri niðurstöðu samninga­viðræðna þeirra sem nú standa yfir um fjárhagsaðstoð við Ísland, þ.m.t. við Alþjóða­gjald­eyris­sjóðinn. Þessar samningaviðræður skulu fara fram með samhæfðum og samræmdum hætti og skal þar tekið tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland er í og knýjandi nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt.
  3. Stofnanir Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins munu taka áframhaldandi þátt í þessu ferli sem fer fram í samráði við þær. (16. nóvember 2008).

Auðun Gíslason, 16.1.2010 kl. 19:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband