EKKI SPURNINGIN HVORT EVRAN HRYNUR - HELDUR HVENÆR...............................

Ég tel að það sé ekki spurning um hvort EVRAN hrynji heldur hvenær.  Kínverjar hafa aðeins seinkað ferlinu, því eins og kunnugt er þá fer megnið af þeirra útflutningi til Bandaríkjanna en þeir hafa mjög litla trú á dollarnum þar af leiðandi hafa þeir skipt öllum dollurunum í evrur og það skýrir að mestu leyti hátt gengi evrunnar í dag, svo er bara spurning hversu lengi trú Kínverja á evrunni stendur?????  Bara þetta atriði er þess valdandi að Íslendingar ættu ALLS EKKI að sækjast eftir inngöngu í ESB og taka upp evruna.  Eins og allir vita þá tekur evran, sem sameiginlegur gjaldmiðill ESB ríkja, ekki tillit til efnahagsástandsins í einstöku aðildarríki heldur er efnahagur heildarinnar undir og þegar um svona miðstýring er að ræða verður það óumflýjanlegt að einhver ríki verði "undir" eins og við erum að sjá með Írland og fleiri ríki Grikkland, Spánn og fleiri ríki koma til með að fylgja á eftir.  Svona kemur ESB til með að éta sjálft sig upp innanfrá og þetta er það sem LANDRÁÐAFYLKINGIN með Heilaga Jóhönnu og "taglhnýtingur" hennar, Steingrímur Joð í broddi fylkingar, vilja leiða landið útí. 
mbl.is Óttast að evran hrynji
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vitleysa er þetta í þér. Það er búið að vera að tala um þetta síðan evran varð fyrst til og hefur það ekki enn gerst. En hvað er verið að reyna að segja. Er krónan besti gjaldmiðill í heimi.

Þetta er fáránlegur áróður hjá Morgunblaðinu.

Egill (IP-tala skráð) 24.1.2010 kl. 16:55

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Egill, hvernig væri nú að segja HVAÐAN þú hefur það að þetta sé tómt bull og vitleysa þar til þú getur sýnt fram á það með alveg skotheldum rökum stend ég alveg fastur á þessu sem ég skrifa, enda er ekkert sem segir að ég eigi að véféengja þær heimildir sem ég byggi þetta á.      

Jóhann Elíasson, 24.1.2010 kl. 17:25

3 identicon

Sæll Jóhann

Stend með þínum "Rökum ".

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 24.1.2010 kl. 17:35

4 Smámynd: Smjerjarmur

Tilfellið er að vissir aðilar innan Samfylkingar eru búnir að tala um evruna sem töfragjaldmiðil frá því löngu áður en fór að halla undan fæti hjá okkur.  Evran er mjög hátt skráð.  Upphaflega var hún ívið hærri en U$, gaf svo töluvert eftir en er búin að vera mjög sterk í mörg ár.  Þetta hlýtur að setja mörg aðildarlöndin í erfiða aðstöðu gagnvart útflutningi.  Ég veit ekki hvort hún hrinur en óneitanlega er hún mjög líkleg til þess að lækka, enda alls ekki töfragjaldmiðill.  Ég vona að sílending taki hana ekki upp, a.m.k. ekki fyrr en hún er roðin miklu lægri en hún  er í dag.

Smjerjarmur, 24.1.2010 kl. 18:19

5 Smámynd: Smjerjarmur

þar sem stendur sílending á að standa íslendingar..

Við íslendingar höfum brennt okkur svo svakalega á of hátt skráðum gjaldmiðli að við ættum að geta áttað okkur á hættunni sem fylgir þessu.  Há gengisskráning var mjög hvetjandi til ofneyslu og skuldsetningar og dró mikið úr möguleikum okkar til þess að byggja upp sterkan útflutningsiðnað.  Það sama á við um Evrusvæðið, útflutingur erfiður og mikil eftirspurn eftir "ódýrri" erlendri vöru. 

Smjerjarmur, 24.1.2010 kl. 18:26

6 identicon

Hér er aldeilis rætt um efnahagsmál af þekkingu og innsæi. Svo er bara að vona að menn hér hafi rétt fyrir sér. Fátt væri betri kjarabót fyrir skulduga þjóð þúsundir milljarða í evruskuldum en að dómadagsskuldir um fall hennar gengu eftir.

Prófessor Mambó (IP-tala skráð) 25.1.2010 kl. 09:27

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er langt síðan ég heyrði rætt um að evran myndi hrynja, og það úti í Þýskalandi.  Þjóðverjar sem sögðu mér að þau væru hætt að safna peningum í banka.  Þau sögðu að allt kerfið væri byggt á sandi og að hruni komið.  Það gerðist bara hægar í stærri samfélögum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.1.2010 kl. 11:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband